Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.11.2018, Side 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.11.2018, Side 12
VIÐTAL 12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.11. 2018 Fyrir fjórum árum hafði AnítaSigurbjörg Emilsdóttir enginsérstök áform um að setjast á skólabekk. Engu að síður útskrifaðist hún með sveinspróf í rafvirkjun um liðna helgi. Hún er því fullgildur raf- virki og komst með útskrift sinni í hóp aðeins um 50 kvenna sem lokið hafa sveinsprófi í rafiðngreinum hér á landi. Útskriftin var söguleg fyrir þær sakir að meistari Anítu í starfs- námi sínu er einnig kona, rafvirkja- meistarinn Kristín Birna Fossdal. Samkvæmt upplýsingum frá Rafiðn- aðarsambandinu mun þetta vera í fyrsta sinn sem kona er meistari ann- arrar konu í rafiðngrein hér á landi, og jafnvel þótt víðar væri leitað. Af einhverjum ástæðum hafa rafiðn- greinar eins og rafvirkjun og raf- eindavirkjun höfðað frekar til karla en kvenna, en konur eru aðeins um eitt prósent félagsmanna í Rafiðn- aðarsambandinu. Boðin vinna á staðnum Aníta er ánægð með að hafa fundið rafvirkjun og valið hana sem starfs- vettvang, en sagan af því hvernig það atvikaðist hófst á biluðum farsíma í fæðingarorlofi. „Ég átti á sínum tíma iPhone 4S og skjárinn á honum brotnaði. Ég var með lítið á milli handanna á þessum tíma og fannst ótrúlega dýrt að láta gera við símann. Þannig að ég pantaði skjá á netinu og skipti um hann sjálf. Það gekk upp og síminn var eins og nýr. Skömmu eftir það fór hátalarinn í símanum að stríða mér og ég ákvað að panta hátalara og skipta honum út líka. Það gekk en hljóðið virkaði samt ekki og þannig neyddist ég til að fara með hann í viðgerð.“ Hún sagði frá því á verkstæðinu að hún hefði skipt sjálf um skjá og hátalara en ekki tek- ist að koma hljóðinu í lag. Henni fannst viðmótið frekar sérstakt og af- greiðslumaðurinn horfði á hana eins og hún væri eitthvað skrítin. Sá sem afgreiddi hvarf svo á bak við en kom aftur og bauð henni vinnu við fjar- skiptaviðgerðir. Það sem henni fannst skrítið viðmót var þá miklu frekar undrun yfir því hversu vel henni hafði tekist til við að skipta um skjáinn og hátalara. Í ljós kom að það hafði verið móðurborðið í símanum sem var bil- að, þannig að nýr hátalari hefði ekki dugað til. Þá segist Aníta hafa hugsað með sér: „hvað ef ég gæti lagað móður- borðið í símanum mínum sjálf?“ og hún lét ekki þar við sitja heldur skráði sig í nám í rafvirkjun eftir að hafa unnið á áðurnefndu verkstæði við við- gerðir á farsímum og fjarskiptatækj- um í nokkra mánuði. Hún byrjaði í kvöldskóla með vinnu haustið 2014 en fór svo í fullan dagskóla og lauk nám- inu á methraða. Nú, haustið 2018, hef- ur hún lokið bóklega náminu, náms- samningi og sveinsprófi og er orðin rafvirki. Í skólanum fékk hún kynningu frá Orkuveitu Reykjavíkur og fannst áhugavert og spennandi að fara að starfa þar, við ansi mikið stærri vél- búnað en síma og spjaldtölvur sem hún hafði kynnst viðgerðum á í upp- hafi. Hún hóf störf hjá Orku náttúr- unnar (ON) fyrir einu og hálfu ári, fyrst meðfram skóla en nú í fullu starfi sem rafvirki. „Þegar ég kem í viðtal hjá ON þá var það eiginlega ákveðið þar og þá að Stína yrði minn meistari og fyrir mér var það miklu meira spennandi en að fá karlmann. Hún er bráðgáfuð, ótrú- lega fyndin, algjör snillingur og í dag mín helsta fyrirmynd í þessum geira. Það skemmtilegasta við starfið er hvað það er fjölbreytt. Vélarstoppin finnst mér skemmtilegust, þá eru allir á hlaupum og allt stappað af starfs- fólki sem keppist við að vinna hratt og hörðum höndum. Annars hef ég mikið verið í að laga og smíða stýriskápa fyrir gufuveituna en núna upp á síð- kastið hafa dagarnir einkennst af miklum lagfæringum og breytingum vegna úttektar. Ég vissi ekkert hvað ég var að koma mér út í þegar ég skráði mig í þetta nám, en með tím- anum þá einhvern veginn hefur þetta vaxið með mér og áhuginn verður allt- af meiri og meiri. Það er fátt meira spennandi en að vinna á svona stórum vinnustað með svona stórar vélar og í raun frekar hættulegu umhverfi. Það er ákveðin spenna sem felst í því.“ Hún segist líka kunna vel við það, sem áhugamanneskja um allt sem tengist rafmagni, að starfa alveg við uppsprettuna þar sem rafmagnið er framleitt. „Þegar ég var í skólanum var ég ekkert farin að hugsa svona langt. Ég vissi ekkert hvað ég ætlaði að gera við þetta nám og það var ekki fyrr en ég fékk kynninguna í skólan- um sem ég ákvað að mig langaði að starfa hjá Orku náttúrunnar. Um- fram það fékk ég einnig kynningu á háskólum í Danmörku og þá var það rafmagnstæknifræði sem greip mig,“ en hún segir kennara sína við Fjöl- brautaskólann í Breiðholti hafa hvatt sig til að kynna sér frekara nám. Í vor heldur hún til Danmerkur með börn- in, sem nú eru orðin tvö, í háskóla- nám. Fann sig ekki í menntaskóla Aníta, sem nú er 27 ára, fór eins og svo margir í hefðbundinn framhalds- skóla strax að loknu skyldunámi en fann sig aldrei þar og hætti. „Ég byrj- aði að flakka á milli brauta í mennta- skóla en fann mig aldrei almennilega, svo einhvern veginn rataði ég á rang- an veg í lífinu og flosnaði upp úr skóla.“ Hún flutti síðan til útlanda en kom heim þegar hún varð ólétt. Og það var einmitt í fæðingarorlofi með því barni sem hún kynntist rafvirkj- uninni. Þá fann hún í fyrsta sinn nám sem hún tengdi við og henni fannst skemmtilegt. „Svo fór ég í þetta nám, þá varð allt skýrara. Ég sá þarna leið til að búa mér og barninu mínu góða framtíð. Alveg frá því ég var barn hef ég alltaf verið góð í öllu svona verklegu. Allt sem tengist því að nota hugann og vinna með höndum hefur verið heillandi fyrir mér. Þegar ég byrjaði í framhaldsskóla var ég yfirleitt að gera eitthvað sem mér þótti síður skemmtilegt og ég hugsa oft að ef maður hefði haft gaman af því sem maður var að læra, þá hefði maður kannski enst í náminu.“ Kynningu ábótavant Hún telur að oftar en ekki vanti kynn- ingu á námi sem er í boði fyrir ungt fólk. Henni hefði til dæmis aldrei dott- ið í hug að fara í rafvirkjun ef ekki væri fyrir það að henni var fyrir tilviljun boðið starf á fjarskiptaverkstæði. „Þegar ég hugsa til baka þá sé ég hvað það vantaði að kynna betur hvað maður gæti gert. Maður bara fer í einhvern framhaldsskóla og maður á að fara að læra eitthvað og maður veit ekki neitt. Maður er ekkert upplýstur eða fræddur um það almennilega hvert hver braut leiðir mann. Þegar ég byrjaði að læra rafvirkjun var hver einasti tími í skólanum spenn- andi og skemmtilegur. Við fengum að gera svo margt í skólanum; hanna stýringar fyrir allskonar færibönd sem fóru þvers og kruss, tengdum umferð- arljós, smíðuðum fm-sendi og spennu- gjafa og alls konar. Allt mjög gaman. Og ég fékk líka að prófa svo mikið meðan ég var á námssamningi hjá ON. Þá vann ég í götuljósum, húsaraf- magni, virkjunum, veitum, ljósleiðara og bara öllu. Það er mikilvægt að prófa sem flest,“ segir Aníta, sem ekki hikar við að mæla með faginu fyrir ungt fólk sem er að velta fyrir sér námi. „Rafmagnið er svo skemmtilegt og fjölbreytt. Ég held að margir geri sér ekki grein fyrir hvað rafmagnið er stór hluti af okkar lífi. Rafmagnið er hvar sem við erum, allar byggingar, tæknin, skólarnir, bílarnir – allt er háð rafmagni. Þú getur unnið við svo margt. En rafmagn er aldrei einfalt. Maður þarf alltaf að einbeita sér og hugsa um hvað maður er að gera,“ segir þessi nýbakaði rafvirki. Aníta með börn- unum sínum tveim- ur, þeim Mikael Rafni og Helen Aríu Björgvinsbörnum. Morgunblaðið/Árni Sæberg Á dögunum gerðist það í fyrsta sinn að kona lauk sveinsprófi í rafvirkjun með konu sem meistara. Bæði meistarinn og sveinninn segja rafvirkjun henta bæði konum og körlum. Eyrún Magnúsdóttir eyrun@mbl.is Bilaður sími örlagavaldur Kristín Birna Fossdal rafvirkja- meistari hefur unnið við fagið frá árinu 1996. „Ég byrjaði 15 ára gömul að vinna við viðgerðir,“ segir Kristín en það var í raun hending sem réð því að hún valdi sér þessa braut. „Í 10. bekk áttum við að velja okkur hvert við vild- um fara í starfskynningu. Það vildi svo til að það var rafvirki að vinna heima akkúrat þennan morgun og ég bara bað hann um að taka mig í starfskynningu. Hann bauð mér vinnu eftir kynn- inguna,“ segir Kristín, sem hóf þegar störf við viðgerðir um sum- arið eftir 10. bekk. Svo vel kunni hún við starfs- kynninguna og sumarvinnuna að hún fór beint að læra fagið. Hún tók sveinsprófið árið 2001. „Þeg- ar ég útskrifast úr sveinsprófinu þá var mér sagt að ég væri ní- unda konan hér á landi til að ljúka því. Það hefur bæst mikið við síðan þá,“ segir Kristín, en hún varð rafvirkjameistari árið 2010. Hún segir Anítu hafa verið af- bragðsnema. „Hún á eftir að spjara sig. Hún er dugleg og vill læra. Núna er hún orðin fullnuma rafvirki og ég er bara nokkuð stolt af henni,“ segir meistarinn um nemann. En Kristín vill gjarnan sjá fleiri konur sækja í rafvirkjun. „Ég held kannski að of margar stelpur sjái rafvirkjun fyrir sér sem eitthvert „skítadjobb“ og að þær þurfi að vera á skítugu verkstæði. En þetta er alls ekki þannig. Starfið er mjög fjölbreytt og það hentar konum ekki síður en körlum, jafn- vel hentar konum bara betur en körlum. Þetta er alls ekki bara karlastarf. Þetta er til dæmis ekki líkamlega erfitt starf, eins og margir kynnu að halda. Þetta er mjög fjölbreytt starf og þú getur valið þér hvaða leið þú ferð.“ Á vinnustað Kristínar og Anítu, Orku náttúrunnar, eru alla jafna fjögur nemapláss fyrir iðnnema. Að sögn Kristínar eru tvö pláss ætluð stelpum og tvö ætluð strákum, en hugmyndin með því er að mynda hvata fyrir stelpur í iðnnámi að koma inn á nemasamning. „Ég myndi vilja fá fleiri konur í þetta fag. Við sem störfum við þetta þurfum líka að verða sýni- legri, vera duglegri að segja frá því að það eru konur í þessu fagi líka,“ segir Kristín Birna. Vill fleiri konur í fagið Kristín Birna Fossdal og Aníta Sigurbjörg Emilsdóttir. Ljósmynd/Gunnar Svanberg

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.