Morgunblaðið - 11.10.2018, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2018FÓLK
Miðhrauni 13 - Garðabæ - Sími 555-6444 - www.maras.is
Skipa- og bátavélar Gírar og stjórntæki
Löndunarkranar Skrúfubúnaður
TOIMIL
Bláa lónið Skipulagsbreyt-
ingar hafa verið gerðar hjá
Bláa lóninu og fer megin-
starfsemi þess nú fram inn-
an þriggja kjarnasviða; við-
skipta- og rekstrarsviðs,
fjármála- og upplýsingatæknisviðs og þróunar-, sölu- og markaðssviðs. Í
tilkynningu segir að breytingarnar endurspegli aukna áherslu á stafræna
þróun og samþættingu í rekstri félagsins.
Framkvæmdastjórar sviðanna verða Þórey G. Guðmundsdóttir, Helga
Árnadóttir og Már Másson. Þau taka jafnframt sæti í framkvæmdastjórn
Bláa lónsins, ásamt Grími Sæmundsen forstjóra og Garðari Gíslasyni, lög-
manni félagsins.
„Einn megindrifkraftur Bláa lónsins er viljinn til breytinga […],“ segir
Grímur Sæmundsen meðal annars í tilkynningunni.
Þrír nýir framkvæmdastjórar hjá Bláa lóninu
Umsvif fjármálaráðgjafar,
innra eftirlits og áhættu-
stjórnunar KPMG fara sívax-
andi auk þess sem þróun í
átt að stafrænni framtíð með
sjálfvirknivæðingu ferla og
rauntímaeftirliti er hröð. Því hefur KPMG fengið til liðs við sig þrjá nýja
meðlimi á ráðgjafarsvið.
Inn í áhættustjórnunarteymið kemur Sigurður Arnar Ólafsson en hann
kemur til starfa frá Cegal AS í Noregi þar sem hann hefur starfað sem
gæðastjóri í fimm ár. Í áhættustjórnunarteymið koma þau Hrafnhildur
Ólafsdóttir og Ingvar Björn Ingimundarson. Hrafnhildur Ósk hefur MSc
gráðu í fjármálum frá Queen Mary háskólanum í Lundúnum. Ingvar Björn
er með MSc gráðu í fjármálum frá háskólanum í Árósum en hann vann áð-
ur hjá Arion banka í viðskiptabankaþjónustu.
Þrjú ráðin í áhættustýringu og fjármálaráðgjöf
VISTASKIPTI
„Við lítum kannski ekki á okkur
sem týpíska tónlistarmenn. Þó að
við séum auðvitað tónlistarmenn
hefur þetta alltaf snúist um að reka
fyrirtæki. Þetta er framleiðslufyr-
irtæki sem selur vöru. Allt sem við
gerum er sniðið að þörfum þeirra
sem vinna með okkur og frá því að
við byrjuðum höfum við meira og
minna fylgt leiðbeiningum eða sýn
þeirra sem leita til okkar,“ segir
Ásgeir Orri Ásgeirsson, einn
þriggja meðlima í tónlistarútgáfu-
teyminu Stop Wait Go.
Með Ásgeiri í teyminu eru Pálmi
Ragnar bróðir hans og Sæþór
Kristjánsson. Þeir voru að vissu
leyti brautryðjendur í íslensku tón-
listarlífi og með þeim fyrstu til að
opna Íslendingum dyrnar að nú-
tímapopptónlist eins og heyrist í
Bandaríkjunum. Núorðið ættu
margir Íslendingar að þekkja af-
urðir Stop Wait Go. Frá árinu 2010
hafa þeir samið og framleitt mörg
af vinsælustu lögum landsins fyrir
listamenn á borð við Friðrik Dór,
Steinda jr., Pál Óskar og fleiri. Þeir
hafa einnig komið að fjölmörgum
öðrum verkefnum, gert vel lukkaða
auglýsingaherferð fyrir Inspired by
Iceland, og auglýsingar fyrir Gló og
Hagkaup svo eitthvað sé upptalið.
Fjölbreyttir tekjumöguleikar
Blaðamaður settist niður með Ás-
geiri í stúdíói útgáfuteymisins. Ný-
genginn út var rapparinn Herra
Hnetusmjör og það virðist nóg um
að vera hjá þríeykinu. Útgáfufyr-
irtækið stofnuðu þeir nýskriðnir úr
menntaskóla, 2010-11, og þremur til
fjórum árum síðar var tónlistar-
sköpun orðin full atvinna. En út-
gáfubransinn á Íslandi er nokkuð
skammt á veg kominn og því þurfa
Stop Wait Go-menn að bregða sér í
margra kvikinda líki.
„Tekjumöguleikarnir liggja í
rauninni í mörgum og fjölbreyttum
verkefnum, sem er mjög gaman.
Við erum að taka upp, við semjum
lög og útsetjum. Mixum, masterum
og allt þar á milli. Það er nátt-
úrlega alltaf einhver peningur í því
að reka stúdíó en við erum að
reyna að ýta tiltölulega óþekktum
markaði í rétta átt,“ segir Ásgeir
spurður um tekjumöguleikana í
þessum bransa. „Við viljum berjast
fyrir þeim sem eru á bak við tjöldin
eins og við, því það vill oft verða
þannig að pródúsentinn fær ekki
eins mikið og hann á skilið, hvorki
hvað varðar peninga né viðurkenn-
ingu,“ segir Ásgeir.
„Við erum nýbyrjaðir að semja
þannig að við getum fengið borgað
ef laginu gengur vel,“ segir Ásgeir
og bendir á að ýmsar greiðslur, t.d.
stefgjöld, séu farnar að skipta
meira máli fyrir þá félaga. Þær
greiðslur séu hærri en þær voru og
aukinn fjöldi laga úr smiðju Stop
Wait Go geti loksins skilað þeim
einhverju á þeim vettvangi. Þar
komi tónlistarveitur á borð við Spo-
tify sterkar inn og bendir Ásgeir í
því samhengi á greitt aðgengi að
stórum hópi sem hægt sé að nálg-
ast milliliðalaust, án plötufyrirtækja
eða sambærilegra aðila.
Starfsemin var frosin erlendis
„En við semjum líka þannig að
við tökum bara eina greiðslu af því
það veitir okkur mesta vernd. Fólk
leitar til okkar og kaupir ákveðna
þjónustu. Við semjum þá um eitt
verð í flestum tilfellum í skiptum
fyrir masterinn á laginu,“ segir Ás-
geir og á þar við hina áþreifanlegu
upptöku af laginu.
„Við hvetjum alla þá sem eru að
taka upp, gera takta eða semja tón-
list fyrir aðra á landinu að sjá til
þess fyrirfram að það gangi allir
jafnir út úr viðskiptunum,“ segir
Ásgeir.
Ásgeir segir að ástríða þeirra fé-
laga sé að geta einbeitt sér 100% að
því að semja popptónlist. Árið 2011
sömdu þeir við bandaríska umboðs-
skrifstofu en þeir bjuggu frá 2012-
13 í Los Angeles og aftur frá seinni
hluta árs 2013 til 2014. Það hafi
hins vegar ekki farið eins vel og
þeir vildu en þeir áttuðu sig fljótt á
því að samningarnir sem þeir gerðu
voru ekki fyrir þá og reyndu að
losna undan þeim.
„Það sem gerist svo er að um-
boðsskrifstofan hættir að sinna
okkur og skaffa okkur verkefni og
við hættum að vinna fyrir þá,“ segir
Ásgeir og bætir því við að samning-
urinn hefði líklegast verið ógildur
sökum vanefnda á Íslandi en hlut-
irnir séu flóknir í Bandaríkjunum.
Aðrir erlendir aðilar vildu ekki
semja við þá félaga þar sem þeir
voru skuldbundnir umboðsskrifstof-
unni. „Við gátum því ekki leitað á
önnur mið meðan þessi samningur
var í gildi því hvert sem við fórum
var samningurinn álitinn kvöð sem
aðrir útgefendur og umboðsmenn
höfðu enga ástæðu til að blanda sér
í. Á meðan við vorum skuldbundnir
þessum samningi var því í raun öll
starfsemi frosin erlendis,“ segir Ás-
geir, en samkvæmt ákvæði í samn-
ingnum var Stop Wait Go meðal
annars skylt að greiða til umboðs-
skrifstofunnar 15-20% hlut af öllum
tekjum þeirra fyrir verkefni sem
þeir útveguðu jafnvel sjálfir.
„Samningarnir sem við skrif-
uðum undir voru mjög einhliða. Við
vorum ungir og vitlausir og skrif-
uðum undir lélegan samning í góðri
trú í gegnum sameiginlega vini. Á
sínum tíma fannst okkur þetta frá-
bært tækifæri,“ segir Ásgeir.
„En seinna meir, síðustu þrjú,
fjögur árin, höfum við þurft að þola
virkilega erfiða tíma út af þessu.
Við hefðum viljað færa út kvíarnar
til Evrópu, en það var bara mjög
takmarkað aðgengi út af þessum
samningum. Við vorum fastir og
reyndum oft að rifta. En það var
enginn hvati fyrir umboðsskrifstof-
una til þess að sleppa okkur,“ segir
Ásgeir, sem segir að besta nið-
urstaðan hafi á endanum verið sú
að láta samninginn renna út.
Sjö árum síðar eru félagarnir
frjálsir menn, ef svo má að orði
komast, og standa þeim nú allar
dyr opnar. „Nú erum við t.d. að
byrja að gefa út tónlist undir okkar
eigin nöfnum og það er ýmislegt
skemmtilegt fram undan,“ segir Ás-
geir. „Við viljum gera lag sem verð-
ur vinsælt úti um allan heim. Það
er kannski okkar helsta ástríða í
þessum bransa,“ segir Ásgeir að-
spurður um markmið þeirra félaga.
„Það er auðvitað hellingur af pen-
ingum í þessu í Bandaríkjunum en
þú þarft ekki einu sinni að fara
þangað. Norðurlöndin, og lönd víð-
ar í Evrópu, Þýskaland, Austurríki
og Sviss, samsvara öðrum stærsta
tónlistarmarkaði í heiminum. Út-
gefendur nú til dags, í gegnum Spo-
tify, eru loksins byrjaðir að fá pen-
ing.“
Ljósmynd/Stefán John Turner
Ásgeir Orri stofnaði Stop Wait Go nýskriðinn upp úr menntaskóla.
Vilja ýta óþekktum markaði í rétta átt
Pétur Hreinsson
peturhreins@mbl.is
Útgefendur eru loksins
byrjaðir að fá þær tekjur
sem þeir eiga skilið að mati
Ásgeirs Orra Ásgeirssonar
hjá plötuútgáfuteyminu
Stop Wait Go.