Morgunblaðið - 11.10.2018, Síða 10

Morgunblaðið - 11.10.2018, Síða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2018FRÉTTIR ©The Financial Times Limited 2014. Öll réttindi áskilin. Ekki til endurdreifingar, afritunar eða endurritunar með neinum hætti. Öll ábyrgð á þýðingum er Morgunblaðsins og mun Financial Times ekki gangast við ábyrgð á þeim. Af síðum Í Kísildal er fólk álíka hrifið af boð- um og bönnum stjórnvalda og það er af kippum á jarðskjálftamæl- unum. En núna virðast sum risa- fyrirtækin á vesturströnd Banda- ríkjanna orðin viljug til að gera reksturinn hjá sér jarðskjálfta- varinn, í ljósi þess hve mikið rót er í pólitíska undirlaginu. Í síðustu viku hafði Tim Cook, forstjóri Apple, ýmislegt að segja um verndun persónugagna – mál- efni sem er mjög í deiglunni vegna nýlegra gagnaleka hjá bæði Face- book og Google. Lýsti hann því yfir að verndun einkalífsins myndi verða eitt mikilvægasta verkefni 21. aldarinnar. Hann sagði við Vice News: „Ég er ekki sú manngerð sem er fylgjandi því að setja reglur um alla skapaða hluti og ég hef tröllatrú á hinum frjálsa markaði [en] þegar það sem markaðurinn skapar er ekki gott fyrir samfélagið þá verðum við að spyrja okkur: Hvað þurfum við að gera? Og ég held að það sé mikilvægt að stjórn- völd setji einhvers konar skorður.“ Takmörkuð geta stjórnvalda Ef við fylgjum þankagangi Cooks eftir þá koma í ljós ýmis svið þar sem hinn frjálsi markaður og nýj- asta tækni eru ekki að vinna sam- félaginu sérlega mikið gagn. En það er erfitt að sjá hvernig stjórnvöld geti mögulega brugðist við nógu hratt, af nægilegri sérþekkingu, og á nægilega alþjóðlegan skala, til að geta náð utan um þær áskoranir sem fylgja umbreytandi áhrifum nýjustu tæknilausna, og það jafnvel þó að stjórnmálamennirnir væru allir af vilja gerðir að grípa í taum- ana. Kannski þarf að leita annarra leiða. Í nýjasta tölublaði tímaritsins MIT Technology Review er rýnt í mörg þessara nýju samfélagsvanda- mála og er lesandinn spurður: „Tæknin ógnar lýðræðinu. Hvernig getum við bjargað því?“ Stutta svarið er: með miklum erf- iðismunum. Tímaritið varpar m.a. ljósi á hvernig auglýsingadrifin viðskipta- módel samfélagsmiðlanna hafa greitt leiðina fyrir víðtækar per- sónunjósnir og bjögun almennings- viðhorfsins. Tölvuforrit geta apað eftir hegðun mannfólksins en reyn- ast geyma tölvukóða sem gerir þau fordómafull í viðhorfum sínum. Nú þegar getum við horft á mjög sann- færandi „djúpfölsuð“ (e. deepfakes) myndbönd á tölvuskjánum. En pólitískar áskoranir eru bara ein hlið á peningnum. Á sama tíma og tæknin virðist hafa alla burði til að snarauka framleiðni okkar, þá er hún líka að breyta því hvernig við náum að þrífast og dafna innan hagkerfisins. Gigg-hagkerfið hefur grafið undan réttindum launafólks og valdið því að hluti launþega býr við skert tekjuöryggi. Samkeppn- isyfirvöld eiga fullt í fangi með að halda í við fyrirtæki á borð við Amazon. Það mætti líta á þannig fé- lög, sem búa yfir ógrynni gagna, sem sölutorg með einum ráðandi innherja, frekar en hefðbundin fyr- irtæki af nokkru tagi. Vandinn sem þau sköpuðu Svo vitnað sé í litrík orð Martin Reeves, stjórnanda hugveitunnar BCG Henderson Institute, þá eru tæknifyrirtækin farin að „rekast ut- an í afleiðingar gjörða sinna“. Hann heldur því fram að núna sé það þessum fyrirtækjum fyrir bestu að sammælast um það hver sé best til þess fallinn að fara með hlutverk „dómarans“ þegar ný vandamál skjóta upp kollinum. „Það er af- spyrnu slæm hugmynd að ætla að græða mikið af peningum í leik þar sem enginn er dómarinn,“ segir Reeves. „Ég legg þessa spurningu fyrir tæknifyrirtækin: hvaða stefnu hafið þið í dómaramálum?“ Þetta er ekki auðveld spurning fyrir tæknifyrirtæki sem hegða sér enn eins og herská sprotafyrirtæki frekar en risastór og alþjóðleg fé- lög. Og þess utan þá kalla nýjar áskoranir á alveg nýja tegund af svörum. Henderson ýjar að því að hægt sé að læra af reynslu eldri atvinnu- greina. Sem dæmi hefur lyfjageir- inn notið góðs af því að bandaríska Matvæla- og lyfjaeftirlitið hefur sett fyrirbyggjandi reglur. Með því að láta ný lyf fara í gegnum strangt matsferli er eins og stjórnvöld og fyrirtæki fari með sameiginlega ábyrgð á lyfjamálum, og eykur það tiltrú almennings. Flugsamgöngur urðu líka mun öruggari eftir að sjálfstæðar stofn- anir létu sérfræðinga rannsaka hvert einasta flugslys og gátu gefið fyrirmæli um hvað skyldi bæta. Það mætti alveg setja sams konar sérfræðingaráð á laggirnar til að rannsaka það þegar forrit „brot- lenda“. Einkareknar eftirlitsstofn- anir eins og matsfyrirtækin S&P og Moody‘s fá greitt fyrir að leggja mat á rekstur annarra fyrirtækja og hjálpa til við að búa til sk. „traustsvörur“ (e. trust goods). Þau runnu rækilega á rassinn í fjár- málakreppunni en geta samt enn þjónað mikilvægu hlutverki í fjár- málageiranum. Dreifstýrt traust Forvitnilegast af öllu er ef til vill að skoða hvernig nýta má dreif- stýrð traustsmódel, eins og við þekkjum frá Wikipediu, Uber og Airbnb, til að bæta eftirlit og laga- setningu. Á vissan hátt þá gegnir Uber nú þegar eftirlitshlutverki í viðskiptum ökumanna og farþega með því að leyfa þeim að gefa hvor öðrum einkunn. Væri kannski hægt að fá notendur Uber til að gefa fyr- irtækinu sjálfu einkunn fyrir stefnu sína og rekstraraðferðir? Ættu tæknifyrirtækin að leyfa starfs- mönnum sínum, sem heyrast æ oft- ar tjá sig um siðferðisleg vafamál, að vera einnig í hlutverki fulln- ustuaðila? Rachel Botsman, höfundur bók- arinnar Who Can You Trust?, færir sannfærandi rök fyrir því að senn sé á enda það skeið sem fólk treysti stofnunum. Traustið sé einfaldlega of lemstrað eftir fjármálakreppuna, Íraksstríðið og aukið gagnsæi sem ný tækni hefur haft í för með sér. Núna er að renna upp nýtt tímabil dreifstýrðs traust þar sem tæknin verður í hlutverki milligöngu- manns. En þær breytingar sem eru í uppsiglingu verða flóknar, ófyr- irsjáanlegar og jafnvel hættulegar. Tæknifrumkvöðlar skilja betur en flestir hvaða breytingar eru að eiga sér stað, og þeir gætu verið í lykilhlutverki við að lágmarka hættuna. Þörfin er mikil – og mark- aðstækifærin sömuleiðis – fyrir ný- sköpun á sviði eftirlits og reglna. Tæknifyrirtæki ættu að hafa mikla hagsmuni að verja með því að sanna að þau afleitu samfélagslegu vandamál sem þau áttu þátt í að skapa eru bara villa í forritinu, en ekki óbreytanlegur hluti af þessum nýja heimi sem þau hafa skap- að. Kísildalur þarf á skjálftavörnum að halda Eftir John Thornhill Með nýrri tækni hafa orðið til ný vandamál og stjórnvöld eru ekki endilega best til þess fallin að leysa þau. AFP Meira að segja frjálshyggjumaðurinn Tim Cook telur að einhvers konar aðgerða sé þörf, og jafnvel ríkisinngripa. Halldór Már Sverrisson Viðskiptafræðingur Löggiltur fasteignasali Löggiltur leigumiðlari 898 5599 halldor@atvinnueign.is Síðumúli 13 - 108 Reykjavík - S. 577 5500 - atvinnueign.is Til leigu eða sölu 389,3 fm atvinnuhúsnæði á jarðhæð, eins möguleiki á að kaupa 166,2 fm á 2. hæð. Eignin skiptist í tvö fastanúmer annars vegar er 389,3 fm verslunar-/skrifstofuhúsnæði á jarðhæð. Hins vegar 166,2 fmmjög vel búin skrifstofu- aðstaða á 2. hæð í lyftuhúsi. Gott aðgengi að húsnæðinu. Verð - Tilboð óskast. TIL LEIGU EÐA SÖLU KLETTHÁLS 1 Allar nánari upplýsingar veitir Halldór Már í síma 898 5599 Fasteignamiðlun

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.