Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.11.2018, Blaðsíða 4
Átaksverkefnið Sýnum karakter
er upphaflega hugarfóstur dr.
Viðars og Valdimars Gunnars-
sonar, þjálfara hjá HSK, en fljót-
lega kom dr. Hafrún Kristjáns-
dóttir, lektor og sviðsstjóri
íþróttasviðs HR, inn í verkefnið á
móti Viðari. „Hugmyndin er sú
að við hljótum að geta þjálfað
sjálfstraust eins og við þjálfum
stökkkraft, getum þjálfað leið-
toga eins og við getum þjálfað
hraða og svo framvegis. Að við
getum þjálfað andlega færni allt
eins og líkamlega færni,“ út-
skýrir Viðar.
Hann segir að þrátt fyrir að til
hafi verið námskrár hjá íþrótta-
félögunum um líkamlega þjálfun
hafi þar ekkert verið að finna um
andlega þjálfun. Svo Viðar og
Valdimar lögðu drög að nám-
skrá yfir það hvaða þætti and-
legrar færni væri hægt að þjálfa
og á hvaða aldri. ÍSÍ og UMFÍ
tóku hugmyndinni opnum örm-
um og settu átaksverkefnið Sýn-
um karakter á laggirnar fyrir um
fjórum árum. Nú heimsækja þau
Hafrún og Viðar reglulega
íþróttafélög og fræða skipuleggj-
endur og þjálfara um námskrána
og hvernig hægt sé að byggja
upp andlega þáttinn, jafnt sem
hinn líkamlega, hjá ungum
íþróttaiðkendum.
„Við hjálpum þeim að ýta
verkefninu úr vör og að móta og
aðlaga það að sínum kúltúr.
Grunnefnið er samið af okkur,
um þessa lykilþætti sem við vilj-
um leggja áherslu á, en það á að
vera lifandi og það er mikil þekk-
ing úti í grasrótinni svo við sett-
um upp upplýsingasíður sem eru
skapandi og lifandi. Þar er tæki-
færi fyrir þjálfara til að senda inn
lýsingar á því hvað þeir eru að
gera sem virkar vel og deila sinni
reynslu, til að skapa meiri þekk-
ingu. Við lítum á þetta sem
verkfærakistu fyrir þá sem eru
að vinna með börnum og ung-
lingum til að hjálpa sér að
styrkja þessa þætti, andlega og
félagslega færni iðkenda.“
Margs konar fræðsluefni er að finna á
vefnum www.synumkarakter.is.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Sýnum karakter
INNLENT
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.11. 2018
Ósýnilega aflið í íþróttauppeldi
Í íþróttum höfum við gríðarlegttækifæri til að móta börn og þaðer eitt af því sem íþróttahreyf-
ingin á að gera. Hún hefur uppeldis-
legt gildi, það er eitt af verkefnum
íþróttafélaganna á Íslandi. Börnin
koma þar inn með
mjög opnum huga
og eru opin fyrir
þeim skilaboðum
sem þau fá í starf-
inu,“ segir dr. Við-
ar Halldórsson,
lektor í félagsfræði
við HÍ, en hann
hélt erindi á ráð-
stefnunni Sýnum karakter sem hald-
in var á föstudag í Háskólanum í
Reykjavík.
Viðar hefur notað félagsfræðina
til að skoða sérstaklega hvaða þættir
mynda þá menningu sem börn
ganga inn í þegar þau taka þátt í
íþróttastarfi. „Sá kúltúr sem við
fæðumst inn í hefur áhrif á okkur,
hann mótar og setur okkur skorður
og segir okkur hvernig við eigum að
vera og haga okkur. Það er eðli
menningar, ef við fæðumst á Íslandi
þá upplifum við aðra hluti og göng-
um að þeim sem gefnum en ef við
myndum t.d. fæðast í Brasilíu. Hið
félagslega umhverfi mótar okkur og
segir okkur hvað er æskilegt og
óæskilegt. Ef við svo vinnum með
umhverfið og umgjörðina þá getum
við haft áhrif á börn með beinum
hætti, með því að sýna þeim og segja
þeim, en líka með óbeinum hætti,
með stemningu og fordæmi – þannig
að ákveðin gildi og hegðun umlyki
þau svo þau taki þeim sem gefnum.
Menningin hefur áhrif og er eins og
ósýnilegt afl og í íþróttum hefur hún
rosaleg áhrif.“
Orðaval hefur áhrif
Þetta var í stuttu máli inntak erindis
Viðars, sem bar yfirskriftina „Að
byggja grunnstoðirnar: hvernig
virkar kúltúr sem ósýnilegt afl?“, en
þar lagði Viðar áherslu á tvo áhrifa-
ríka þætti sem fáir veita athygli
dagsdaglega en væri svo auðvelt að
breyta meðvitað og hafa þar með
mikil áhrif á andrúmsloftið sem
íþróttaiðkendur dvelja í. „Það eru
margir þættir sem skapa kúltúr en
dæmi um hvað íþróttafélögin geta
auðveldlega tamið sér er t.d. tungu-
málið; hvaða orð við notum og
hvernig við notum þau. Orðin eru oft
hlaðin einhverri merkingu, t.d. orðið
„klúðra“ sem hefur mjög neikvæða
merkingu og ýtir undir það að leik-
menn verði hræddir við að reyna,
hræddir við að klúðra. Börn eiga að
fá að prófa og gera fullt af mistökum
en með svona orðanotkun verða þau
hikandi og hrædd. Eins ef við notum
orðið „mistök“, það hefur líka nei-
kvæða merkingu. En orðið „tilraun“
er miklu jákvæðara. Að segja að ein-
hver hafi gert tilraun til að skora en
bara tókst ekki, er miklu betra en að
segja að hann hafi klúðrað skotinu.“
Þá nefnir Viðar algenga frasa sem
heyra megi þjálfara segja fyrir
mikilvæga leiki: „Við verðum að
vinna“ og „megum ekki tapa“ en
slíkt orðalag ýti undir stress og
kvíða iðkenda. „Eins hef ég heyrt
þjálfara tala um „foreldravandamál“
þegar þeir eru í raun að tala um
samskipti. Um leið og við stimplum
slík samskipti sem „vandamál“ þá
verða þau neikvæð og erfið, en þurfa
ekkert að vera það. Þetta er bara
dæmi um hvernig við getum breytt
því hvernig við tölum og um leið
breytt kúltúrnum dálítið.“
Hinn þátturinn sem Viðar segir
auðvelt að breyta, en jafnframt auð-
velt að líta framhjá, er hvernig þjálf-
arar og íþróttamenn nýta sér ýmis
táknræn samskipti og líkamstján-
ingu. „Hvað gerir þjálfari þegar leik-
maður í körfubolta kemst í gott færi
og skýtur framhjá? Sér leikmaður-
inn þjálfarann fórna höndum og fela
andlitið í höndum sér? Hvaða skila-
boð fær krakkinn þá, að hann sé að
„klúðra“ án þess að það sé sagt ber-
um orðum? Það þarf að hugsa út í
það og er svo auðvelt að breyta
þessu. Það eru þessir litlu hlutir sem
við getum hlúð að því við viljum
mynda kúltúr sem er stuðnings-
ríkur, uppbyggilegur, hvetjandi og
jákvæður fyrir íþróttaiðkendur.“
Einstakt íþróttamódel
Heyra má að þetta er Viðari hjart-
ans mál enda er hann einn upphafs-
manna átaksverkefnisins Sýnum
karakter, um þjálfun sálrænnar og
félagslegrar færni barna í íþróttum.
Hann segir Ísland standa nokkuð
framarlega í þessum efnum og
íþróttahreyfingar í öðrum löndum
horfi í síauknum mæli til Íslands.
Einn aðallykilinn að velgengninni
segir Viðar vera þá staðreynd að í
íþróttastarfi á Íslandi sé blandað
saman áhugamennsku og atvinnu-
mennsku, það er iðkun ánægjunnar
vegna sem og iðkun til árangurs.
„Á Íslandi hafa íþróttafélögin
meira uppeldislegt vægi en í lönd-
unum í kringum okkur. Við erum
líka að ná betri árangri með landslið-
unum, svo eftir er tekið, þannig að
við erum að ná árangri á hvorum
tveggja vígstöðvum. Við erum með
mun meiri þátttöku í íþróttastarfi en
í flestum öðrum löndum og brott-
fallið er minna og verður seinna.
Þetta eru allt merki um að við séum
að gera góða hluti. Þetta er ekki full-
komið og við getum gert betur, en í
samanburði stendur Ísland sig vel,
það er ástæðan fyrir því að verið er
að bjóða okkur út um allan heim til
að tala um hvernig við gerum hlut-
ina,“ segir Viðar, sem er einmitt ný-
kominn heim af stóru þingi í Finn-
landi þar sem hann ræddi ekki
einungis ástæðurnar að baki árangri
íslensku landsliðanna heldur einnig
þátt íþróttastarfs í að draga úr vímu-
efnanotkun íslenskra unglinga á
undanförnum áratugum.
„Ég er þeirrar skoðunar að við
séum með íþróttamódel sem er mjög
sérstakt og nánast einstakt í heim-
inum, að því leyti að við samþættum
uppeldis- og afreksstarf. Í útlöndum
er þetta minna starf í hverju hverfi
fyrir sig, þar sem krakkar fara bara
til að leika sér. Þar eru ekki sér-
stakir þjálfarar heldur tekur eitt-
hvert foreldrið að sér þjálfunina. Á
hinn bóginn ertu svo með atvinnu-
mannaklúbba sem eru í einkaeigu og
fara og ná í efnilegustu krakkana,
allt niður í 8 ára, og þjálfa þau upp í
sínu prógrammi. Þeir slíta þetta í
sundur og krakkar fara bara aðra
hvora leiðina, velja þegar þau eru 8-
12 ára. Á Íslandi erum við með þetta
blandað; krakkar fara í íþrótta-
félögin og æfa saman með vinum sín-
um, alveg sama hvort þeir eru léleg-
ir eða góðir. Ég held að þetta sé
mjög gott kerfi því við erum ekki
með ofuráherslu á keppni. Ef við
náum að halda þessari blöndu, með
heilbrigða áherslu á árangur og upp-
eldi, þá erum við að gera þetta rétt.“
Þátttaka barna í
íþróttastarfi hér á
landi er meiri en í
nágrannalöndunum.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Þjálfarar barna geta haft mikil áhrif á mótun þeirra með því að hlúa vel að litlu hlutunum í þjálfuninni, eins og orðavali og
líkamstjáningu, segir lektor í félagsfræði. Íþróttafélög hér á landi segir hann hafa meira uppeldislegt vægi en annars staðar.
Ingibjörg Rósa ingibjorgrosa@gmail.com
Viðar Halldórsson