Morgunblaðið - 11.10.2018, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 11.10.2018, Qupperneq 4
SAMGÖNGUTÆKIÐ Með hverju árinu fjölgar í hópi þeirra sem reyna að fara allra sinna ferða á reiðhjóli, eða a.m.k. þangað til vetrarveðrið er orðið al- veg skelfilegt. Á Íslandi þurfa þessar umhverfisvænu kempur að gæta sérstaklega að sýnileikanum og því gaman að geta sagt frá Li- val-snjallhjálminum sem er með skæru rauðu ljósi og stefnuljósum aftan á. Rauða afturljósið virkjast sjálf- krafa þegar tekur að rökkva og með sérstökum stýripinna á hand- fangi reiðhjólsins má gefa stefnu- ljós til hægri eða vinstri. Ekki nóg með það heldur er hjálmurinn með innbyggðum þráðlausum hátölurum og hljóðnema svo að hlusta má á tónlist, hlýða á leiðbeiningar leiðsöguforrits, svara símtali á meðan hjólað er á áfangastað, ellegar nota sem talstöð til að ræða við annað fólk með hjálm frá sama framleiðanda. Hjálmurinn ver not- andann á fleiri en eina vegu því hann er búinn hreyfi- skynjara sem grein- ir merki um mögu- lega byltu og hefur þá samband við neyð- arlínuna. Lival-hjálmurinn kostar 124 pund hjá Amazon í Bret- landi. ai@mbl.is Hjálmur fyrir öruggari og ánægjulegri ferð Þökk sé hátölurunum má hlusta á góða tónlist meðan hjólað er. 4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2018FRÉTTIR SVEIGJANLEGOGLIPUR INNHEIMTUÞJÓNUSTA Hafðu samband, við leysum málin með þér! Laugavegur 182, 105 Rvk. | Sími: 510 7700 | momentum@momentum.is Nýr forstjóri er tekinn til starfa hjá Guide to Iceland og tekur við góðu búi af Xiaochen Tian sem verður framkvæmdastjóri fjár- festinga. Framundan er áfram- haldandi uppbygging og sókn út á erlenda markaði. Hverjar eru helstu áskoranirnar í rekstrinum þessi misserin? Fyrirtækið mun leggja áfram- haldandi áherslu á þróun hugbún- aðarins og að auka sjálfvirkni til hagsbóta fyrir okkar viðskiptavini. Við munum áfram nota sterka stöðu markaðstorgsins til að koma smærri og meðalstórum fyrir- tækjum á framfæri og koma þar með í veg fyrir of mikla sam- þjöppun og einokun á markað- inum. Ein stærsta áskorunin er að sækja með hugbúnaðinn og við- skiptahugmyndina inn á erlenda markaði. Hver hefur haft mest áhrif á hvernig þú starfar? Þau sem hafa haft mest áhrif á mig eru fjölskyldan og vinir. Af þeim eru tveir einstaklingar sem standa upp úr en það eru faðir minn og Davíð Oddsson nafni minn. Báðir eru þeir miklir húm- oristar og hafa mikla hæfileika á ólíkum sviðum. Hver myndi leika þig í kvikmynd um líf þitt og afrek? Af einhverri ástæðu hef ég verið kallaður Superman eða Clark Kent í gegnum árin og ætli ég myndi ekki fá einhvern af Su- perman-leikurunum til að túlka mig. Hver vill ekki bjarga deg- inum eins og hann gerir? Hvernig heldurðu þekkingu þinni við? Hugbúnaðar- og ferðaþjón- ustugeirinn er sífellt að taka breytingum og maður verður að tileinka sér það nýjasta sem er að gerast til að vera samkeppnis- hæfur. Það er fátt skemmtilegra en að fá vandamál sem ég hef ekki fengið áður og þarf að stúdera og lesa mér til um hvernig ég get leyst það. Hugsarðu vel um líkamann? Ég stunda líkamsrækt í World Class og finnst skemmtilegt að lyfta. Mig langar að breyta aðeins til og byrja aftur að spila tennis eða stunda hnefaleika til að fá fjöl- breytta hreyfingu. Hvert væri draumastarfið ef þú þyrftir að finna þér nýjan starfa? Ef ég þyrfti að skipta um starfs- vettvang myndi ég fara að kenna á háskólastigi og búa til margmiðl- unarkennslubækur. Það er mjög gaman og gefandi að geta hjálpað öðrum einstaklingum. Því miður hef ég ekki mikinn tíma til að sinna kennslu. Hvað myndirðu læra ef þú feng- ir að bæta við þig nýrri gráðu? Á sínum tíma fékk ég skólastyrk í doktorsnám í Bandaríkjunum. Ég ákvað hins vegar að hætta við þegar ég áttaði mig á því að ég hef ekki það mikinn áhuga á rann- sóknum. Það að eyða fimm árum til viðbótar í nám ofan á M.Sc.- gráðu þótti mér of mikið. Ég sé ekki fram á að bæta við mig nýrri prófgráðu en vissulega er ég sífellt að bæta mig og læra nýja hluti. Hvað gerirðu til að fá orku og innblástur í starfi? Stjórnendur fyrirtækisins eru mjög ólíkir, sem er verulegur kostur. Við erum dugleg og óhrædd við að skiptast á skoð- unum. Hvaða lögum myndirðu breyta ef þú værir einráður í einn dag? Ég myndi vilja skoða það hvern- ig á að efla nýsköpunarumhverfið á Íslandi og hvernig við getum bætt heilbrigðisþjónustuna. Allt kostar þetta peninga og því er þetta ekki einfalt. SVIPMYND Davíð Ólafur Ingimarsson, forstjóri Guide to Iceland Vill skoða hvernig má efla nýsköpunarumhverfið Morgunblaðið/Hari „Maður verður að tileinka sér það nýjasta sem er að gerast til að vera samkeppnishæfur,“ segir Davíð. GRÆJAN Tæknirisinn Google kynnti á dög- unum sína fullkomnustu farsíma til þessa: Pixel 3 og 3XL. Eins og vera ber með nýja síma er búið að bæta hitt og þetta, en það eru breytingar á ljósmyndatækni símanna sem vakið hafa mesta athygli. Er Pixel 3 búinn ljósmyndaflögu sem getur tekið margar myndir sam- tímis og sjálfkrafa valið þá bestu. Einnig er síminn með gervigreind sem blandar saman myndum með mismunandi lýsingartíma til að búa til ljósmynd með mjög mikilli skerpu. Af öðrum framförum má nefna að þjónustuforrit Google getur núna svarað þegar símtal berst úr grun- samlegu númeri og látið eiganda símans vita um hvað málið snýst áð- ur en hann ýmist lokar fyrir viðkom- andi númer eða hringir til baka. ai@mbl.is Google-sími með mynda- vélina í aðalhlutverki NÁM: Stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 2000; B.Sc.- gráða í hagfræði frá Háskóla Íslands 2003; M.Sc. í hagfræði frá Háskóla Íslands 2005, fékk rannsóknarstyrk til að fara til Ástralíu og Japans til að rannsaka ál- og raforkuiðnaðinn. M.Sc.-gráða í fjármálum fyrirtækja frá Háskóla Íslands. Lög- giltur verðbréfamiðlari frá Háskólanum í Reykjavík 2010. STÖRF: Hagfræðingur hjá sjávarútvegsráðuneytinu í tvö ár; stundakennari við Háskóla Íslands í tíu ár; yfirmaður lánamála og sjóðastýringar hjá Landsvirkjun í sjö ár; fjármálastjóri Greenqloud í tvö ár; í stjórn Almenna lífeyrissjóðsins í fjögur ár og fjármálastjóri Guide to Iceland í eitt ár. Forstjóri frá október 2018. ÁHUGAMÁL: Það er nauðsynlegt að rækta líkama og sál ef maður hefur mikið á sinni könnu og þess vegna stunda ég líkamsrækt og útivist til að fá útrás. Eitt það skemmtilegasta sem ég geri er að ferðast, hvort sem það er innanlands eða erlendis. FJÖLSKYLDUHAGIR: Ég á einn son sem heitir Sveinn Val Davíðsson. HIN HLIÐIN

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.