Morgunblaðið - 11.10.2018, Side 14

Morgunblaðið - 11.10.2018, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2018FÓLK Miðhrauni 13 - Garðabæ - Sími 555-6444 - www.maras.is Skipa- og bátavélar Gírar og stjórntæki Löndunarkranar Skrúfubúnaður TOIMIL Bláa lónið Skipulagsbreyt- ingar hafa verið gerðar hjá Bláa lóninu og fer megin- starfsemi þess nú fram inn- an þriggja kjarnasviða; við- skipta- og rekstrarsviðs, fjármála- og upplýsingatæknisviðs og þróunar-, sölu- og markaðssviðs. Í tilkynningu segir að breytingarnar endurspegli aukna áherslu á stafræna þróun og samþættingu í rekstri félagsins. Framkvæmdastjórar sviðanna verða Þórey G. Guðmundsdóttir, Helga Árnadóttir og Már Másson. Þau taka jafnframt sæti í framkvæmdastjórn Bláa lónsins, ásamt Grími Sæmundsen forstjóra og Garðari Gíslasyni, lög- manni félagsins. „Einn megindrifkraftur Bláa lónsins er viljinn til breytinga […],“ segir Grímur Sæmundsen meðal annars í tilkynningunni. Þrír nýir framkvæmdastjórar hjá Bláa lóninu Umsvif fjármálaráðgjafar, innra eftirlits og áhættu- stjórnunar KPMG fara sívax- andi auk þess sem þróun í átt að stafrænni framtíð með sjálfvirknivæðingu ferla og rauntímaeftirliti er hröð. Því hefur KPMG fengið til liðs við sig þrjá nýja meðlimi á ráðgjafarsvið. Inn í áhættustjórnunarteymið kemur Sigurður Arnar Ólafsson en hann kemur til starfa frá Cegal AS í Noregi þar sem hann hefur starfað sem gæðastjóri í fimm ár. Í áhættustjórnunarteymið koma þau Hrafnhildur Ólafsdóttir og Ingvar Björn Ingimundarson. Hrafnhildur Ósk hefur MSc gráðu í fjármálum frá Queen Mary háskólanum í Lundúnum. Ingvar Björn er með MSc gráðu í fjármálum frá háskólanum í Árósum en hann vann áð- ur hjá Arion banka í viðskiptabankaþjónustu. Þrjú ráðin í áhættustýringu og fjármálaráðgjöf VISTASKIPTI „Við lítum kannski ekki á okkur sem týpíska tónlistarmenn. Þó að við séum auðvitað tónlistarmenn hefur þetta alltaf snúist um að reka fyrirtæki. Þetta er framleiðslufyr- irtæki sem selur vöru. Allt sem við gerum er sniðið að þörfum þeirra sem vinna með okkur og frá því að við byrjuðum höfum við meira og minna fylgt leiðbeiningum eða sýn þeirra sem leita til okkar,“ segir Ásgeir Orri Ásgeirsson, einn þriggja meðlima í tónlistarútgáfu- teyminu Stop Wait Go. Með Ásgeiri í teyminu eru Pálmi Ragnar bróðir hans og Sæþór Kristjánsson. Þeir voru að vissu leyti brautryðjendur í íslensku tón- listarlífi og með þeim fyrstu til að opna Íslendingum dyrnar að nú- tímapopptónlist eins og heyrist í Bandaríkjunum. Núorðið ættu margir Íslendingar að þekkja af- urðir Stop Wait Go. Frá árinu 2010 hafa þeir samið og framleitt mörg af vinsælustu lögum landsins fyrir listamenn á borð við Friðrik Dór, Steinda jr., Pál Óskar og fleiri. Þeir hafa einnig komið að fjölmörgum öðrum verkefnum, gert vel lukkaða auglýsingaherferð fyrir Inspired by Iceland, og auglýsingar fyrir Gló og Hagkaup svo eitthvað sé upptalið. Fjölbreyttir tekjumöguleikar Blaðamaður settist niður með Ás- geiri í stúdíói útgáfuteymisins. Ný- genginn út var rapparinn Herra Hnetusmjör og það virðist nóg um að vera hjá þríeykinu. Útgáfufyr- irtækið stofnuðu þeir nýskriðnir úr menntaskóla, 2010-11, og þremur til fjórum árum síðar var tónlistar- sköpun orðin full atvinna. En út- gáfubransinn á Íslandi er nokkuð skammt á veg kominn og því þurfa Stop Wait Go-menn að bregða sér í margra kvikinda líki. „Tekjumöguleikarnir liggja í rauninni í mörgum og fjölbreyttum verkefnum, sem er mjög gaman. Við erum að taka upp, við semjum lög og útsetjum. Mixum, masterum og allt þar á milli. Það er nátt- úrlega alltaf einhver peningur í því að reka stúdíó en við erum að reyna að ýta tiltölulega óþekktum markaði í rétta átt,“ segir Ásgeir spurður um tekjumöguleikana í þessum bransa. „Við viljum berjast fyrir þeim sem eru á bak við tjöldin eins og við, því það vill oft verða þannig að pródúsentinn fær ekki eins mikið og hann á skilið, hvorki hvað varðar peninga né viðurkenn- ingu,“ segir Ásgeir. „Við erum nýbyrjaðir að semja þannig að við getum fengið borgað ef laginu gengur vel,“ segir Ásgeir og bendir á að ýmsar greiðslur, t.d. stefgjöld, séu farnar að skipta meira máli fyrir þá félaga. Þær greiðslur séu hærri en þær voru og aukinn fjöldi laga úr smiðju Stop Wait Go geti loksins skilað þeim einhverju á þeim vettvangi. Þar komi tónlistarveitur á borð við Spo- tify sterkar inn og bendir Ásgeir í því samhengi á greitt aðgengi að stórum hópi sem hægt sé að nálg- ast milliliðalaust, án plötufyrirtækja eða sambærilegra aðila. Starfsemin var frosin erlendis „En við semjum líka þannig að við tökum bara eina greiðslu af því það veitir okkur mesta vernd. Fólk leitar til okkar og kaupir ákveðna þjónustu. Við semjum þá um eitt verð í flestum tilfellum í skiptum fyrir masterinn á laginu,“ segir Ás- geir og á þar við hina áþreifanlegu upptöku af laginu. „Við hvetjum alla þá sem eru að taka upp, gera takta eða semja tón- list fyrir aðra á landinu að sjá til þess fyrirfram að það gangi allir jafnir út úr viðskiptunum,“ segir Ásgeir. Ásgeir segir að ástríða þeirra fé- laga sé að geta einbeitt sér 100% að því að semja popptónlist. Árið 2011 sömdu þeir við bandaríska umboðs- skrifstofu en þeir bjuggu frá 2012- 13 í Los Angeles og aftur frá seinni hluta árs 2013 til 2014. Það hafi hins vegar ekki farið eins vel og þeir vildu en þeir áttuðu sig fljótt á því að samningarnir sem þeir gerðu voru ekki fyrir þá og reyndu að losna undan þeim. „Það sem gerist svo er að um- boðsskrifstofan hættir að sinna okkur og skaffa okkur verkefni og við hættum að vinna fyrir þá,“ segir Ásgeir og bætir því við að samning- urinn hefði líklegast verið ógildur sökum vanefnda á Íslandi en hlut- irnir séu flóknir í Bandaríkjunum. Aðrir erlendir aðilar vildu ekki semja við þá félaga þar sem þeir voru skuldbundnir umboðsskrifstof- unni. „Við gátum því ekki leitað á önnur mið meðan þessi samningur var í gildi því hvert sem við fórum var samningurinn álitinn kvöð sem aðrir útgefendur og umboðsmenn höfðu enga ástæðu til að blanda sér í. Á meðan við vorum skuldbundnir þessum samningi var því í raun öll starfsemi frosin erlendis,“ segir Ás- geir, en samkvæmt ákvæði í samn- ingnum var Stop Wait Go meðal annars skylt að greiða til umboðs- skrifstofunnar 15-20% hlut af öllum tekjum þeirra fyrir verkefni sem þeir útveguðu jafnvel sjálfir. „Samningarnir sem við skrif- uðum undir voru mjög einhliða. Við vorum ungir og vitlausir og skrif- uðum undir lélegan samning í góðri trú í gegnum sameiginlega vini. Á sínum tíma fannst okkur þetta frá- bært tækifæri,“ segir Ásgeir. „En seinna meir, síðustu þrjú, fjögur árin, höfum við þurft að þola virkilega erfiða tíma út af þessu. Við hefðum viljað færa út kvíarnar til Evrópu, en það var bara mjög takmarkað aðgengi út af þessum samningum. Við vorum fastir og reyndum oft að rifta. En það var enginn hvati fyrir umboðsskrifstof- una til þess að sleppa okkur,“ segir Ásgeir, sem segir að besta nið- urstaðan hafi á endanum verið sú að láta samninginn renna út. Sjö árum síðar eru félagarnir frjálsir menn, ef svo má að orði komast, og standa þeim nú allar dyr opnar. „Nú erum við t.d. að byrja að gefa út tónlist undir okkar eigin nöfnum og það er ýmislegt skemmtilegt fram undan,“ segir Ás- geir. „Við viljum gera lag sem verð- ur vinsælt úti um allan heim. Það er kannski okkar helsta ástríða í þessum bransa,“ segir Ásgeir að- spurður um markmið þeirra félaga. „Það er auðvitað hellingur af pen- ingum í þessu í Bandaríkjunum en þú þarft ekki einu sinni að fara þangað. Norðurlöndin, og lönd víð- ar í Evrópu, Þýskaland, Austurríki og Sviss, samsvara öðrum stærsta tónlistarmarkaði í heiminum. Út- gefendur nú til dags, í gegnum Spo- tify, eru loksins byrjaðir að fá pen- ing.“ Ljósmynd/Stefán John Turner Ásgeir Orri stofnaði Stop Wait Go nýskriðinn upp úr menntaskóla. Vilja ýta óþekktum markaði í rétta átt Pétur Hreinsson peturhreins@mbl.is Útgefendur eru loksins byrjaðir að fá þær tekjur sem þeir eiga skilið að mati Ásgeirs Orra Ásgeirssonar hjá plötuútgáfuteyminu Stop Wait Go.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.