Morgunblaðið - 11.10.2018, Page 6
6 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2018
Tölfræðingurinn Nassim Taleb hefur
fjallað um það í bókum sínum að oft
eru það sjaldgæf og ófyrirsjáanleg
stóráföll sem móta söguna meira en
nokkuð annað. Hann tiltekur fyrri
heimsstyrjöldina, endalok Sovétríkj-
anna og árásirnar á Tvíburaturnana
sem dæmi um slíka viðburði, svokall-
aða „svarta svani“, sem komu flestum
í opna skjöldu og sneru öllu á haus.
Ef Taleb myndi skoða íslenska
hagkerfið og leita þar að svörtum
svönum myndi hann sennilega beina
sjónum sínum að sjávarútveginum,
enda undirstöðuatvinnugrein. Ef til
vill myndi Taleb segja að rétt eins og
við eigum að gæta vel að því hvernig
hámarka megi veiðar og verðmæta-
sköpun, eða hvernig best væri að
reikna út upphæð veiðigjalda, þá
þurfi líka að skoða hvers konar stór-
áföll geti dunið á greininni og hvernig
má þá reyna að forðast áföllin, eða
a.m.k. lágmarka af þeim tjónið.
Stóráföllunum þarf að gefa gaum,
enda færi allt á annan endann ef eitt-
hvað yrði til þess að spilla veiðum eða
sölu á verðmætum fisktegundum.
Mengun þynnist hratt út
Héðinn Valdimarsson, sviðsstjóri á
umhverfissviði Hafrannsókna-
stofnunar, segir að blessunarlega sé
fátt sem gæti valdið miklu tjóni í haf-
inu umhverfis Ísland, og líkurnar á
stóráföllum ekki miklar. Ef t.d.
kjarnorkuslys yrði í Norður-Íshafi,
Evrópu eða á austurströnd Banda-
ríkjanna, eða olía myndi leka úr skipi
úti á miðju Atlantshafi, þá er bæði
óvíst hvort hafstraumar myndu bera
mengunina til Íslands og líka hægt að
reikna með að mengunin þynnist svo
hratt út í risastóru hafinu að áhrifin
væru þverrandi. „Við sáum það t.d.
þegar Deepwater Horizon-olíulekinn
varð í Mexíkóflóa að mengunin var öll
takmörkuð við það svæði. Þynningin
er svo geysileg þegar komið er út á
meira dýpi,“ segir hann.
Slysin eru alvarlegri ef þau verða á
grunnsævi, þar sem þynningin er
minni, og segir Héðinn að þegar
gámaflutningaskipið Vikartindur
strandaði á Háfsfjöru árið 1997 hafi
margir óttast að efni gætu borist úr
skipinu og mengað viðkvæmar
hrygningarstöðvar. Í kjölfarið voru
gerðar þær breytingar að færa sigl-
ingaleiðir flutningaskipa fjær landinu
til að draga úr hættunni á slysum á
grunnsævi. Einnig var farið að huga
betur að viðbrögðum ef kæmi til
efna- eða olíuleka svo að tryggt væri
að réttur búnaður og þjálfaðir við-
bragðsaðilar væru til taks til að lág-
marka tjónið af slysum.
Héðinn bendir á að það séu ekki
bara óvænt stórslys sem geti valdið
búsifjum. „Til dæmis gæti súrnun
sjávar og vaxandi plastmengun verið
vandi sem við ættum að sinna enn
betur. Nú þegar má greina súrnun
umhverfis Ísland og plastmengun
orðin vandamál í Atlantshafi rétt eins
og annars staðar, og gæti spillt
ímynd íslensks hráefnis.“
Og ímyndartjón getur haft veruleg
áhrif. Er skemmst að minnast sjó-
mannanna sem veiða undan strönd-
um Fukushima og gátu ekki selt
aflann sinn á erlendum mörkuðum í
sjö ár eftir slysið sem varð í kjarn-
orkuverinu þar árið 2011. Voru neyt-
endur líka lengi efins um heilnæmi
kyrrahafsfisks, þrátt fyrir fullyrð-
ingar vísindamanna um að aukning
geislunar í fiski á svæðinu væri vart
greinanleg.
Evrópuþjóðir á varðbergi
Kristján Skarphéðinsson, ráðu-
neytisstjóri í atvinnuvega- og ný-
sköpunarráðuneytinu, segir að það sé
m.a. á vettvangi OSPAR sem hafðar
eru gætur á hættum sem steðja að
hafinu. „Að OSPAR-sáttmálanum
koma fimmtán Evrópuþjóðir og
starfa saman að umhverfisvernd í
Norðaustur-Atlantshafi. Var það
m.a. á þeim vettvangi sem aðild-
arlönd beittu sér fyrir því að kjarn-
orkuverinu í Sellafield yrði lokað
vegna losunar geislavirkra efna út í
sjó.“
Kristján bætir við að atvinnuvega-
og nýsköpunarráðuneytið, utanríkis-,
umhverfis- og auðlindaráðuneyti
starfi saman að því að samræma af-
stöðu Íslands á alþjóðasviði hvað
varðar málefni hafsins. „Er um að
ræða sérstakt verkefni sem miðar að
því að samræma afstöðu og efla for-
svar Íslands varðandi málefni hafsins
og er stýrt af Jóhanni Sigurjónssyni,
fyrrverandi forstjóra Hafrannsókna-
stofnunar,“ segir hann. „Einnig höf-
um við mælingar og gögn um ástand
hafsins áratugi aftur í tímann og get-
um greint hvers kyns frávik með
hraði.“
Hugað er að vöktun og forvörnum
víðar og nefnir Kristján að Norræna
ráðherranefndin hafi fjallað um hugs-
anlegar mengunarhættur í Rússlandi
og einnig aðstoðað Eystrasaltsríkin
við að bæta stöðu umhverfismála
með fjármagni og ráðgjöf. „Þá hefur
Norræni fjárfestingabankinn verið
nýttur til að færa þessi lönd nær okk-
ur á sviði umhverfismála og styðja
við uppbyggingu minna mengandi
starfsemi.“
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Skiljanlegt er að athygli
stjórnvalda og sjávar-
útvegsfyrirtækja beinist
einkum að því að veiðar séu
sjálfbærar og reynt sé að
skapa sem mest verðmæti
úr íslenskum fiski. En hefur
gleymst að huga að ytri
hættum sem gætu kippt
fótunum undan greininni?
AFP
Aflasýni frá Fukushima. Þar glíma sjómenn enn við ímyndarskaða og geng-
ur treglega að selja þó engin hætta sé lengur á geislavirkni í fiski á svæðinu.
Héðinn
Valdimarsson
Kristján
Skarphéðinsson
Frá 1940
www.velasalan.is
Sími 520 0000, Dugguvogi 4 , 104 Reykjavík
Bjóðum úrval af rafstöðvum og bátavélum frá Cummins
BÁTAVÉLAR RAFSTÖÐVAR
K38 850-1000HP C44 D5 / 72 kW
K50-CP 1050kW
K38-CP 762 kW
QSK 19 660-800HP
QSK38 920-1400HP
Þjónusta við
skip og báta
Varahluta
þjónusta
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Sigríður Kristinsdóttir sérfræðingur hjá Umhverfis-
stofnun segir áhrifin af olíuslysi úti á sjó ráðast af
mörgum þáttum. Díselolía hvarfist t.d. og gufi upp
hraðar en svartolía og valdi því minna tjóni, og ef
djúpt er til botns dreifist mengunin og þynnist út yfir
stærra svæði svo áhrifin verða ekki eins alvarleg.
„Olían getur drepið allt líf þar sem hún lendir. Fyrst
um sinn flýtur olían á yfirborði sjávar og er þá reynt að
koma í veg fyrir að hún berist upp í fjöru því þar getur
skaðinn orðið hvað mestur og alfleiðingarnar miklar
og langvarandi fyrir botndýra- og fuglalíf,“ útskýrir
Sigríður. „Smám saman leitar olían niður á hafsbotn og getur þar valdið
eituráhrifum og jafnvel kæft allt lífríki svo það gæti verið mörg ár að
jafna sig.“
Hvað gerist í olíuslysi?
Sigríður
Kristinsdóttir
Það versta sem gæti gerst
Atvinna
Allt um
sjávarútveg