Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.11.2018, Blaðsíða 12
VIÐTAL
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.11. 2018
Fyrir fjórum árum hafði AnítaSigurbjörg Emilsdóttir enginsérstök áform um að setjast á
skólabekk. Engu að síður útskrifaðist
hún með sveinspróf í rafvirkjun um
liðna helgi. Hún er því fullgildur raf-
virki og komst með útskrift sinni í hóp
aðeins um 50 kvenna sem lokið hafa
sveinsprófi í rafiðngreinum hér á
landi. Útskriftin var söguleg fyrir
þær sakir að meistari Anítu í starfs-
námi sínu er einnig kona, rafvirkja-
meistarinn Kristín Birna Fossdal.
Samkvæmt upplýsingum frá Rafiðn-
aðarsambandinu mun þetta vera í
fyrsta sinn sem kona er meistari ann-
arrar konu í rafiðngrein hér á landi,
og jafnvel þótt víðar væri leitað. Af
einhverjum ástæðum hafa rafiðn-
greinar eins og rafvirkjun og raf-
eindavirkjun höfðað frekar til karla
en kvenna, en konur eru aðeins um
eitt prósent félagsmanna í Rafiðn-
aðarsambandinu.
Boðin vinna á staðnum
Aníta er ánægð með að hafa fundið
rafvirkjun og valið hana sem starfs-
vettvang, en sagan af því hvernig það
atvikaðist hófst á biluðum farsíma í
fæðingarorlofi.
„Ég átti á sínum tíma iPhone 4S og
skjárinn á honum brotnaði. Ég var
með lítið á milli handanna á þessum
tíma og fannst ótrúlega dýrt að láta
gera við símann. Þannig að ég pantaði
skjá á netinu og skipti um hann sjálf.
Það gekk upp og síminn var eins og
nýr. Skömmu eftir það fór hátalarinn
í símanum að stríða mér og ég ákvað
að panta hátalara og skipta honum út
líka. Það gekk en hljóðið virkaði samt
ekki og þannig neyddist ég til að fara
með hann í viðgerð.“ Hún sagði frá
því á verkstæðinu að hún hefði skipt
sjálf um skjá og hátalara en ekki tek-
ist að koma hljóðinu í lag. Henni
fannst viðmótið frekar sérstakt og af-
greiðslumaðurinn horfði á hana eins
og hún væri eitthvað skrítin. Sá sem
afgreiddi hvarf svo á bak við en kom
aftur og bauð henni vinnu við fjar-
skiptaviðgerðir. Það sem henni fannst
skrítið viðmót var þá miklu frekar
undrun yfir því hversu vel henni hafði
tekist til við að skipta um skjáinn og
hátalara. Í ljós kom að það hafði verið
móðurborðið í símanum sem var bil-
að, þannig að nýr hátalari hefði ekki
dugað til.
Þá segist Aníta hafa hugsað með
sér: „hvað ef ég gæti lagað móður-
borðið í símanum mínum sjálf?“ og
hún lét ekki þar við sitja heldur skráði
sig í nám í rafvirkjun eftir að hafa
unnið á áðurnefndu verkstæði við við-
gerðir á farsímum og fjarskiptatækj-
um í nokkra mánuði. Hún byrjaði í
kvöldskóla með vinnu haustið 2014 en
fór svo í fullan dagskóla og lauk nám-
inu á methraða. Nú, haustið 2018, hef-
ur hún lokið bóklega náminu, náms-
samningi og sveinsprófi og er orðin
rafvirki.
Í skólanum fékk hún kynningu frá
Orkuveitu Reykjavíkur og fannst
áhugavert og spennandi að fara að
starfa þar, við ansi mikið stærri vél-
búnað en síma og spjaldtölvur sem
hún hafði kynnst viðgerðum á í upp-
hafi. Hún hóf störf hjá Orku náttúr-
unnar (ON) fyrir einu og hálfu ári,
fyrst meðfram skóla en nú í fullu
starfi sem rafvirki.
„Þegar ég kem í viðtal hjá ON þá
var það eiginlega ákveðið þar og þá að
Stína yrði minn meistari og fyrir mér
var það miklu meira spennandi en að
fá karlmann. Hún er bráðgáfuð, ótrú-
lega fyndin, algjör snillingur og í dag
mín helsta fyrirmynd í þessum geira.
Það skemmtilegasta við starfið er
hvað það er fjölbreytt. Vélarstoppin
finnst mér skemmtilegust, þá eru allir
á hlaupum og allt stappað af starfs-
fólki sem keppist við að vinna hratt og
hörðum höndum. Annars hef ég mikið
verið í að laga og smíða stýriskápa
fyrir gufuveituna en núna upp á síð-
kastið hafa dagarnir einkennst af
miklum lagfæringum og breytingum
vegna úttektar. Ég vissi ekkert hvað
ég var að koma mér út í þegar ég
skráði mig í þetta nám, en með tím-
anum þá einhvern veginn hefur þetta
vaxið með mér og áhuginn verður allt-
af meiri og meiri. Það er fátt meira
spennandi en að vinna á svona stórum
vinnustað með svona stórar vélar og í
raun frekar hættulegu umhverfi. Það
er ákveðin spenna sem felst í því.“
Hún segist líka kunna vel við það,
sem áhugamanneskja um allt sem
tengist rafmagni, að starfa alveg við
uppsprettuna þar sem rafmagnið er
framleitt. „Þegar ég var í skólanum
var ég ekkert farin að hugsa svona
langt. Ég vissi ekkert hvað ég ætlaði
að gera við þetta nám og það var ekki
fyrr en ég fékk kynninguna í skólan-
um sem ég ákvað að mig langaði að
starfa hjá Orku náttúrunnar. Um-
fram það fékk ég einnig kynningu á
háskólum í Danmörku og þá var það
rafmagnstæknifræði sem greip mig,“
en hún segir kennara sína við Fjöl-
brautaskólann í Breiðholti hafa hvatt
sig til að kynna sér frekara nám. Í vor
heldur hún til Danmerkur með börn-
in, sem nú eru orðin tvö, í háskóla-
nám.
Fann sig ekki í menntaskóla
Aníta, sem nú er 27 ára, fór eins og
svo margir í hefðbundinn framhalds-
skóla strax að loknu skyldunámi en
fann sig aldrei þar og hætti. „Ég byrj-
aði að flakka á milli brauta í mennta-
skóla en fann mig aldrei almennilega,
svo einhvern veginn rataði ég á rang-
an veg í lífinu og flosnaði upp úr
skóla.“ Hún flutti síðan til útlanda en
kom heim þegar hún varð ólétt. Og
það var einmitt í fæðingarorlofi með
því barni sem hún kynntist rafvirkj-
uninni.
Þá fann hún í fyrsta sinn nám sem
hún tengdi við og henni fannst
skemmtilegt.
„Svo fór ég í þetta nám, þá varð allt
skýrara. Ég sá þarna leið til að búa
mér og barninu mínu góða framtíð.
Alveg frá því ég var barn hef ég alltaf
verið góð í öllu svona verklegu. Allt
sem tengist því að nota hugann og
vinna með höndum hefur verið
heillandi fyrir mér. Þegar ég byrjaði í
framhaldsskóla var ég yfirleitt að
gera eitthvað sem mér þótti síður
skemmtilegt og ég hugsa oft að ef
maður hefði haft gaman af því sem
maður var að læra, þá hefði maður
kannski enst í náminu.“
Kynningu ábótavant
Hún telur að oftar en ekki vanti kynn-
ingu á námi sem er í boði fyrir ungt
fólk. Henni hefði til dæmis aldrei dott-
ið í hug að fara í rafvirkjun ef ekki væri
fyrir það að henni var fyrir tilviljun
boðið starf á fjarskiptaverkstæði.
„Þegar ég hugsa til baka þá sé ég
hvað það vantaði að kynna betur hvað
maður gæti gert. Maður bara fer í
einhvern framhaldsskóla og maður á
að fara að læra eitthvað og maður veit
ekki neitt. Maður er ekkert upplýstur
eða fræddur um það almennilega
hvert hver braut leiðir mann.
Þegar ég byrjaði að læra rafvirkjun
var hver einasti tími í skólanum spenn-
andi og skemmtilegur. Við fengum að
gera svo margt í skólanum; hanna
stýringar fyrir allskonar færibönd sem
fóru þvers og kruss, tengdum umferð-
arljós, smíðuðum fm-sendi og spennu-
gjafa og alls konar. Allt mjög gaman.
Og ég fékk líka að prófa svo mikið
meðan ég var á námssamningi hjá ON.
Þá vann ég í götuljósum, húsaraf-
magni, virkjunum, veitum, ljósleiðara
og bara öllu. Það er mikilvægt að prófa
sem flest,“ segir Aníta, sem ekki hikar
við að mæla með faginu fyrir ungt fólk
sem er að velta fyrir sér námi.
„Rafmagnið er svo skemmtilegt og
fjölbreytt. Ég held að margir geri sér
ekki grein fyrir hvað rafmagnið er
stór hluti af okkar lífi. Rafmagnið er
hvar sem við erum, allar byggingar,
tæknin, skólarnir, bílarnir – allt er
háð rafmagni. Þú getur unnið við svo
margt. En rafmagn er aldrei einfalt.
Maður þarf alltaf að einbeita sér og
hugsa um hvað maður er að gera,“
segir þessi nýbakaði rafvirki.
Aníta með börn-
unum sínum tveim-
ur, þeim Mikael
Rafni og Helen Aríu
Björgvinsbörnum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Á dögunum gerðist það í fyrsta sinn að kona lauk
sveinsprófi í rafvirkjun með konu sem meistara.
Bæði meistarinn og sveinninn segja rafvirkjun
henta bæði konum og körlum.
Eyrún Magnúsdóttir eyrun@mbl.is
Bilaður sími
örlagavaldur
Kristín Birna Fossdal rafvirkja-
meistari hefur unnið við fagið frá
árinu 1996. „Ég byrjaði 15 ára
gömul að vinna við viðgerðir,“
segir Kristín en það var í raun
hending sem réð því að hún valdi
sér þessa braut. „Í 10. bekk áttum
við að velja okkur hvert við vild-
um fara í starfskynningu. Það
vildi svo til að það var rafvirki að
vinna heima akkúrat þennan
morgun og ég bara bað hann um
að taka mig í starfskynningu.
Hann bauð mér vinnu eftir kynn-
inguna,“ segir Kristín, sem hóf
þegar störf við viðgerðir um sum-
arið eftir 10. bekk.
Svo vel kunni hún við starfs-
kynninguna og sumarvinnuna að
hún fór beint að læra fagið. Hún
tók sveinsprófið árið 2001. „Þeg-
ar ég útskrifast úr sveinsprófinu
þá var mér sagt að ég væri ní-
unda konan hér á landi til að
ljúka því. Það hefur bæst mikið
við síðan þá,“ segir Kristín, en
hún varð rafvirkjameistari árið
2010.
Hún segir Anítu hafa verið af-
bragðsnema. „Hún á eftir að
spjara sig. Hún er dugleg og vill
læra. Núna er hún orðin fullnuma
rafvirki og ég er bara nokkuð
stolt af henni,“ segir meistarinn
um nemann.
En Kristín vill gjarnan sjá fleiri
konur sækja í rafvirkjun. „Ég held
kannski að of margar stelpur sjái
rafvirkjun fyrir sér sem eitthvert
„skítadjobb“ og að þær þurfi að
vera á skítugu verkstæði. En þetta
er alls ekki þannig. Starfið er
mjög fjölbreytt og það hentar
konum ekki síður en körlum, jafn-
vel hentar konum bara betur en
körlum. Þetta er alls ekki bara
karlastarf. Þetta er til dæmis ekki
líkamlega erfitt starf, eins og
margir kynnu að halda. Þetta er
mjög fjölbreytt starf og þú getur
valið þér hvaða leið þú ferð.“
Á vinnustað Kristínar og
Anítu, Orku náttúrunnar, eru
alla jafna fjögur nemapláss fyrir
iðnnema. Að sögn Kristínar eru
tvö pláss ætluð stelpum og tvö
ætluð strákum, en hugmyndin
með því er að mynda hvata fyrir
stelpur í iðnnámi að koma inn á
nemasamning.
„Ég myndi vilja fá fleiri konur í
þetta fag. Við sem störfum við
þetta þurfum líka að verða sýni-
legri, vera duglegri að segja frá
því að það eru konur í þessu fagi
líka,“ segir Kristín Birna.
Vill fleiri konur í fagið
Kristín Birna
Fossdal og
Aníta Sigurbjörg
Emilsdóttir.
Ljósmynd/Gunnar Svanberg