Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.11.2018, Page 6
ERLENT
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.11. 2018
Tveimur dögum áður en
hópmálið var höfðað gegn
Volkswagen greindi fyrir-
tækið frá því að hagnaður
fyrirtækisins hefði tvöfaldast
á þriðja fjórðungi ársins
miðað við sama tíma í
fyrra. Í fyrirsögn fréttaveit-
unnar AFP sagði að
Volkswagen hefði skilið
keppinautana eftir í ryk-
mekki þrátt fyrir dísilraun-
irnar og sagði í frétt henn-
ar að fyrirtækið væri
greinilega að mjakast
út úr skugga út-
blásturshneykslisins
þrátt fyrir yfirvof-
andi og yfirstand-
andi málshöfðanir.
Neytendasamtök í Þýska-landi lögðu á fimmtudagfram hópmálsókn gegn
bílaframleiðandanum Volkswagen
vegna tjóns, sem kaupendur dísilbíla
framleiðandans urðu fyrir vegna
svindls í útblástursmælingum.
Í yfirlýsingu frá landssambandi
þýskra neytendasamtaka, VZBV,
sagði að stefnan hefði verið send
yfirhéraðsdómi í Braunschweig í
samstarfi við félag þýskra bifreiða-
eigenda, ADAC, aðfaranótt fimmtu-
dagsins. Braunschweig er skammt
frá höfuðstöðvum Volkswagen í
Wolfsburg í Neðra-Saxlandi.
Í málshöfðuninni er Volkswagen,
sem framleiðir átta tegundir bíla,
gefið að sök að hafa vísvitandi skað-
að viðskiptavini sína með því að láta
líta út fyrir að bílar þeirra menguðu
minna en þeir gerðu í raun. Á vef-
síðu VZBV kemur fram að málið nái
til bíla af gerðunum Volkswagen,
Audi, Skoda og Seat með dísilvélum
af gerðinni EA189. Búnaði til að
skekkja útblástursmælingar var
komið fyrir í slíkum vélum.
„Þessi dagur mun lifa í minningu
Volkswagen sem stundin þegar
silkihönskum stjórnmálamanna var
skipt út fyrir boxhanska talsmanna
neytenda,“ sagði Klaus Müller, for-
vígismaður VZBV, í samtali við
þýsku fréttaveituna DPA. Hann
sagði að markmiðið væri að kaup-
endur fengju kaupverð bílanna
endurgreitt.
Þetta er fyrsta hópmálsóknin í
Þýskalandi og er hún gerð í krafti
laga, sem sérstaklega voru sett til að
eigendur dísilbíla frá Volkswagen
gætu leitað réttar síns. Lögin tóku
gildi 1. nóvember og var meðferð
þeirra flýtt til að þau tækju gildi áð-
ur en rétturinn til að sækja skaða-
bætur til Volkswagen fyrndist.
Katherina Barley, dómsmála-
ráðherra Þýskalands, sagði að talið
væri að tvær milljónir bifreiðaeig-
enda gætu notið góðs af hinum nýju
lögum.
Í upphafi er málið þó aðeins höfð-
að fyrir hönd 10 Volkswagen-
eigenda. Nú er það dómstólsins að
skera úr um hvort málið sé tækt og
er búist við að niðurstaða liggi fyrir
innan tveggja vikna. Á heimasíðum
samtakanna, sem standa að mál-
sókninni, kemur fram að þá muni
þeir, sem hafi keypt bíla með
EA189-vélinni eftir 2008, geta skráð
sig sér að kostnaðarlausu.
Ralf Stoll, sem hefur yfirumsjón
með málsókninni, kveðst eiga von á
að tugir þúsunda manna muni skrá
sig.
Þegar hafa verið höfðuð 26 þús-
und mál á hendur Volkswagen sam-
kvæmt upplýsingum frá fyrirtæk-
inu, 7400 dómar hafi fallið og í
langflestum tilvikum hafi málshöfð-
andi tapað. Meira er ekki gefið upp.
Volkswagen viðurkenndi í
september 2015 að hafa átt við vélar
í 11 milljón bílum, sem ganga fyrir
dísilolíu. Brögð fyrirtækisins leiddu
til þess að útblástur bílanna virtist
vera innan leyfilegra marka, þótt í
raun væri hann langt umfram þau.
Fyrirtækið var að reyna að koma
dísilbílum á markað í Bandaríkjun-
um og með þessum brögðum áttu
þeir að verða aðlaðandi kostur, en
bílarnir voru seldir um allan heim.
Málið olli miklu fjaðrafoki og
þótti álitshnekkir fyrir
Volkswagen og gengis-
fella orðspor þýskrar
framleiðslu. Volks-
wagen hefur þegar
þurft að láta 28 millj-
arða dollara (3.400
milljarða króna) af hendi
rakna vegna hneykslisins. Stór hluti
fór til hálfrar milljónar bíleigenda í
Bandaríkjunum, sem var boðið að
ökutæki þeirra yrðu keypt til baka
og þeir fengju allt að tíu þúsund
dollara (1,2 milljónir króna) í bætur.
Forráðamenn Volkswagen segj-
ast ekki hafa neinar lagalegar skuld-
bindingar til að bjóða upp á sam-
bærileg býti annars staðar og halda
því fram að það myndi gera fyrir-
tækið gjaldþrota. Leyfi séu fyrir bíl-
unum, þeir séu tæknilega öruggir og
hæfir til aksturs.
Volkswagen greiddi 1,8 milljarða
evra (249 milljarða króna) í sektir til
þýskra yfirvalda, en neytendum hef-
ur aðeins verið boðið upp á upp-
færslu á hugbúnaði í bílum þeirra.
Málið og þróun þess hefur vakið
reiði neytenda í Þýskalandi, ekki
síst vegna þess að endursöluverð á
umræddum bílum hefur hrapað auk
þess sem nú er fyrirhugað að banna
akstur dísilbíla í stórborgum lands-
ins út af áhyggjum vegna meng-
unar.
„Þeir hafa dregið okkur á asna-
eyrum,“ sagði Christian Säfken í
samtali við fréttaveituna AFP. Hann
komst að því að bíll hans af gerðinni
Skoda Octavia hefði verið búinn
svindlbúnaðinum og sagði að það
hefði verið sér áfall.
Nýju lögin um hópmálsóknir hafa
verið gagnrýnd fyrir það að sam-
kvæmt þeim mega dómarar aðeins
skera úr um það hvort eigi að greiða
bætur, en ekki kveða á um upp-
hæðir. Því þurfi hver og einn þátt-
takandi í málsókninni að fara aftur
fyrir rétt til að fá úr því skorið
hversu háar bæturnar eigi að vera
komist rétturinn að þeirri niður-
stöðu að Volkswagen sé skaðabóta-
skylt nema fyrirtækið ákveði að
gera samkomulag um greiðslur.
Barley dómsmálaráðherra var þó
á því að væru „þátttakendur 25 þús-
und og dómurinn kæmist að þeirri
grundvallarniðurstöðu að það ætti
að borga væri algert brjálæði að
taka fyrir mál hvers og eins fyrir
sig“.
Hópmálsókn gegn Volkswagen
Hópmál var höfðað gegn Volkswagen í Þýska-
landi í vikunni vegna útblásturssvindlsins
sem komst upp fyrir þremur árum. Nái málið
fram að ganga er búist við að tugþúsundir
viðskiptavina taki þátt í málsókninni.
Karl Blöndal kbl@mbl.is
AFP
Bílum staflað í hillur í bílageymslu Volkswagen í Wolfsburg. Hópmál var höfðað gegn fyrirtækinu í vikunni út af
útblásturssvindli og er búist við að tugir þúsunda manna taki þátt í því. VW kveðst enga skaðabótatskyldu bera.
Hagnaður
tvöfaldast
BRASILÍA
RIO DE JANEIRO Jair Bolsonaro sigraði í seinni umferð
forsetakosninganna í Brasilíu um liðna helgi. Hann hét víðtækum
breytingum og hófst þegar handa við að koma stefnu sinni í fram-
kvæmd. Bolsonaro er harðlínumaður og hefur meðal annars heitið
því að rýmka byssulöggjöfi na í landinu þannig að „gott fólk“ geti
tekið lögin í eigin hendur. Margir kjósendur lýstu andúð á honum
en frambjóðandi Verkamannafl okksins sem hefur verið við völd
undanfarin fjögur kjörtímabil var enn óvinsælli.
EÞÍÓPÍA
ADDIS ABBABA
Meaza Ashenafi
var skipuð forseti
hæstaréttar í
Eþíópíu á fi mmtu-
dag og er hún fyrsta
konan til að gegna
embættinu þar í landi. Í liðinni viku kaus þing
Eþíópíu Sahle-Work Zewde forseta landsins.
Hún er eina konan sem gegnir embætti forseta
í Afríku um þessar mundir. Abiy Ahmed, for-
sætisráðherra landsins, hefur lagt áherslu á að
auka veg kvenna í embættismannakerfi nu og
eru konur helmingur ráðherra í stjórn hans.
INDÓNESÍA
JAKARTA 189 manns
létust þegar farþegafl ugvél
hrapaði í Javahaf á mánu-
dag skammt undan strönd-
um Indónesíu aðeins 12
mínútum eftir fl ugtak.
Vélin var glæný af gerðinni
Boeing-737 MAX 8 og
hafði aðeins verið í notkun
í nokkra mánuði og á
að vera ein fullkomnasta
farþegavél í umferð. Svarti
kassinn úr vélinni fannst
á fi mmtudag og er vonast
til að hann hafi að geyma
vísbendingar um hvers
vegna vélin hrapaði.
ÞÝSKALAND
BERLÍN Angela Merkel, kansl-
ari Þýskalands, tilkynnti á mánudag
að hún myndi ekki sækjast eftir
endurkjöri en hygðist sitja út kjör-
tímabilið. Hún ætlar einnig að láta
af formennsku í fl okki kristilegra
demókrata þegar kosið verður um
formann í desember. Merkel lýsti yfi r
þessu eftir að fl okkur hennar fékk slæma útreið í kosningum í sambandslandinu
Hessen. Hún hefur verið kanslari í 13 ár og leitt fl okk sinn í 18 ár.