Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.11.2018, Page 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.11.2018, Page 2
Hver er tilgangurinn með þessu málþingi? „Málþingið er hluti af Tannhjóli en Tjarnarbíó hefur verið að opna ferlið í leikhúsinu fyrir almenningi. Leikhópar hafa verið með allskonar uppákomur í því sambandi og við aðstandendur Rejúníon ákváðum að vera með málþing um efni leikritsins. Gestum í sal er velkomið að taka þátt og deila reynslusögum. Vonandi verður þetta kósí.“ Hvað geturðu sagt mér um Rejúníon sem frumsýnt verður í Tjarnarbíói 30. nóvember? „Leikritið fjallar um íslenska ofurkonu sem hefur staðið sig vel í öllu sem hún hefur tekið sér fyrir hendur. Síðan kemur að því að hún verður móðir og þá nær hún ekki að standa sig í því hlutverki vegna þess að hún er með fæðingarþunglyndi sem hún vill ekki takast á við. Verkið fjallar annars vegar um tengslaleysi móður og barns og hins vegar við manninn sinn, vini og samfélagið í heild.“ Er þetta þá dramatískt verk? „Já, en með kómísku ívafi. Húmor sem byggist á sársauka er oftar en ekki góður frásagnarmáti. Við skoðum líka ýmislegt sem er svo fyndið, eins og til dæmis hvernig við komum fram á sam- félagsmiðlum.“ Hvers vegna þetta efni? „Þegar ég var ólétt að fyrsta barni mínu upplifði ég sjálf með- gönguþunglyndi og ákveðið tengslaleysi. Gekk í gegnum alls- konar tilfinningar. Ég leitaði mér aldrei aðstoðar með þessar til- finningar en umræðan var lokaðri á þeim tíma en hún er í dag. Þegar ég varð aftur ólétt fór ég að skoða þetta betur og byrjaði að skrifa verkið í stað þess að kíkja til sálfræðings.“ Er þetta fyrsta leikritið þitt? „Ég hef verið í höfundasmiðju Leikfélags Hafnarfjarðar og skrif- að kvikmyndahandrit sem var leiklesið í Tjarnarbíói en þetta er fyrsta leikritið mitt í fullri lengd. Það hefur verið ótrúleg upplifun að fylgjast með þessu mikla fagfólki í leikhópnum Lakehouse vinna að uppfærslunni undir stjórn Árna Kristjánssonar enda er leikrit á blaði eitt en leiksýning annað. Mér líst mjög vel á þetta.“ Annars ertu hagfræðingur „Já, ég er hagfræðingur að mennt en vinn hjá umhverfissamtök- unum SEEDS. Í hagfræðinni var ég mikið að skoða mannlega hegðun og segja má að leikritaskrifin séu rökrétt framhald af því.“ Og ætlarðu að skrifa fleiri leikrit? „Já, ég stefni ótrauð að því.“ Morgunblaðið/RAX SÓLEY ÓMARSDÓTTIR SITUR FYRIR SVÖRUM Í FÓKUS 2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.11. 2018 Ritstjórn Árni Matthíasson arnim@mbl.is Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Tek það strax fram að ég er aðdáandi hvers kyns tyllidaga. Mín vegnamætti dúndra hverri einustu bandarísku, rússnesku eða afrísku hátíðinn í almanakið okkar, með eða án sælgætisflóðs, og það væri bara stuð. Ég er hins vegar einmitt þessa stundina undir áhrifum gamals grunn- skólabróður, Oddgeirs Einarssonar lögfræðings, en hann ákvað í vikunni að taka að sér að vera bæði gamli og leiðinlegi gaurinn eins og hann sagði sjálfur. Gefum honum orðið: „Ég verð að viðurkenna að mér hefur alltaf þótt það pínu- lítið sérstakt að myndrænt efni úr hryllingsmyndum sem haft er fyrir að halda frá börnum, sé allt í einu komið út um allt, m.a. fyrir sjónir lítilla barna.“ Vísaði hann þar til hrekkjavöku og hversu mikið skringidæmi það í rauninni er að morðingjalegur hryllingur og blóð sé orðið að barnaskemmtun. Kvikmyndaeftirlitið myndi án efa banna börnum undir 16 ára að vera á götum úti á hrekkjavöku. Börn og fullorðnir með exi í hausn- um, blóðug sár, hengingarólar um hálsinn, lítandi út eins og þau hafi lent í hrikalegum morðingjum, eða jafnvel verið dáin í góðan mánuð, það er allt í einu til fyrirmyndar meðan kvikmyndaeftirlitið bannar okkur ennþá að sýna krökkum undir 16 ára Bruce Willis fremja hetjudáðir í Die Hard. Ég sjálf, 41 árs, er svo hrædd við mörg hver þeirra að ég þorði ekki að merkja mig inn á Google-kortið á Vesturbæjargrúppunni sem ein af þeim sem gefa sælgæti. Ég er bara að velta fyrir mér hvort hrekkjavaka hafi eitthvað misskilist, er hrekkjavaka svona hrikalega blóðug og raðmorðingjaleg annars staðar í heim- inum eða eru búningarnir þar eitthvað fjölbreyttari? Prinsessur og bangsar besta skinn, sjúkraliðar og pípulagningamenn? Tek fram að ég er engan veginn búin að taka til í eigin garði, afkvæmi mín hafa verið dauðinn undanfarin ár en ég er hrifin af hugmyndinni um að tilveran sé samkvæm sjálfri sér. Ef hrekkjavaka er ókei og ekki bönnuð innan 16 vil ég geta sýnt stráknum mínum, án samviskubits, Harrison Ford í Air Force One og bjóða upp á jólamyndina Die Hard. Er okkur fræðilega mögulegt að banna þær hetjur en leyfa alblóðugu fólki með drápstól í kviðnum að skokka um hverfið? Leyfið þá Bruce Willis líka Pistill Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is ’Ef hrekkjavaka er ókeiog ekki bönnuð innan16 vil ég geta sýnt strákn-um mínum, án samvisku- bits, Harrison Ford í Air Force One og bjóða upp á jólamyndina Die Hard. Poul Poulsen Laugardalurinn er í uppáhaldi. Þar eru fjölbreyttar sundlaugar og pottar fyrir alla fjölskylduna. Rennibrautin er skemmtileg og aðstaðan góð. SPURNING DAGSINS Hver er uppáhalds- sundlaugin þín? Hafdís Einarsdóttir Laugardalurinn; það er styst fyrir mig að fara þangað. Svanhvít Leifsdóttir Vesturbæjarlaugin. Kaldi potturinn, gufan og heitu pottarnir eru í uppá- haldi. Ísar Hólm Sundlaug Akureyrar. Rennibraut- irnar eru svo skemmtilegar, sér- staklega Trektin. Ritstjóri Davíð Oddsson Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal Umsjón Eyrún Magnúsdóttir, eyrun@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. Forsíðumyndina tók Murdo MacLeod Efnt verður til málþings í Tjarnarbíói í dag, laugardag, kl. 13 í tengslum við leikritið Rejúníon eftir Sóleyju Ómarsdóttur sem frumsýnt verður á sama stað 30. nóvember. Fram koma, auk Sóleyjar, Sæunn Kjartansdóttir, Atli Bollason og Árni Kristjáns- son sem stjórnar umræðum. Ofurkonan verður móðir

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.