Morgunblaðið - 03.10.2018, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 03.10.2018, Blaðsíða 3
Hardy stendur nú á þrítugu og ætti því að eiga nóg eftir á tanknum. Landsliðskonur snúa aftur Þjálfari kvennalandsliðsins, Ívar Ásgrímsson, segir reikna með því að deildin verði sterkari í vetur en síð- asta vetur og fagnar því sérstaklega að landsliðskonur snúi aftur á völlinn. „Deildin er auðvitað sterkari þegar fleiri erlendir leikmenn koma og þá eru fleiri lið sem styrkjast. Lið úti á landi ná að manna sín lið betur og geta æft betur á heimaslóðum. Ég held að deildin verði mjög spennandi og erfitt að spá fyrir um niðurstöð- una. Ég horfði á leikinn meistarar meistaranna og Keflavíkurliðið er greinilega sterkt. Þar fannst mér gaman að sjá að Bryndís Guðmunds- dóttir er komin aftur í slaginn. Hún stóð sig rosalega vel í þeim leik. Mað- ur hefur alltaf vitað hvað hún getur en það kom á óvart hversu góð hún var og þar af leiðandi styrkir hún lið Keflavíkur gríðarlega. Einnig eru ungar stelpur að koma upp eins og Sigrún Björg Ólafsdóttir í Haukum og hún var einnig frábær í þessum leik,“ segir Ívar og hann á von á því að Gunnhildur Gunnarsdóttir láti mjög til sín taka í Hólminum. „Gunn- hildur er komin til baka. Hún byrjaði aðeins í fyrra eftir barnsburð en nú er hún búin að ná undirbúnings- tímabili. Hún er mikill karakter og getur gert mikið fyrir Snæfellsliðið. Líklega skiptir meira máli að fá hana til baka en að fá útlending. Mér finnst sérstaklega jákvætt að fá leik- menn til baka eins og Bryndísi og Gunnhildi. Það styrkir deildina.“ Þeir sem fylgjast með deildinni munu sakna Helenu í vetur en á hinn bóginn eru það góð tíðindi fyrir landsliðið að öflugir leikmenn séu í atvinnumennsku erlendis. „Það er mjög jákvætt. Nú er hún í pró- grammi þar sem hún æfir tvisvar á dag og það skilar sér inn í landsliðið. Við erum einnig með Hildi Björgu Kjartansdóttur úti og hún spilar með góðu liði á Spáni. Leikur landsliðsins byggist nokkuð í kringum þær tvær. Þær eiga að draga vagninn í stiga- skorun og koma inn í landsliðsverk- efnin frá sterkum liðum,“ segir Ívar. Morgunblaðið/Árni Sæberg Toppbarátta? Val og Keflavík er spáð efstu sætunum. Dagbjört Samúelsdóttir og Embla Kristínardóttir eigast við. kja líklegir til afreka ÍÞRÓTTIR 3 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 2018  Arnar Grétarsson var á Kýpur um helgina þar sem hann ræddi við for- ráðamenn knattspyrnufélagsins APO- EL, félags sem náð hefur frábærum ár- angri í Meistaradeild Evrópu og Evrópudeildinni á síðustu árum. Arnar var síðast þjálfari Breiðabliks en var leystur frá störfum í byrjun tíma- bils í fyrra. Áður hefur hann meðal annars verið yfirmaður knattspyrnu- mála hjá AEK Aþenu í Grikklandi og Club Brugge í Belgíu. Hann er nú með- al að minnsta kosti þriggja kandídata í sams konar starf hjá APOEL, sam- kvæmt frétt kerkida.net.  Þjálfaraskipti hafa orðið hjá franska 1. deildar liðinu Nantes sem landsliðsmaðurinn Kolbeinn Sigþórs- son leikur með. Portúgalanum Miguel Cardoso, sem tók við liðinu í sumar, hefur verið sagt upp og hefur Bosníumaðurinn Vahid Halilhodzic tekið við liðinu en hann lék með liðinu á árum áður.  Franski bakvörðurinn Cédric D’U- livo framlengdi í gær samning sinn við FH-inga og gildir samningurinn út næstu leiktíð. D’Ulivo kom til FH í fyrra en varð fyrir alvarlegum meiðslum og kom lítið við sögu. Hann sneri aftur til baka seinni hlutann af tímabilinu í ár og lék átta leiki í Pepsi-deildinni og skoraði í þeim eitt mark.  Miðvörðurinn Óttar Bjarni Guð- mundsson hefur komist að sam- komulagi við knattspyrnudeild Stjörn- unnar um starfslok. Óttar Bjarni kom til Stjörnunnar frá uppeldisfélagi sínu Leikni R. í upphafi ársins 2017. Hann lék aðeins 10 deildarleiki í byrjunarliði Stjörnunnar í Pepsi-deildinni á ár- unum tveimur í Garðabæ; sex í fyrra en fjórum í sumar.  Arsenal hefur staðfest að tékkneski markvörðurinn Petr Cech verður frá keppni næsta mánuðinn eftir að hafa tognaði aftan í læri í 2:0 sigri Arsenal gegn Watford í ensku úrvalsdeildinni um síðustu helgi.  Fyrirliðinn Hugo Lloris hefur jafnað sig af meiðslum og verður í marki Tott- enham þegar liðið mætir Barcelona í Meistaradeild Evrópu á Wembley í kvöld. Verri fréttir eru af nokkrum öðr- um lykilmanna liðs- ins. Christian Erik- sen, Jan Verton- ghen, Dele Alli, Mousa Dem- bele og Serge Aurier missa allir af leikn- um í dag sem og leiknum við Cardiff á laugardag vegna meiðsla. Eitt ogannað Heiða Hlín Björnsdóttir frá Þór Ak. Katarina Matijevic frá Kvarner, Króatíu Farnar: Kristín B. Sigfúsdóttir, hætt María Björnsdóttir, veikindaleyfi Sara Diljá Sigurðardóttir í Fjölni BREIÐABLIK Þjálfari: Margrét Sturlaugsdóttir. Árangur 2017-18: 7. sæti, 11 sigrar og 17 töp. Komnar: Björk Gunnarsdóttir frá Njarðvík Bryndís Hanna Hreinsdóttir frá Stjörnunni Erna Freydís Traustadóttir frá Njarðvík Hulda Ósk Bergsteinsdóttir frá Njarðvík Kell Faris frá Bnot Hertzeliya, Ísrael Ragnheiður B. Einarsdóttir frá Haukum Þórdís Jóna Kristjánsdóttir frá Haukum Farnar: Auður Íris Ólafsdóttir í Stjörnuna Telma Lind Ásgeirsdóttir í Keflavík KR Þjálfari: Benedikt Guðmundsson. Árangur 2017-18: Sigurvegari í 1. deild, 24 sigrar og ekkert tap. Vann Fjölni 3:0 í úr- slitum. Komnar: Kiana Johnson frá Honka, Finnlandi Orla O’Reilly frá Sunbury, Ástralíu Vilma Kesänen frá Catz, Finnlandi Farnar: Alexandra Petersen í Fjölni Gunnhildur Bára Atladóttir til Bandaríkj. Kristbjörg Pálsdóttir, hætt Kristín Skatum Hannestad til Noregs Marín Matthildur Jónsdóttir í Val Farnar: Bryndís Hanna Hreinsdóttir í Breiðablik Ragna Margrét Brynjarsdóttir, meiðsli SNÆFELL Þjálfari: Baldur Þorleifsson. Árangur 2017-18: 6. sæti, 12 sigrar og 16 töp. Komnar: Angelika Kowalska frá Cournon, Frakkl. Árangur 2017-18: 5. sæti, 14 sigrar og 14 töp. Komnar: Alexandra Sveinsdóttir frá Njarðvík Auður Íris Ólafsdóttir frá Breiðabliki Florencia Palacios frá Marbo, Svíþjóð Jóhanna Björk Sveinsdóttir frá Skallagrími Ragnheiður Benónísdóttir frá Val Vigdís Þórhallsdóttir frá Grindavík óttir í Hauka as a Sicat arðsdóttir, hætt sdóttir í Stjörnuna gurðsson. mabili Morgunblaðið/Árni Sæberg Ólafsdóttir er komin í nnað ár í Breiðabliki. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Stjarnan Jóhanna Björk Sveinsdóttir lék undanfarin tvö ár með Skallagrími. Morgunblaðið/Golli Stjarnan Ragnheiður Benónísdóttir lék með Val í fyrra og lengst af ferlinum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.