Morgunblaðið - 24.10.2018, Page 8

Morgunblaðið - 24.10.2018, Page 8
8 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 2018 Þóra Sigurðardóttir thora@mbl.is Hefurðu alltaf haft áhuga á matargerð? Ég hef alltaf haft áhuga á að borða góðan mat en ég held að það hafi ekki verið fyrr en ég flutti að heiman um tvítugt sem áhuginn fyrir matargerð kviknaði. Uppáhaldsmatur? Það er erfitt að velja, það er svo margt í uppá- haldi. Ég er rosalega hrifin af villibráð; hrein- dýri, rjúpum og gæs. Svo slær humar líka allt- af í gegn. Hvaða eldhústækis gætirðu ekki lifað án? Verður það ekki að vera Kitchen Aid-vélin? Það yrðu engar dýrindis tertur til ef ég hefði hana ekki. Hvað ætlar þú að bjóða upp á í næsta matarboði? Í næsta matarboði ætla ég að bjóða upp á æð- islegt laxa-taco, svo er ég að fara að baka litla karamelluostakökubita fyrir veislu sem koma inn á Gott í matinn-bloggið á næstu dögum. Jólamaturinn? Ég og kærasti minn höfum haldið jólin heima hjá okkur síðustu ár og fengið móður mína og systur í heimsókn. Ég hef nýtt jólin í að elda rétti sem rata sjaldnar inn á borð til mín, líkt og hreindýr og rjúpur. Við erum ekki enn orð- in vanaföst á aðalréttinn en eftir að við gerðum rjúpurnar með heimagerðri villibráðarsósu er líklegt að það muni festa sig í sessi. Þessi jólin verður matseðillinn þessi: Í forrétt er humar á franskbrauði með hvít- lauksrjómasósu, rjúpur í aðalrétt og toblerone-ísterta í desert. Uppáhaldskaka? Klassísk súkkulaðiterta með djúsí smjörkremi. Auðveldast að elda? Kjúklingur eða fiskur í ofni með kartöflum er algjör „go to“-réttur hjá mér þegar ég nenni ekki að elda. Fyrirmynd í eldhúsinu? Í auknablikinu eru aðalfyrirmyndirnar mínar í eldhúsinu allir þessir flottu matarbloggarar hérna á Íslandi. Hvaða fæðutegunda gætirðu ekki lifað án? Lífið væri allavega leiðinlegra ef það væri ekk- ert súkkulaði. Morgunblaðið/Eggert Kökumeistari Gígja Sigríður Guðjónsdóttir veit hvað þjóðin vill enda eru berjabombur alltaf gríðarlega vinsælar. Lífið væri leiðinlegra án súkkulaðis Gígja Sigríður Guðjónsdóttir er mikill meistari þegar matreiðsla er annars vegar og heldur úti stórskemmtilegu matarbloggi þar sem hægt er að finna spennandi uppskriftir – allt frá einföldum heimilismat upp í alls kyns sælkeragóðgæti sem gaman er að reyna við. Að auki bloggar Gígja á Gott í matinn en hér deilir hún með lesendum dásamlegri uppskrift auk þess sem við fengum að leggja fyrir hana nokkrar klassískar spurningar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.