Morgunblaðið - 11.10.2018, Síða 6

Morgunblaðið - 11.10.2018, Síða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2018 Tölfræðingurinn Nassim Taleb hefur fjallað um það í bókum sínum að oft eru það sjaldgæf og ófyrirsjáanleg stóráföll sem móta söguna meira en nokkuð annað. Hann tiltekur fyrri heimsstyrjöldina, endalok Sovétríkj- anna og árásirnar á Tvíburaturnana sem dæmi um slíka viðburði, svokall- aða „svarta svani“, sem komu flestum í opna skjöldu og sneru öllu á haus. Ef Taleb myndi skoða íslenska hagkerfið og leita þar að svörtum svönum myndi hann sennilega beina sjónum sínum að sjávarútveginum, enda undirstöðuatvinnugrein. Ef til vill myndi Taleb segja að rétt eins og við eigum að gæta vel að því hvernig hámarka megi veiðar og verðmæta- sköpun, eða hvernig best væri að reikna út upphæð veiðigjalda, þá þurfi líka að skoða hvers konar stór- áföll geti dunið á greininni og hvernig má þá reyna að forðast áföllin, eða a.m.k. lágmarka af þeim tjónið. Stóráföllunum þarf að gefa gaum, enda færi allt á annan endann ef eitt- hvað yrði til þess að spilla veiðum eða sölu á verðmætum fisktegundum. Mengun þynnist hratt út Héðinn Valdimarsson, sviðsstjóri á umhverfissviði Hafrannsókna- stofnunar, segir að blessunarlega sé fátt sem gæti valdið miklu tjóni í haf- inu umhverfis Ísland, og líkurnar á stóráföllum ekki miklar. Ef t.d. kjarnorkuslys yrði í Norður-Íshafi, Evrópu eða á austurströnd Banda- ríkjanna, eða olía myndi leka úr skipi úti á miðju Atlantshafi, þá er bæði óvíst hvort hafstraumar myndu bera mengunina til Íslands og líka hægt að reikna með að mengunin þynnist svo hratt út í risastóru hafinu að áhrifin væru þverrandi. „Við sáum það t.d. þegar Deepwater Horizon-olíulekinn varð í Mexíkóflóa að mengunin var öll takmörkuð við það svæði. Þynningin er svo geysileg þegar komið er út á meira dýpi,“ segir hann. Slysin eru alvarlegri ef þau verða á grunnsævi, þar sem þynningin er minni, og segir Héðinn að þegar gámaflutningaskipið Vikartindur strandaði á Háfsfjöru árið 1997 hafi margir óttast að efni gætu borist úr skipinu og mengað viðkvæmar hrygningarstöðvar. Í kjölfarið voru gerðar þær breytingar að færa sigl- ingaleiðir flutningaskipa fjær landinu til að draga úr hættunni á slysum á grunnsævi. Einnig var farið að huga betur að viðbrögðum ef kæmi til efna- eða olíuleka svo að tryggt væri að réttur búnaður og þjálfaðir við- bragðsaðilar væru til taks til að lág- marka tjónið af slysum. Héðinn bendir á að það séu ekki bara óvænt stórslys sem geti valdið búsifjum. „Til dæmis gæti súrnun sjávar og vaxandi plastmengun verið vandi sem við ættum að sinna enn betur. Nú þegar má greina súrnun umhverfis Ísland og plastmengun orðin vandamál í Atlantshafi rétt eins og annars staðar, og gæti spillt ímynd íslensks hráefnis.“ Og ímyndartjón getur haft veruleg áhrif. Er skemmst að minnast sjó- mannanna sem veiða undan strönd- um Fukushima og gátu ekki selt aflann sinn á erlendum mörkuðum í sjö ár eftir slysið sem varð í kjarn- orkuverinu þar árið 2011. Voru neyt- endur líka lengi efins um heilnæmi kyrrahafsfisks, þrátt fyrir fullyrð- ingar vísindamanna um að aukning geislunar í fiski á svæðinu væri vart greinanleg. Evrópuþjóðir á varðbergi Kristján Skarphéðinsson, ráðu- neytisstjóri í atvinnuvega- og ný- sköpunarráðuneytinu, segir að það sé m.a. á vettvangi OSPAR sem hafðar eru gætur á hættum sem steðja að hafinu. „Að OSPAR-sáttmálanum koma fimmtán Evrópuþjóðir og starfa saman að umhverfisvernd í Norðaustur-Atlantshafi. Var það m.a. á þeim vettvangi sem aðild- arlönd beittu sér fyrir því að kjarn- orkuverinu í Sellafield yrði lokað vegna losunar geislavirkra efna út í sjó.“ Kristján bætir við að atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, utanríkis-, umhverfis- og auðlindaráðuneyti starfi saman að því að samræma af- stöðu Íslands á alþjóðasviði hvað varðar málefni hafsins. „Er um að ræða sérstakt verkefni sem miðar að því að samræma afstöðu og efla for- svar Íslands varðandi málefni hafsins og er stýrt af Jóhanni Sigurjónssyni, fyrrverandi forstjóra Hafrannsókna- stofnunar,“ segir hann. „Einnig höf- um við mælingar og gögn um ástand hafsins áratugi aftur í tímann og get- um greint hvers kyns frávik með hraði.“ Hugað er að vöktun og forvörnum víðar og nefnir Kristján að Norræna ráðherranefndin hafi fjallað um hugs- anlegar mengunarhættur í Rússlandi og einnig aðstoðað Eystrasaltsríkin við að bæta stöðu umhverfismála með fjármagni og ráðgjöf. „Þá hefur Norræni fjárfestingabankinn verið nýttur til að færa þessi lönd nær okk- ur á sviði umhverfismála og styðja við uppbyggingu minna mengandi starfsemi.“ Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Skiljanlegt er að athygli stjórnvalda og sjávar- útvegsfyrirtækja beinist einkum að því að veiðar séu sjálfbærar og reynt sé að skapa sem mest verðmæti úr íslenskum fiski. En hefur gleymst að huga að ytri hættum sem gætu kippt fótunum undan greininni? AFP Aflasýni frá Fukushima. Þar glíma sjómenn enn við ímyndarskaða og geng- ur treglega að selja þó engin hætta sé lengur á geislavirkni í fiski á svæðinu. Héðinn Valdimarsson Kristján Skarphéðinsson Frá 1940 www.velasalan.is Sími 520 0000, Dugguvogi 4 , 104 Reykjavík Bjóðum úrval af rafstöðvum og bátavélum frá Cummins BÁTAVÉLAR RAFSTÖÐVAR K38 850-1000HP C44 D5 / 72 kW K50-CP 1050kW K38-CP 762 kW QSK 19 660-800HP QSK38 920-1400HP Þjónusta við skip og báta Varahluta þjónusta Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Sigríður Kristinsdóttir sérfræðingur hjá Umhverfis- stofnun segir áhrifin af olíuslysi úti á sjó ráðast af mörgum þáttum. Díselolía hvarfist t.d. og gufi upp hraðar en svartolía og valdi því minna tjóni, og ef djúpt er til botns dreifist mengunin og þynnist út yfir stærra svæði svo áhrifin verða ekki eins alvarleg. „Olían getur drepið allt líf þar sem hún lendir. Fyrst um sinn flýtur olían á yfirborði sjávar og er þá reynt að koma í veg fyrir að hún berist upp í fjöru því þar getur skaðinn orðið hvað mestur og alfleiðingarnar miklar og langvarandi fyrir botndýra- og fuglalíf,“ útskýrir Sigríður. „Smám saman leitar olían niður á hafsbotn og getur þar valdið eituráhrifum og jafnvel kæft allt lífríki svo það gæti verið mörg ár að jafna sig.“ Hvað gerist í olíuslysi? Sigríður Kristinsdóttir Það versta sem gæti gerst Atvinna Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.