Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.11.2018, Síða 16
VIÐTAL
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.11. 2018
V
ampírur og beinagrindur fylgja
mér upp götuna. Hrekkjavakan
er greinilega komin til Íslands.
Eins og þetta föruneyti er furðu-
legt er það viðeigandi þetta svala
vetrarsíðdegi enda var barnæska mannsins
sem ég er að fara að hitta hrollvekju líkust.
Alltént dettur mér ekkert betra orð í hug til að
lýsa þeim skelfilegu raunum sem Hasim Ægir
Khan gekk í gegnum; fyrst á Indlandi, þar sem
hann er borinn og barnfæddur, og síðan hér í
fásinninu, eftir að örlögin skiluðu honum til Ís-
lands.
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, sem skráð hefur
sögu Hasims, tekur á móti mér og býður mér
til stofu, þar sem Hasim hefur komið sér mak-
indalega fyrir með kaffibolla og vínarbrauð.
Hann heilsar glaðlega og býður af sér góðan
þokka. Hann ber það ekki með sér að hafa lifað
erfiðara lífi en gengur og gerist hér um slóðir –
og þótt víðar væri leitað. Bókin, Hasim – götu-
strákur í Kalkútta og Reykjavík, kom út fyrir
helgi og Hasim er hér staddur til að fylgja
Lífshlaup Hasims Ægis Khan er með miklum ólíkindum. Þegar hann var sex ára var
hann borinn út af fósturömmu sinni og endaði á götunni í annarri borg. Þar þurfti
hann að læra nýtt tungumál. Þegar Hasim var tólf ára var hann ættleiddur til Íslands
en lenti á vergangi skömmu seinna eftir að fjölskyldan skilaði honum, ef svo má að
orði komast. Við tók strembinn tími þar sem Hasim barðist bókstaflega fyrir lífi sínu.
Einn og umkomulaus í framandi landi. Og hafði betur. Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
hefur skráð þessa átakanlegu sögu og kom bókin út fyrir helgina.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
„Þetta er mjög mikil saga og maður
skynjar sterkt hversu mikið tilfinningalegt
álag þetta hefur verið á lítið barn,“ segir
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, sem skráð
hefur ævisögu Hasims Ægis Khan.
Kraftaverk að
hann hafi lifað