Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.11.2018, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.11. 2018
VETTVANGUR
Tónlistarmaðurinn og matgæðing-
urinn Pétur Jónsson tísti á @se-
nordonpedro.
„Það eru núna tíu
ár síðan ég tók þá
ákvörðun, geð-
heilsu minnar
vegna, að horfa
ekki á íslenskar fréttir og umræðu-
þætti sem snúast um það að etja
fólki með mjög ólíkar skoðanir
saman til að rífast og þrasa án þess
að það geti mögulega leyst neitt. Sé
ekki eftir neinu.“
Sævar Helgi Bragason
stjörnufræðingur @saevarhb tísti
um nýjan vef sinn
auroraforecast.is:
„Þá er þetta
litla, fallega barn
loksins farið í loft-
ið. Ef þið eruð
með ferðafólk í
heimsókn, þá ætti þetta að vera
fyrsta stopp í upplýsingaleit um
norðurljós,“ skrifaði hann en þarna
er hægt að skoða norðurljósaspár
á þægilegan hátt.
Fréttakonan Birta Björns-
dóttir @birtabjoss birti mynd á
Twitter af manni
að spila á píanó á
flugvelli: „Á Gar-
dermoen-
flugvellinum geta
fingrafimir
skemmt sjálfum
sér og öðrum með píanóleik á
meðan beðið er. Það eru til mjög
margar verri hugmyndir.“
AF NETINU
xton™ heyrnartækin gera meira en að hjálpa þér að heyra betur.
u opna nýjar leiðir í samskiptum, rjúfa þögnina og gefa tóninn.
u auka lífsgæðin. Komdu í ókeypis heyrnarmælingu og fáðu
rnartæki lánuð til reynslu.
Við hjálpum þér
að bæta lífsgæðin
Re
Þa
Þa
he
HEYRNARSTÖ‹INKringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is
y
Í síðasta pistli fjallaði ég um tor-tryggni í garð sérfræðinga ogmikilvægi gagnrýninnar hugs-
unar, en benti undir lokin á að þótt
sérfræðingum gæti vissulega skjátl-
ast mættum við ekki samþykkja til-
burði til að gera það orð beinlínis að
skammaryrði, enda yrðum við þá
auðveld bráð lýðskrumara.
Það var viðeigandi að næsta bók
sem varð á vegi mínum fjallar um
skylda hluti, nefnilega þá staðreynd
að mannfólkinu hættir til að mistúlka
heiminn vegna meðfæddra tilhneig-
inga sem skekkja sjónarhorn okkar.
Lokatilraun Roslings
Sá sem bendir á þetta er Hans Rosl-
ing heitinn, sá vinsæli sænski vís-
indamaður og fyrirlesari. Ekki er
langsótt að kalla Rosling einn helsta
boðbera góðra tíðinda á okkar dög-
um, því að hann sýndi fram á það
með gögnum að bölsýni á þróun,
stöðu og horfur mannkyns er ekki
bara almenn og útbreidd heldur oft í
algjörri andstöðu við staðreyndir.
Það er eins og við sjáum ekki „hið
hljóðláta kraftaverk framfara“; það
fer fram hjá okkur.
Rosling var merkisberi stað-
reynda og gagna. Nýjasta og því
miður einnig hinsta bók hans kom út
fyrr á þessu ári og heitir „Factful-
ness“. Þetta sérkennilega heiti er
líklega tilvísun í fyrirbærið „mind-
fulness“ eða „núvitund“. Með hlið-
sjón af því mætti kannski þýða heiti
bókarinnar sem „staðreyndavitund“
eða jafnvel „svovitund“, samanber
spurninguna „Er það svo?“ í merk-
ingunni „þannig“ eða „rétt“.
Rosling segir að bókin sé loka-
tilraun sín til að
leiðrétta hrika-
lega vanþekkingu
fólks á raunveru-
legum árangri,
stöðu og horfum í
mannlegu sam-
félagi. Hann
nefnir ótal dæmi
um spurningar
þar að lútandi
sem yfirgnæfandi
meirihluti fólks
svarar vitlaust í
könnun eftir könnun, í hverju land-
inu á fætur öðru, hversu vel upp-
lýstir sem þátttakendur eru.
Aparnir í Davos
Ein spurningin er um það hvernig
hlutfall mannkyns sem býr við ör-
birgð hefur þróast á undanförnum
20 árum. Þrír svarmöguleikar eru
gefnir: að hlutfallið hafi næstum tvö-
faldast, að það hafi minnkað um
næstum helming, eða haldist nokk-
urn veginn óbreytt. Hið rétta er að
hlutfallið hefur minnkað um næstum
helming, sem Rosling kallar mikil-
vægustu breytingu sem hafi orðið á
mannlegu samfélagi á hans ævi. Að-
eins 7% fólks giska á það svar.
Önnur spurning lýtur að því hvort
árleg dauðsföll af völdum náttúru-
hamfara séu álíka mörg í dag og fyr-
ir 100 árum, tvisvar sinnum fleiri eða
helmingi færri. Hið rétta er að þau
eru helmingi færri, en aðeins 10%
fólks velja það
svar.
Villan í svör-
unum er næstum
undantekningar-
laust á þá leið að
árangurinn sem
náðst hefur er
stórlega vanmet-
inn og staða og
horfur máluð
miklu dekkri lit-
um en tilefni er
til. Og svörin eru
ekki bara vitlaus heldur mun vitlaus-
ari en búast mætti við af handahófs-
kenndum svörum algjörra vanvita.
Meira að segja helstu forystumenn í
stjórnmálum og viðskiptalífi heims-
ins stóðu sig verr en sjimpansar
hefðu gert í meirihluta spurning-
anna sem Rosling lagði fyrir þá í
Davos.
Það þótti Rosling óendanlega
merkilegt – og lesandinn kemst ekki
hjá því að fá dálitla samúð með þess-
um riddara staðreyndanna, sem
þarna áttar sig á því hversu lítils
þær mega sín stundum andspænis
gölluðu innsæi jafnvel merkustu
manna.
Ótti og fleiri skekkjuvaldar
Rosling nefnir tíu hugsanavillur og
einkenni á mannlegu eðli sem skýra
hvers vegna okkur hættir til að van-
meta kerfisbundið árangur, stöðu og
horfur varðandi lífskjör og lífsgæði.
Ótti vegur þar þungt. Einnig til-
hneiging okkar til að búa til and-
stæður fremur en að sjá blæbrigði,
og tilhneiging okkar til að varpa þró-
un í fortíð óbreyttri yfir á framtíð-
ina. Hann nefnir fleira, og gefur okk-
ur í hvert sinn ráð um hvernig við
getum reynt að vera meðvituð um
þessar villur og skekkjur, sem sagt
hvernig við getum stundað „stað-
reyndavitund“ eða „svovitund“.
Sú hugsun verður ágeng við
lesturinn að þessa bók Roslings
þyrfti allt ungt fólk að lesa, en hinir
eldri ekki síður.
Rétt er að nefna að Rosling leggur
þunga áherslu á að með því að opna
augu okkar fyrir stórkostlegum
framförum mannkyns sé hann að
sjálfsögðu ekki á nokkurn hátt að
gera lítið úr þeim vanda sem enn er
óleystur.
Það væri verðugt verkefni að stilla
upp spurningum í stíl Roslings um
þróun og stöðu í íslensku samfélagi.
Með staðreyndir að vopni
’[Rosling] sýndi framá það með gögnum aðbölsýni á þróun, stöðu oghorfur mannkyns er ekki
bara almenn og útbreidd
heldur oft í algjörri and-
stöðu við staðreyndir.
Það er eins og við sjáum
ekki „hið hljóðláta
kraftaverk framfara“.
Úr ólíkum
áttum
Þórdís Kolbrún R.
Gylfadóttir
thordiskolbrun@anr.is