Morgunblaðið - 11.10.2018, Side 1
HEFVERIÐ KALLAÐUR SUPERMANORÐNIR FRJÁLSIR MENN
tæknilegur reiðhjólahjálmur með stefnuljósum og skynjara 4
Útgáfuteymið Stop Wait Go dreymir
um að gera vinsælt lag sem slær
í gegn úti um allan heim. 14
VIÐSKIPTA
Davíð Ólafur Ingimarsson hætti við að fara í doktors-
nám þegar hann áttaði sig á því að hann hefði
ekki það mikinn áhuga á rannsóknum 4
Há
Unnið í samvinnu við
FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2018
Endurskoðun • Skattur • Ráðgjöf www.grantthornton.is
Grant Thornton endurskoðun ehf. er íslenskt aðildarfélag Grant Thornton International Ltd., sem er eitt af fremstu alþjóðlegu samtökum sjálfstæðra endurskoðunar og ráðgjafarfyrirtækja. Grant Thornton
endurskoðun ehf. sérhæfir sig í að aðstoða rekstraraðila við að nýta tækifæri til vaxtar og bættrar afkomu með skilvirkri ráðgjöf. Framsýnn hópur starfsmanna, undir stjórn eigenda, sem ávallt eru aðgengilegir
viðskiptavinum, nýta þekkingu og reynslu sína til að greina flókin málefni og finna lausnir fyrir viðskiptavini sína, hvort sem það eru einkarekin, skráð félög eða opinberar stofnanir. Yfir 35.000 starfsmenn Grant
Thornton fyrirtækja í meira en 100 þjóðlöndum, leggja metnað sinn í að vinna að hag viðskiptavina, samstarfsmanna og samfélagsins sem þeir starfa í.
Endurskoðun | Skattur | Ráðgjöf
Ernst & Young ehf. Borgartúni 30, 105 Reykjavík
ey.is
Alþjóðleg þekking - persónuleg þjónusta
NATO með olíu til Íslands
Þrír háttsettir fulltrúar frá Atlants-
hafsbandalaginu, NATO, þar á með-
al aðmíráll og skotvopnasérfræð-
ingur, voru staddir hér á landi á
dögunum þar sem þeir áttu fundi
með ýmsum aðilum úr íslenska olíu-
geiranum. Þetta herma traustar
heimildir ViðskiptaMoggans.
Tilefni fundanna var að kanna
grundvöll fyrir geymslu á allt að 40
milljón lítrum af olíu á ári sem nota
á m.a. á flugmóðurskip NATO sem
staðsett verði nálægt lögsögu
landsins og orrustuflugvélar sem
tilheyra viðkomandi skipi. Um er
að ræða skipaolíu sem og JP8
þotueldsneyti.
Samningsupphæð á ári er talin
geta numið um 500 þúsund banda-
ríkjadölum, eða nálægt 60 millj-
ónum króna á ári. Reiknað er með
að NATO sé að horfa á langtíma-
samning til að minnsta kosti fimm
ára.
Samkvæmt heimildum blaðsins
átti nefndin fundi með fleiri en ein-
um aðila hér á landi, ásamt því sem
allur hópurinn eða hluti hans
fundaði einnig með aðilum á Græn-
landi í sömu erindagjörðum. Á
Grænlandi er eitt olíufélag starf-
andi, Polar Oil.
Meðal aðila sem bjóða upp á
geymslu á olíu hér á landi eru Olíu-
dreifing, sem dreifir olíu fyrir Olís
og N1, Skeljungur og Atlantsolía.
Olíubirgðastöðvar sem gætu hentað
NATO eru í Reykjavík og Hval-
firði, en einnig á Akureyri og í
Vestmannaeyjum.
Sem dæmi þá rekur Olíudreifing
37 birgðastöðvar með samtals 210
milljón lítra geymarými, samkvæmt
upplýsingum á heimasíðu félagsins.
Tilbúið innan 3-4 ára
Talið er líklegt, samkvæmt sömu
heimildum ViðskiptaMoggans, að
Atlantshafsbandalagið horfi einkum
til birgðastöðva í Helguvík, Hval-
firði, Örfirisey og mögulega á
Akureyri.
Í viðræðunum kom fram ósk um
að birgðastöðvarnar yrðu tilbúnar
til að taka á móti olíu innan 3-4
ára.
Meira en 10 ár eru síðan NATO
hætti að mestu að geyma olíu hér á
landi, og seldi birgðastöðvar sínar í
Hvalfirði og leigði frá sér Helguvík.
Það er því mat heimildarmanna
ViðskiptaMoggans að um töluverð
tíðindi sé að ræða og stefnubreyt-
ingu af hálfu bandalagsins. Koma
jafn háttsettra aðila sé skýrt merki
um möguleg aukin umsvif og við-
veru bandalagsins við Íslands-
strendur.
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Meira en 10 ár eru síðan
Atlantshafsbandalagið
geymdi síðast olíu í stórum
stíl á Íslandi. Nú vill það
geyma olíu hér á ný.
Morgunblaðið/Ómar
Íslensk olíufélög eru með olíutanka í Örfirisey. Einnig eru tankar í Hvalfirði, í
Helguvík, á Akureyri og í Vestmannaeyjum m.a.
Úrvalsvísitalan
EUR/ISK
1.900
1.800
1.700
1.600
1.500
1.400
11.4.‘18
11.4.‘18
10.10.‘18
10.10.‘18
1.761,19
1.654,29
135
130
125
120
115
121,65
134,25
Styðja þarf betur við ungt fólk á
vinnumarkaði að mati Vigdísar
Jónsdóttur, framkvæmdastjóra end-
urhæfingarsjóðsins VIRK. Örorku-
lífeyrisþegar með ung börn á fram-
færi geta fengið skattfrjálsan lífeyri
og segir Vigdís að margir treysti sér
einfaldlega ekki til þess að fara á
vinnumarkaðinn en sem dæmi hefur
einstæð móðir með fjögur börn um
500 þúsund til ráðstöfunar á örorku.
„Ég held bara að margir treysti
sér ekki til þess að fara á vinnu-
markaðinn. Og ég skil það mjög vel.
Ef þú hefur þennan stuðning á ör-
orku og ferð svo út á vinnumark-
aðinn þá færðu engan stuðning í
þessu formi,“ segir Vigdís. Hún seg-
ir að um hættulega gildru sé að ræða
þegar réttur til lífeyris vegna heilsu-
brests sé tengdur öðrum þáttum eða
aðstæðum fólks og að þörf sé á
barnalífeyriskerfi fyrir alla óháð því
hvort maður er á vinnu-
markaði eða ekki.
Hættuleg gildra að falla í
Morgunblaðið/Hari
Vigdís Jónsdóttir hefur verið fram-
kvæmdastjóri VIRK í 10 ár.
Hjálpa þarf betur ungu fólki
með börn til þess að taka
þátt á vinnumarkaði.
8
Tæknirisarnir vestanhafs
þurfa að finna lausn á þeim
vandamálum sem þeir hafa
sjálfir átt þátt í að
skapa.
Skjálftavarnir
í Kísildal
10
Samstarf við fjártæknisprota
einfaldar vöruskil og leiðir til
að viðskiptavinir kaupi föt oft-
ar og fyrir hærri
upphæðir.
Lex: H&M með
útspil í netverslun
11