Morgunblaðið - 11.10.2018, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 11.10.2018, Qupperneq 16
Viðskiptablað Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100, vidsk@mbl.is Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Stefán Einar Stefánsson fréttastjóri, ses@mbl.is Auglýsingar sími 5691111, augl@mbl.is Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent ehf. VIÐSKIPTA OGGINN VIÐSKIPTI Á MBL.IS Spyr hvert varaforðinn fór Primera Air skilur eftir sig skuldaslóð Skipulagsbreytingar hjá Bláa lóninu Biðst afsökunar á ummælum Keypt fasteignir á Spáni fyrir … Mest lesið í vikunni INNHERJI SKOÐUN Unnur Stefánsdóttir, lögfræðinemi og einn stofnenda Go ARGuide, segir í samtali við ViðskiptaMoggann að þátttakan í keppninni komi í kjölfar sigurs í frumkvöðlakeppni í Háskól- anum í Reykjavík, sem kennd er við fyrrverandi rektor skólans, Guðfinnu Bjarnadóttur. „Við unnum hugmynd- ina út frá því að hana væri auðvelt að skala upp og hún gæti gengið um all- an heim. Aðstandendum keppninnar hér heima fannst sem hugmyndin ætti möguleika í alþjóðlegu keppn- inni,“ segir Unnur. Go ARGuide er snjallsímalausn fyrir ferðamenn og gengur út á leið- sögn á ferðamannastöðum. Unnur segir að margir kannist við Pokemon Go-tölvuleikinn þar sem Pokemon- teiknimyndafígúrur geta birst upp úr þurru hvar og hvenær sem er og birst í símanum. „Þetta er svipuð hug- mynd. Ef þú ert til dæmis staddur við Hallgrímskirkju og kveikir á forrit- inu, þá kemur „lifandi“ leiðsögumaður sem fræðir þig um kirkjuna,“ segir Unnur en með lifandi er átt við hreyfi- mynd af raunverulegri manneskju. Eins og í Hollywood-myndum Um svokallaðan viðbættan veru- leika er að ræða, að sögn Unnar. „Þetta er svipað og hægt er að sjá í Hollywood-kvikmyndum þar sem leikari birtist inni í teiknimynd.“ Prufuútgáfa af forritinu er nú tilbú- in og verður hún notuð í keppninni til að sýna fram á gildi búnaðarins. Unn- ur segir að ef þeim auðnist að vinna keppnina gæti verðlaunaféð nýst þeim í frekari þróun, en það nemur um 2,5 milljónum króna. Sextíu og fimm teymi taka þátt í keppninni í ár, sem lýkur á laugardaginn kemur. Þar á meðal eru teymi frá heimsfrægum háskólum eins og Harvard í Banda- ríkjunum. Keppa við Harvard á HM Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Frumkvöðlafyrirtækið Go ARGuide er nú statt í Dan- mörku þar sem það keppir um heimsmeistaratitil há- skólanema í nýsköpun, University World Cup. Go ARGuide er snjallsímalausn fyrir ferðamenn og gengur út á leiðsögn á ferðamannastöðum. „Lifandi“ leiðsögumaður annast leiðsögnina. Þór Steinarsson thor@mbl.is Danmörk er ekki land ótæmandiauðlinda og Danir hafa að miklu leyti þurft að treysta á eigið hugvit og nýsköpun til að skapa öflugan efna- hag. Danir standa framarlega á ýmsumsviðum t.d. í hönnun og mat- vælaiðnaði. Lego, Bang & Olufsen, Søstrene Grene og Carlsberg eru örfá dæmi um magnað danskt hugvit. Í fyrrakvöld sögðu fjölmiðlar frá enneinu dæminu um slíkt þegar þeir upplýstu að Reykjavíkurborg greiddi um 750 þúsund krónur fyrir „höfund- arréttarvarin“ dönsk strá. Danskir aðilar náðu semsagt aðselja einhverjum hjá Reykjavík- urborg þá hugmynd að sniðugt væri að flytja sérstaklega til landsins strá til þess að gróðursetja fyrir utan bragga í Nauthólsvík. Þrátt fyrir að hér vaxi fátt annað en gras og strá. Stjórnmálamenn keppast nú um aðgagnrýna þessa meðferð á skattfé Reykvíkinga og sjálfur borg- arstjóri hefur meira að segja rofið þagnarbindindið til að fordæma málið. Um leið og ég tek undir mikið affram kominni gagnrýni get ég ekki annað en dáðst að hugmyndaflugi dönsku aðilanna sem náðu að selja Reykvíkingum strá. Það er þó spurn- ing hvort Reykjavíkurborg reyni að ógilda kaupin með vísan til misneyt- ingarákvæðis samningalaga og þess að Danirnir hafi nýtt sér einfeldni við- semjanda síns. Ég útiloka það ekki. Magnaðir Danir Um liðna helgi birti Morgunblaðiðviðtal við mann að nafni Mich- ael Ridley. Sunnudaginn 5. október 2008 hraðaði hann sér til Íslands ásamt tveimur samstarfsmönnum hjá fjárfestingarbankanum J.P. Morgan í þeirri viðleitni að sannfæra íslensk stjórnvöld um að bankakerfið væri hrunið og ekkert hægt að gera til að forða þeim hörmungum. Ríkisstjórnin og fylgihnettir henn-ar höfðu ástæðu til að treysta orðum þessa manns, fyrst önnur og ákveðin varnaðarorð dugðu ekki til. Ridley hefur lengi komið að skulda- bréfaútgáfu fyrir ríkissjóð Íslands og reyndar á vettvangi bankakerfisins einnig og hann hafði allt frá sumrinu 2008 varað við því að íslenska ríkið tækist á hendur ofboðslegar skuld- bindingar í þeirri viðleitni að halda við spilaborg sem með glæfralegum hætti hafði verið reist á grunni ódýrs lánsfjár árin á undan. En eitt vekur sannarlega undrunnú þegar Ridley hefur stigið fram og rætt um örlagadagana í októ- ber 2008. Það er sú staðreynd að Rannsóknarnefnd Alþingis um að- draganda og orsakir falls íslensku bankanna skuli ekki hafa látið sér detta það í hug að kalla hann til ráðu- neytis við sig í hinum miklu skýrslu- skrifum. Það hefði nefndinni verið í lófa lagið, enda margoft minnst á manninn í skýrslunni, ekki aðeins í tengslum við atburðina í októbermán- uði heldur einnig samskipti stjórn- valda, forsætisráðuneytis og Seðla- banka við manninn, mánuðina á undan. Það hefði beinlínis verið nauðsyn-legt að fá hans sjónarmið upp á yfirborðið við mat á því sem rétt var gert og ekki í gjörningaveðrinu öllu. Það er síst ofmælt í ljósi þess að þá- verandi iðnaðarráðherra hafði mann- inn fyrir þeirri skoðun að mögulega hefði mátt bjarga Kaupþingi einum banka. Nú er komið í ljós að fullyrð- ing ráðherrans stóðst ekki skoðun, kannski ekki frekar en mergjaðar lýsingar á snúðaáti og öðru sem hann taldi við hæfi að grípa til í þeirri við- leitni að krydda frásögn sína af þess- um dramatísku dögum sem seint líða flestum Íslendingum úr minni. Hvernig gat það farið fram hjá blessaðri nefndinni? Síðasta hrunmálið sem tekið er fyrir í héraðsdómi af alls tuttugu og þremur er komið á dagskrá. „Staddur í hálf- gerðum fáránleika“ 1 2 3 4 5 SETTU STARFSFÓLKIÐ Í BESTA SÆTIÐ RÉTTARRÍKIÐ ÞÓRODDUR BJARNASON

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.