Morgunblaðið - 04.10.2018, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 2018 13SJÓNARHÓLL
BÓKIN
Á löngum ferli hefur Michael Pal-
in brugðið sér ótal hlutverk. Hann
lék hinn stamandi Ken í A Fish
Called Wanda, samkynhneigðan
skógarhöggsmann í
gamanþáttum Monty
Python og sjálfan
Pontíus Pílatus í Life
of Brian. Í nýjasta
verkefni sínu bregður
Palin sér í hlutverk
sagnfræðingsins, en
hann stundaði sagn-
fræðinám í Oxford
áður en hann varð
heimsfrægur
skemmtikraftur.
Palin er höfundur
bókarinnar Erebus:
The Story of a Ship
en þar fjallar hann um merkilegan
rannsóknarleiðangur um miðja 19.
öld þar sem þess var freistað að
finna siglingaleið frá Atlantshafi til
Kyrrahafs meðfram norðurströnd
Kanada. Ef stjórnanda leiðangurs-
ins, John Franklin, hefði tekist að
finna leið sem óhætt væri að sigla er
næsta víst að veraldarsagan hefði
tekið nýja stefnu enda hefði þá opn-
ast hentug leið til að flytja varning
til Asíu og yfir á vesturströnd
Bandaríkjanna. Þeir sem þekkja
söguna vita að Roald Amundsen
varð sá fyrsti til að sigla norður fyrir
Kanada snemma á 20. öldinni og
geta því giskað á
hvernig fór fyrir skip-
inu Erebus.
Saga Erebus minnir
á þær fórnir sem
fræknir frumkvöðlar
og landkönnuðir hafa
fært í langri sögu
skipasiglinga og notar
Palin dagbækur skip-
verja úr fyrri leið-
öngrum til að draga
upp mynd af lífinu um
borð. Ekki er að fullu
ljóst hvað varð til þess
að Erebus sökk, en þó
er vitað að áhöfnin var sársvöng og
uppgefin þegar skipið var yfirgefið
árið 1848 og hvarf ofan í hafið. Sögu-
sagnir inúíta herma að þegar hungr-
ið hafi tekið að sverfa að hafi áhöfnin
farið að stunda mannát. Enginn
þeirra komst lífs af og fréttist ekki
af Erebus fyrr en sumarið 2014 þeg-
ar flakið fannst undan norðurströnd
Kanada. ai@mbl.is
Michael Palin ritar um
merkilegan leiðangur
EFTA-ríkin fjögur – Ísland, Liechtenstein, Noregurog Sviss – eiga það sameiginlegt að hafa skuld-bundið sig til að innleiða tilteknar réttarreglur
Evrópusambandsins (ESB) í landsrétt sinn þrátt fyrir að
standa utan við sambandið. Fyrrnefndu ríkin þrjú byggja
innleiðinguna á samningnum um Evrópska efnahags-
svæðið (EES) og tilheyra þannig innri markaði ESB.
Sviss hefur aftur á móti takmarkaðri aðgang að innri
markaðnum með tvíhliða-samningum við ESB.
EES-samningurinn, ásamt viðaukum og bókunum,
tekur til allra málefnasviða innri markaðarins. Undir
hann falla flestallar réttarreglur ESB um frjálst flæði á
fólki, fjármagni, þjónustu og vörum. Samningurinn er dí-
namískur og er uppfærður sam-
hliða lagaþróun ESB. Með EES-
samningum var jafnframt sett á fót
stofnanakerfi, með sameiginlegri
nefnd, óháðri eftirlitsstofnun og
dómstól, sem stuðla að einsleitri
framkvæmd samningsins innan
EES. Sviss tók ásamt hinum
EFTA-ríkjunum virkan þátt í
samningaviðræðunum um EES og
undirritaði EES-samninginn árið
1992. Svissneskir kjósendur höfn-
uðu hins vegar aðild að EES í þjóð-
aratkvæðagreiðslu síðar sama ár. Í
kjölfarið hófu Sviss og ESB við-
ræður um efnahagslega samvinnu
án aðildar Sviss að EES. Byggt var á þeirri vinnu sem
þegar hafði farið fram vegna fyrirhugaðrar aðildar Sviss
að EES. Niðurstaðan voru tvíhliða-samningar þar sem
Svisslendingar völdu úr þau málefnasvið innri markaðar-
ins sem þeir voru reiðubúnir að gangast undir. Eflaust
má slá því föstu að efnahagslegur styrkleiki og náin við-
skiptatengsl við ESB hafi tryggt Sviss góða samnings-
stöðu – Sviss er t.d. þriðji mikilvægasti viðskiptaaðili (e.
trading partner) ESB á eftir Bandaríkjunum og Kína.
Samningunum var þó ætlað að vera tímabundin lausn þar
til Sviss gengi í ESB og sambandið hefur alltaf litið á fyr-
irkomulagið sem undantekningu sem stæði ekki til boða
fyrir önnur ríki. Eðlilegra væri fyrir Evrópuríki að öðlast
aðgang að innri markaðnum með aðild að EES eða hrein-
lega með inngöngu í ESB.
Á annan tug tvíhliða-samninga tengja Sviss við innri
markað ESB. Þar má t.d. nefna samninga um frjálsa för
fólks, samgöngumál, opinber innkaup auk aðildar Sviss
að Schengen-samstarfinu. Samningarnir afnema höft og
tryggja að tilteknar meginreglur ESB-réttar gildi í sam-
skiptum Sviss og ESB. Sviss er svo skuldbundið til að
samræma landsrétt sinn að tilteknum réttarreglum ESB.
Öfugt við EES-samninginn, sem er heildstæður samn-
ingur, eru tvíhliða-samningarnir afar mismunandi. Sumir
samninganna eru kyrrstæðir, þ.e. þeim er ekki ætlað að
taka breytingum. Aðrir eru uppfærðir í samræmi við
lagaþróun ESB líkt og þekkist í EES-samstarfinu. Að-
ferðirnar eru ólíkar eftir einstökum samningum auk þess
sem gengið er mislangt við að uppfæra samningana í
samræmi við lagaþróun ESB.
Fleiri en 20 aðskildar nefndir
hafa umsjón með samningunum,
þar á meðal upptöku nýrra ESB-
gerða og úrlausn deilumála.
Framkvæmd tvíhliða-samning-
anna er því sundurleitari en
þekkist í EES-samstarfinu.
Hvorki svissneskir dómstólar né
Dómstóll ESB hafa eiginleg hlut-
verk við túlkun tvíhliða-
samninganna né heldur er til
staðar sjálfstæður dómstóll eða
eftirlitsstofnun sem hefur óháð
eftirlit með framkvæmdinni. Af
þeim sökum er erfitt að tryggja
einsleita túlkun samnings-
skuldbindinga.
Nú þykir ólíklegt að Sviss gangi í ESB og því er ljóst að
tvíhliða-samningarnir eru ekki tímabundin lausn líkt og
upphaflega stóð til. Sviss og ESB hafa því um nokkurt
skeið átt í viðræðum um umbætur á fyrirkomulaginu en
ekki sér fyrir endann á því ferli. Það er ekkert launung-
armál að væntanleg útganga Breta úr ESB hefur valdið
því að sambandið heldur að sér höndum og vill ekki gefa
of mikið eftir gagnvart Sviss. Samningarnir hafa reynst
Svisslendingum vel og þeir vilja eðlilega halda sérstöðu
sinni en jafnframt öðlast óheftara aðgengi að innri mark-
aðnum. Ekki hefur t.d. verið samið um frjálst flæði fjár-
magns né heldur um þjónustuviðskipti, þar með talið fjár-
málaþjónustu sem er afar mikilvæg atvinnugrein í Sviss.
Áður en slíkir samningar takast vill ESB samræma fram-
kvæmd samninganna, m.a. með aðkomu Dómstóls ESB,
sem mælist misvel fyrir í Sviss.
Svissneska málamiðlunin
LÖGFRÆÐI
Hjalti Geir Erlendsson
lögfræðingur hjá Umboðsmanni Alþingis
”
Á annan tug tvíhliða-
samninga tengja Sviss
við innri markað ESB.
Þar má t.d. nefna
samninga um frjálsa för
fólks, samgöngumál,
opinber innkaup auk
aðildar Sviss að Schen-
gen-samstarfinu.
Með Firmavörn+ geta stjórnendur fylgst með og
stýrt öryggiskerfi, myndeftirliti og snjallbúnaði
fyrirtækisinsmeð appi í símanum hvar og hvenær
sem er. Stjórnstöð Securitas er á vaktinni allan
sólarhringinn, alla daga ársins.
www.firmavorn.is
HVAR SEM ÞÚ ERT