Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.11.2018, Side 10

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.11.2018, Side 10
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.11. 2018 VETTVANGUR Tónlistarmaðurinn og matgæðing- urinn Pétur Jónsson tísti á @se- nordonpedro. „Það eru núna tíu ár síðan ég tók þá ákvörðun, geð- heilsu minnar vegna, að horfa ekki á íslenskar fréttir og umræðu- þætti sem snúast um það að etja fólki með mjög ólíkar skoðanir saman til að rífast og þrasa án þess að það geti mögulega leyst neitt. Sé ekki eftir neinu.“ Sævar Helgi Bragason stjörnufræðingur @saevarhb tísti um nýjan vef sinn auroraforecast.is: „Þá er þetta litla, fallega barn loksins farið í loft- ið. Ef þið eruð með ferðafólk í heimsókn, þá ætti þetta að vera fyrsta stopp í upplýsingaleit um norðurljós,“ skrifaði hann en þarna er hægt að skoða norðurljósaspár á þægilegan hátt. Fréttakonan Birta Björns- dóttir @birtabjoss birti mynd á Twitter af manni að spila á píanó á flugvelli: „Á Gar- dermoen- flugvellinum geta fingrafimir skemmt sjálfum sér og öðrum með píanóleik á meðan beðið er. Það eru til mjög margar verri hugmyndir.“ AF NETINU xton™ heyrnartækin gera meira en að hjálpa þér að heyra betur. u opna nýjar leiðir í samskiptum, rjúfa þögnina og gefa tóninn. u auka lífsgæðin. Komdu í ókeypis heyrnarmælingu og fáðu rnartæki lánuð til reynslu. Við hjálpum þér að bæta lífsgæðin Re Þa Þa he HEYRNARSTÖ‹INKringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is y Í síðasta pistli fjallaði ég um tor-tryggni í garð sérfræðinga ogmikilvægi gagnrýninnar hugs- unar, en benti undir lokin á að þótt sérfræðingum gæti vissulega skjátl- ast mættum við ekki samþykkja til- burði til að gera það orð beinlínis að skammaryrði, enda yrðum við þá auðveld bráð lýðskrumara. Það var viðeigandi að næsta bók sem varð á vegi mínum fjallar um skylda hluti, nefnilega þá staðreynd að mannfólkinu hættir til að mistúlka heiminn vegna meðfæddra tilhneig- inga sem skekkja sjónarhorn okkar. Lokatilraun Roslings Sá sem bendir á þetta er Hans Rosl- ing heitinn, sá vinsæli sænski vís- indamaður og fyrirlesari. Ekki er langsótt að kalla Rosling einn helsta boðbera góðra tíðinda á okkar dög- um, því að hann sýndi fram á það með gögnum að bölsýni á þróun, stöðu og horfur mannkyns er ekki bara almenn og útbreidd heldur oft í algjörri andstöðu við staðreyndir. Það er eins og við sjáum ekki „hið hljóðláta kraftaverk framfara“; það fer fram hjá okkur. Rosling var merkisberi stað- reynda og gagna. Nýjasta og því miður einnig hinsta bók hans kom út fyrr á þessu ári og heitir „Factful- ness“. Þetta sérkennilega heiti er líklega tilvísun í fyrirbærið „mind- fulness“ eða „núvitund“. Með hlið- sjón af því mætti kannski þýða heiti bókarinnar sem „staðreyndavitund“ eða jafnvel „svovitund“, samanber spurninguna „Er það svo?“ í merk- ingunni „þannig“ eða „rétt“. Rosling segir að bókin sé loka- tilraun sín til að leiðrétta hrika- lega vanþekkingu fólks á raunveru- legum árangri, stöðu og horfum í mannlegu sam- félagi. Hann nefnir ótal dæmi um spurningar þar að lútandi sem yfirgnæfandi meirihluti fólks svarar vitlaust í könnun eftir könnun, í hverju land- inu á fætur öðru, hversu vel upp- lýstir sem þátttakendur eru. Aparnir í Davos Ein spurningin er um það hvernig hlutfall mannkyns sem býr við ör- birgð hefur þróast á undanförnum 20 árum. Þrír svarmöguleikar eru gefnir: að hlutfallið hafi næstum tvö- faldast, að það hafi minnkað um næstum helming, eða haldist nokk- urn veginn óbreytt. Hið rétta er að hlutfallið hefur minnkað um næstum helming, sem Rosling kallar mikil- vægustu breytingu sem hafi orðið á mannlegu samfélagi á hans ævi. Að- eins 7% fólks giska á það svar. Önnur spurning lýtur að því hvort árleg dauðsföll af völdum náttúru- hamfara séu álíka mörg í dag og fyr- ir 100 árum, tvisvar sinnum fleiri eða helmingi færri. Hið rétta er að þau eru helmingi færri, en aðeins 10% fólks velja það svar. Villan í svör- unum er næstum undantekningar- laust á þá leið að árangurinn sem náðst hefur er stórlega vanmet- inn og staða og horfur máluð miklu dekkri lit- um en tilefni er til. Og svörin eru ekki bara vitlaus heldur mun vitlaus- ari en búast mætti við af handahófs- kenndum svörum algjörra vanvita. Meira að segja helstu forystumenn í stjórnmálum og viðskiptalífi heims- ins stóðu sig verr en sjimpansar hefðu gert í meirihluta spurning- anna sem Rosling lagði fyrir þá í Davos. Það þótti Rosling óendanlega merkilegt – og lesandinn kemst ekki hjá því að fá dálitla samúð með þess- um riddara staðreyndanna, sem þarna áttar sig á því hversu lítils þær mega sín stundum andspænis gölluðu innsæi jafnvel merkustu manna. Ótti og fleiri skekkjuvaldar Rosling nefnir tíu hugsanavillur og einkenni á mannlegu eðli sem skýra hvers vegna okkur hættir til að van- meta kerfisbundið árangur, stöðu og horfur varðandi lífskjör og lífsgæði. Ótti vegur þar þungt. Einnig til- hneiging okkar til að búa til and- stæður fremur en að sjá blæbrigði, og tilhneiging okkar til að varpa þró- un í fortíð óbreyttri yfir á framtíð- ina. Hann nefnir fleira, og gefur okk- ur í hvert sinn ráð um hvernig við getum reynt að vera meðvituð um þessar villur og skekkjur, sem sagt hvernig við getum stundað „stað- reyndavitund“ eða „svovitund“. Sú hugsun verður ágeng við lesturinn að þessa bók Roslings þyrfti allt ungt fólk að lesa, en hinir eldri ekki síður. Rétt er að nefna að Rosling leggur þunga áherslu á að með því að opna augu okkar fyrir stórkostlegum framförum mannkyns sé hann að sjálfsögðu ekki á nokkurn hátt að gera lítið úr þeim vanda sem enn er óleystur. Það væri verðugt verkefni að stilla upp spurningum í stíl Roslings um þróun og stöðu í íslensku samfélagi. Með staðreyndir að vopni ’[Rosling] sýndi framá það með gögnum aðbölsýni á þróun, stöðu oghorfur mannkyns er ekki bara almenn og útbreidd heldur oft í algjörri and- stöðu við staðreyndir. Það er eins og við sjáum ekki „hið hljóðláta kraftaverk framfara“. Úr ólíkum áttum Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir thordiskolbrun@anr.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.