Morgunblaðið - 11.10.2018, Page 8

Morgunblaðið - 11.10.2018, Page 8
8 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2018VIÐTAL lensku velferðarkerfi og að stofnunin sé sérstök að mörgu leyti. „VIRK kemur inn sem ný stofnun í velferð- arkerfi þar sem fyrir eru rótgrónar stofnanir sem mótast hafa í áranna rás. Þessar stofnanir hafa þurft að skapa rými fyrir VIRK þannig að svo sannarlega ruggum við aðeins bátnum. Fyrstu skrefin við að byggja upp VIRK voru ekki auðveld. Auðvitað hefur oft þurft að skoða málin og taka önnur skref. En ég lagði áherslu á það að á sama tíma og við þyrftum að taka skref- in, þurftum við einnig að vera tilbúin að við- urkenna að þau væru þau röngu. Að bakka þá út og taka ný,“ segir Vigdís er hún lítur til baka. „Þetta er svolítið sérstök stofnun. Að henni standa allir stóru aðilar vinnumarkaðarins og auk þess eiga velferðarráðuneytið og Lands- samtök lífeyrissjóða aðila í stjórn VIRK. Í lönd- unum í kringum okkur, t.d. annars staðar á Norðurlöndum, þá ber hið opinbera mikla ábyrgð á framfærslugreiðslum í veikindum. Þar ber hið opinbera líka ábyrgð á starfsendurhæf- ingunni. Í Þýskalandi og Bandaríkjunum eru það tryggingafélögin sem bera þessa ábyrgð þar sem atvinnurekendur kaupa tryggingu vegna veik- inda starfsmanna sinna. Hér á landi bera aðilar vinnumarkaðarins mjög mikla ábyrgð hvað varð- ar framfærslugreiðslur í veikindum. Þess vegna er það rökrétt að þessir aðilar byggi upp starfs- endurhæfingu,“ segir Vigdís. „Hér á landi færðu veikindagreiðslur frá at- vinnurekendum allt upp í sex mánuði og upp í 12 mánuði hjá hinu opinbera. Eftir það taka við sjúkrasjóðir stéttarfélaga sem greiða allt að 80% af launum. Flestallir í sex mánuði og í einstaka tilfellum í 9 mánuði. Þessir aðilar bera ábyrgð á þessum veikindagreiðslum. Síðan eru lífeyr- issjóðir að greiða stærri og stærri hlut í örorku- lífeyri hér á landi en þeir eru flestir á ábyrgð að- ila vinnumarkaðarins. Ábyrgð á framfærslugreiðslum eru því að mjög miklu leyti, fyrstu árin í veikindum, á ábyrgð aðila vinnumarkaðarins. Það er því eðlilegt að þeir beri ábyrgð á starfsendurhæfingunni þar sem mikilvægt er að tengja saman þessar greiðslur og ábyrgð allra aðila, bæði einstaklinga og fram- færsluaðila,“ segir Vigdís sem segir aðspurð að örorkugreiðslubyrði lífeyrissjóða sé mismikil. „Það er alveg ljóst að það eru lífeyrissjóðir þar sem sjóðfélagar eru t.d. að vinna líkamlega erfið störf, sem hafa meiri örorkubyrði en aðrir sjóð- ir,“ segir Vigdís. Eðlilegar spurningar Fyrstu árin var sjóðurinn eingöngu fjár- magnaður af framlagi frá atvinnulífinu. Í dag eru 80% af fjármögnun hans hins vegar greidd af at- vinnurekendum og lífeyrissjóðum en báðir þessir aðilar greiða 0,1% af heildarlaunum til VIRK. Ríkið greiðir helming af því hlutfalli og stendur því á bak við 20% af fjármögnun sjóðsins. Árið 2017 voru rekstrartekjur VIRK tæplega þrír milljarðar króna, þar af 2,4 milljarðar sem komu frá iðgjöldum og 600 milljónir sem komu frá rík- inu. Í ljósi þess mikla fjármagns sem veitt er í starfsemina má velta því fyrir sér hvers vegna nýgengi örorku sé jafn mikið og raun ber vitni. Hér mætti nefna tölur úr fréttum síðustu daga þar sem fram hefur komið að 30% örykja með 75% örorkumat eða meira séu undir fertugu og að árið 2016 hafi nýgengi örorku í fyrsta skipti verið meira en náttúruleg fjölgun á vinnumark- aði. Sem þýðir einfaldlega það að innlendum starfsmönnum fækkar á vinnumarkaði. Vigdís segir þessa þróun á nýgengi örorku Það fór almennt ekki mikið fyrir starfsendur- hæfingu hér á landi fyrir stofnun starfsendur- hæfingarsjóðsins VIRK seinni hluta árs 2008. Vigdís Jónsdóttir var ráðin framkvæmdastjóri sjóðsins í ágúst það ár, rétt fyrir efnahagshrunið, og hóf því uppbyggingu sjóðsins á tímum blóð- ugs niðurskurðar hjá ríkisstofnunum. Hún keypti fartölvu fyrsta daginn í starfi, fékk lánaða eina skrifstofu hjá ASÍ og við tók skipulagning á öllu starfi sjóðsins. Í dag starfa 50 manns á skrif- stofu VIRK, auk annarra 50 ráðgjafa sem starfa um land allt fyrir sjóðinn í samstarfi við stétt- arfélög. Um 2.400 einstaklingar eru nú í þjónustu hjá VIRK og í lok ársins 2017 hafði sjóðurinn varðað veginn fyrir yfir 7 þúsund einstaklinga aftur inn á vinnumarkaðinn. Í dag hefur VIRK tekið á móti um 15 þúsund einstaklingum í þjónustu og veltir sjóðurinn jafn- framt yfir þremur milljörðum á ári. Vigdís segist stolt af starfi sjóðsins, nú er hún fagnar 10 ára starfsafmæli, en er jafnframt meðvituð um að sjóðurinn standi frammi fyrir krefjandi verk- efnum. Þau séu hins vegar ekki aðeins á borði þeirra hjá VIRK heldur velferðarkerfisins í heild sinni. Þegar VIRK Starfsendurhæfingarsjóður tók til starfa árið 2008 átti hann að vera hluti af stórum kerfisbreytingum. „Staðreyndin er hins vegar sú að frá því að VIRK tók til starfa fyrir 10 árum hafa engar aðrar kerfisbreytingar átt sér stað til að styðja við það markmið að draga úr nýgengi örorku og auka þátttöku einstaklinga á vinnumarkaði,“ segir Vigdís við ViðskiptaMogg- ann. „Svolítið sérstök stofnun“ Það er ekki endilega auðvelt að staðsetja VIRK í velferðarkerfinu. Að sögn Vigdísar á sjóðurinn hvorki að vera heilbrigðisþjónusta né félagsþjónusta en að hennar mati náðist hins vegar ákveðin sátt og skilningur um hlutverk sjóðsins með lögum nr. 60/2012 um atvinnu- tengda starfsendurhæfingu og starfsemi endur- hæfingarsjóða. Þrátt fyrir það eru grá svæði víða á milli þjónustu mismunandi stofnana velferð- arkerfisins og ekki alltaf skýrt hver ber ábyrgð á hverju. „Við berum ekki ábyrgð á því að veita grund- vallarheilbrigðisþjónustu sem heilbrigðiskerfið á að veita. Þegar einstaklingur veikist eða slasast þá fær hann eðlilega heilbrigðisþjónustu frá heil- brigðiskerfinu. Þegar hún dugar ekki til þess að viðkomandi fari aftur í vinnu komum við að mál- inu. Flestir sem veikjast eða slasast fara í vinnu án þess að þurfa starfsendurhæfingu. En þegar fólk kemur inn til okkar er oft um að ræða mjög flóknar aðstæður sem krefjast samstarfs margra aðila. Um það snýst starfsendurhæfingin hjá okkur,“ segir Vigdís. „Þessi þjónustukerfi skarast. Við erum t.d. með félagsþjónustuna, Tryggingastofnun, lífeyr- issjóði og Vinnumálastofnun. Innan heilbrigð- iskerfisins eru síðan stofnanir eins og heilsu- gæslan, Landspítalinn og ýmsar endur- hæfingarstofnanir. Ábyrgð hvers aðila er skýr að mörgu leyti en það er fullt af gráum svæðum og þau verða alltaf grá. Það sem er svo mikilvægt í þessu er að þessar ólíku stofnanir og kerfi finni sér leiðir til að tala saman með hagsmuni ein- staklingsins að leiðarjósi,“ segir Vigdís. Aðspurð segir hún að þetta samtal megi ganga betur en að hún leyfi sér að vera bjartsýn í ljósi þess að mikil vinna eigi sér nú stað innan velferðarráðu- neytisins sem miði að aukinni samhæfingu og samtali milli þessara stofnana. Vigdís segir að VIRK hafi ruggað bátnum í ís- eðlilega vera áhyggjuefni. Hún segir að um þriðj- ungur af þeim sem leiti til VIRK séu ein- staklingar undir þrítugu og að hlutfallið hafi far- ið hækkandi á undanförnum árum. „Á árinu 2014 voru 19% af nýjum einstaklingum í þjónustu VIRK undir 30 ára en á árinu 2017 var þessi tala komin upp í 28%. Þetta er alvarleg þróun sem þarf að skoða betur og greina. Vert er þó að hafa í huga að á síðastliðnum árum hefur vitund ein- staklinga um þjónustu VIRK aukist og getur það einnig hafa haft áhrif á fjölgun í þessum hópi.“ Vigdís bendir einnig á í því samhengi að lögin um VIRK frá 2012 hafi opnað á þjónustu sjóðsins fyrir alla sem eru 16 ára og eldri og geti og vilji taka þátt í starfsendurhæfingu. Þjónustan hafi fyrir þá breytingu aðeins verið í boði fyrir þá sem höfðu reynslu af vinnumarkaði. Eins og fyrr segir hafa miklir fjármunir verið lagðir í starfsemi VIRK og segir Vigdís að það sé eðlilegt að menn spyrji sig hvers vegna þróunin á nýgengi örorku sé á þennan veg en aftur á móti sé ekki sé rétt að einblína á VIRK. „Eðlilega spyrja menn spurninga í því sam- hengi. Ég hef svarað því til að þegar sjóðurinn var stofnaður árið 2008 þá átti VIRK að vera einn hluti af stórum kerfisbreytingum. Það hefur hins vegar ekkert gerst annað en það að VIRK var búið til. Það hefur ekkert breyst í öllu fram- færslu- og stuðningskerfinu. Starfsendurhæfing ein og sér getur ekki skilað þeim árangri að draga úr nýgengi á örorku. Þetta þarf að hanga saman og það er mikilvægt að horfa á þetta í samhengi,“ segir Vigdís og heldur áfram: „Við getum alveg sýnt fram á það með tölum frá okkur að við séum að skila mjög góðum ár- angri. Ráðgjafafyrirtækið Talnakönnun metur ávinning okkar frá síðasta ári upp á 14 milljarða miðað við rekstrarkostnað sem var 2,8 millj- arðar. Reiknaður meðalsparnaður á einstakling er 12,6 milljónir á síðasta ári,“ segir Vigdís og bendir einnig á að þjónustukannanir sýni fram á að fólk sem fer í starfsendurhæfingu hjá VIRK sé ánægt með þjónustuna og meti að hún auki bæði starfsgetu þeirra og lífsgæði. „Við getum einnig sýnt fram á það að um 80% af einstaklingum sem útskrifast frá okkur fara í einhverja virkni. Allar þær tölur sem við getum sýnt fram á eru jákvæðar út frá starfseminni sem slíkri. En við þurfum líka að hafa það í huga að það er ekki nema hluti af einstaklingum sem fara á örorkulífeyri sem kemur til okkar. Við vit- um ekkert hvað verður um aðra. Það hvernig það er metið hvort fólk eigi rétt á örorkulífeyri eða ekki liggur síðan hjá Tyggingastofnun. Á það höfum við engin áhrif,“ segir Vigdís og bendir einnig á að helmingur einstaklinga sem fara á ör- orku hjá Tryggingastofnun hefur ekki verið í starfsendurhæfingu hjá VIRK. Það sé því ekki sanngjarnt eða raunhæft að meta árangur af starfsemi sjóðsins út frá stærðum sem eiga sér fjölmarga og sterka áhrifavalda aðra en þá sem snúa að starfsendurhæfingu og skipulagningu hennar. Laga þarf kerfislægar hindranir Í þessu samhengi mætti nefna skort á úrræð- um í heilbrigðisþjónustu og nefnir hún sem dæmi aðgengi að geðlæknum og sálfræðingum. „Það er of algengt að fólk komi til okkar þar sem það hef- Nauðsynleg forsenda fy Pétur Hreinsson peturhreins@mbl.is Miklir fjármunir hafa verið lagðir í starfsendurhæfingarsjóðinn VIRK á und- anförnum árum. Í ljósi varhugaverðrar þróunar á nýgengi örorku segir Vig- dís Jónsdóttir, framkvæmdastjóri VIRK, að eðlilegt sé að menn spyrji spurninga en hún bendir á að ekki sé rétt að einblína á starfsendurhæfing- arsjóðinn í því samhengi og að víðtækari kerfisbreytinga sé þörf. ” Það hefur ekkert breyst í öllu framfærslu- og stuðn- ingskerfinu. Starfsendur- hæfing ein og sér getur ekki skilað þeim árangri að draga úr nýgengi á örorku.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.