Morgunblaðið - 20.10.2018, Blaðsíða 1
LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 2018
ÍÞRÓTTIR
Körfubolti Stjarnan er með fullt hús stiga á toppnum eins og Tindastóll og Njarðvík eftir tíu stiga sigur á
nýliðum Skallagríms. Skipti um gír í hálfleik. ÍR vann sömuleiðis tíu stiga sigur á nýliðum Breiðabliks. 2
Íþróttir
mbl.is
Í LISSABON
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
„Við bættum okkur mikið frá undan-
úrslitunum, sem er í sjálfu sér frá-
bært. Það var ljóst að Svíar og Danir
væru einnig með hörkulið. Niður-
staðan er þriðja sætið og við erum
ógeðslega ánægðar með það,“ sagði
Hekla Björt Birkisdóttir, fyrirliði
stúlknalandsliðsins í hópfimleikum, í
samtali við Morgunblaðið í gærkvöld
eftir að sveitin hlaut bronsverðlaun
á Evrópumeistaramótinu í hópfim-
leikum í Portúgal.
Íslenska sveitin fékk samtals
52.550 stig. Svíar fóru hreinlega á
kostum í keppninni og fengu samtals
55.000 stig og Danir 53.075 stig.
Finnar voru í fjórða sæti, nokkuð á
eftir íslenska liðinu. Norðmenn
höfnuðu í fimmta sæti og Bretar
voru sjöttu. Danirnir fengi 1.100
stigum meira en íslenska liðið fyrir
dansinn og það munaði um minna
þegar upp var staðið. Íslenska
stúlknasveitin fékk 800 stigum
meira í undankeppninni á miðviku-
dag.
„Gólfæfingar vega svo þungt og
þar vantaði okkur aðeins upp á.
Handstaðan var ekki nógu góð, það
dró okkur aðeins niður. Fiberdýnu-
stökkin okkar voru sjúklega góð en
það vantaði eitthvað lítið í viðbót í
trampolínstökkunum. En við erum í
sjöunda himni með árangurinn og
ánægðar eftir að hafa lagt hart að
okkur. Við komumst á pallinn,“
sagði Hekla Björt enn fremur og
brosti breitt.
Framfarir nægðu ekki
„Eins og ég hafði lofað eftir
undankeppnina náði liðið að toppa í
úrslitunum og stúlkurnar skiluðu
sínu en það dugði ekki til sigurs. Í
raun eru það vonbrigði að eins góð
frammistaða og þetta var hafi bara,
innan gæsalappa, dugað í þriðja
sæti,“ sagði Jónas Valgeirsson, einn
þjálfara stúlknalandsliðsins, í sam-
tali við Morgunblaðið.
„Stúlkurnar eiga eftir að hugsa til
baka eftir nokkra mánuði eða jafnvel
ár og komast að því að þátttakan var
mjög góð reynsla. Þetta er fyrsta
stóra skrefið hjá þeim inn í flottan
fimleikaferil.“
Vantaði nokkuð upp á
„Ég myndi ekki lýsa niðurstöðinni
sem vonbrigðum því krakkarnir
stóðu sig frábærlega allan tímann,“
sagði Ragnar Magnús Þorsteinsson,
einn þjálfara blönduðu unglinga-
sveitar Íslands í hópfimleikum, í
samtali við Morgunblaðið eftir að
sveitin hafnaði í fjórða sæti í úrslit-
um Evrópumótsins í gær. Sveitin
fékk samtals 47.000 stig. Danir urðu
Evrópumeistarar með 52.800 stig.
Þeir skutu Svíum ref fyrir rass í
lokaumferðinni. Svíar hlutu 52.100
stig og Norðmenn voru í þriðja sæti
með 47.750 stig.
Skemmst er frá að segja að ís-
lenski hópurinn náði sér ekki á strik
í dansi og í trampólínstökkum. Hann
var undir árangri sínum í undan-
keppninni í báðum greinum. Stökkin
á dýnunni tókust afar vel en nægðu
því miður ekki til þriðja sætis eins
og á síðasta Evrópumóti.
Ragnar þjálfari bar sig manna-
lega þegar Morgunblaðið rabbaði
við hann og sagði að tvö eða þrjú
stökk hefðu verið misheppnuð í
keppninni. Annars hefði niðurstaðan
verið frábær. Þegar hann var spurð-
ur út í ummæli eins keppanda liðs-
ins, Sólveigar Rutar Þórarinsdóttur,
í samtali við mbl.is að niðurstaðan
væri svekkjandi viðurkenndi Ragn-
ar að eitthvað væri til í því. „Krakk-
arnir stefna að sjálfsögðu hátt. Auð-
vitað vilja þau ná toppárangri en
þegar hann næst ekki þá verður
maður að sætta sig við orðinn hlut.
Það lögðu allir sig hundrað prósent
fram í keppninni,“ sagði Ragnar
Magnús Þorsteinsson, þjálfari
blandaða unglingalandsliðsins í hóp-
fimleikum.
Ljósmynd/Steinunn Anna Svansdóttir
Bronsverðlaunahafaar F.v. Hekla Björt Birkisdóttir, Birta Ósk Þórðardóttir, Harpa Jóhannsdóttir, Halla Sóley Jóhannsdóttir, Helena Heiðmundsdóttir,
Dagbjört Bjarnadóttir, Hildur Heiðmundsdóttir, Kristín Stefánsdóttir, Bryndís Guðnadóttir, Helga María Hjaltadóttir og Adela Björt Birkisdóttir.
Voru sáttar við bronsið
Stúlknalandsliðið kemur heim með verðlaun Munurinn á silfri og bronsi lá í
gólfæfingunum Blandaða unglingasveitin náði aldrei að sýna sitt allra besta
Ljósmynd/Kristinn Arason
Blandaður Stefán Ísak Stefánsson, Kristín Stefánsdóttir, Sólveig Rut Þórarins-
dóttir, Júlían Máni Rakelarson og Örn Frosti Katrínarson í keppninni í gær.
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Aron Pálmarsson bætti í gær öðrum
gullpeningi frá heimsmeistaramóti
félagsliða í stórt verðlaunasafn sitt
þegar Barcelona sigraði Füchse
Berlín, með Bjarka Má Elísson inn-
anborðs, í úrslitaleik mótsins í Doha
í Katar, 29:24.
Barcelona vann þar með mótið
annað árið í röð og í fjórða sinn á
sex árum en Aron var ekki kominn
til félagsins þegar keppnin fór fram
í ágúst árið 2017. Þá mættust sömu
lið í úrslitaleik og Barcelona vann
29:25.
Aron, sem fagnaði sigri í þessari
keppni með Kiel árið 2011, skoraði
tvö mörk úr fimm skotum fyrir
Barcelona í leiknum í gær en Bjarki
Már, sem missti af keppninni í fyrra
vegna meiðsla, var markahæstur í
þýska liðinu með fimm mörk úr
fimm skotum.
Þetta var fjórði úrslitaleikur
Füchse í röð í keppninni en liðið
vann hana árin 2015 og 2016 undir
stjórn Erlings Richardssonar og
með Bjarka Má innanborðs.
Þrír stórir á árinu
Aron er þar með búinn að vinna
þrjá stóra titla með Barcelona á
þessu ári, en liðið er spænskur
meistari og bikarmeistari 2018, auk
þess að vinna meistarabikar Spánar
og deildabikarinn þar í landi. Áður
hefur Aron unnið fjóra titla innan-
lands með Vezsprém í Ungverja-
landi, þýska meistaratitilinn fimm
sinnum og bikarinn tvisvar með
Kiel, ásamt því að verða tvisvar Evr-
ópumeistari með þýska liðinu.
Ólafur fagnaði fyrstur
Heimsmeistaramót félagsliða hef-
ur farið fram árlega frá 2010 og var
haldið þrívegis þar á undan. Það
hefur alltaf verið haldið í Doha
nema í tvö af fyrstu þremur skipt-
unum. Ólafur Stefánsson vann
keppnina fyrstur Íslendinga með
spænska liðinu Ciudad Real árið
2007, þá í Kaíró í Egyptalandi. Aron
fagnaði sigri árið 2011, ásamt Al-
freð Gíslasyni þjálfara, en þá lagði
Kiel lið Ciudad Real að velli í úrslita-
leiknum. Ári síðar tapaði Kiel fyrir
Atlético Madrid í úrslitaleik.
Annað
HM-gull í
safn Arons
Ljósmynd/Uros Hocevar
Sigursæll Aron Pálmarsson.