Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.11.2018, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.11.2018, Blaðsíða 25
4.11. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25 Saltaðar sítrónur eru gjarna kallaðar „marokkóskar sítrónur“ enda eru þær ómissandi í þarlendri mat- argerð. Það má nota allt innihald- ið úr krukkunni. Börkurinn er gjarna skorinn smátt og settur út á matinn alveg í lok eldunartíma eða áður en hann er borinn fram. Aldinkjötið má nota sem krydd í eldamennsku og saf- ann er frábært að nota til að krydda kjöt eða fisk eða til að dreypa yfir nánast hvað sem er. Veljið sítrónur með þunn- um berki. Þessar með þykka berkinum eru ekki góðar í uppskriftina. Það er mikilvægt að nota lífrænt Þekið, fergið, lokið krukkunni og komið henni fyrir á diski eða fati. Fyrstu dagana safnast saltið fyrir á botninum og hér og þar í krukkunni. Til að hjálpa til við að leysa saltið upp borg- ar sig að velta eða hvolfa krukkunni daglega þar til saltið er uppleyst. Látið gerjast í 4-6 vikur við stofuhita og færið svo í kæli. Sítrónurnar verða bara enn betri með tím- anum og geymast í það minnsta í eitt ár í kæli. Dagný mælir með að borða hrökkbrauð með hummus, litlum bitum af saltpækluðum sítrónum og ristuðum sesam- fræjum. ræktaðar sítrónur eða sítr- ónur sem ekki hafa verið sprautaðar með eitri. Fyrir hverja sítrónu þarf 10 g af fínmöluðu salti og í tveggja lítra krukku passar oftast að setja 14 sítrónur. 14 sítrónur 140 g salt Snyrtið endana af sítrón- unum og skerið þær í fjóra báta. Veltið bátunum upp úr salti svo það loði við þær. Setjið þær í krukku og þrýstið vel svo safinn leki úr. Gætið þess að sítrónurnar séu á kafi í eigin safa. Ef saf- inn úr sítrónunum er ekki nægur má bæta dálitlum nýkreistum sítrónusafa í krukkuna. Saltaðar sítrónur Jólarauðkál er fallegt á borði og fer vel með hátíð- armatnum, eplabátarnir draga í sig litinn úr rauðkál- inu og verða dökkrauðir og fallegir. 1,2 kg rauðkál 4-5 lítil epli 25-30 g salt Geymið eitt til tvö heil kál- blöð, skerið kálhöfuðið í fernt og fjarlægið stilkinn. Skerið kálið fínt og setjið í stóra skál ásamt salti. Blandið vel og látið standa þar til kálið fer að svitna og nuddið þá og hnoðið þar til vökvinn flæðir úr græn- metinu. Kjarnhreinsið epl- in, skerið þau í báta og blandið öllu vel saman. Ef notuð eru lífrænt ræktuð epli er um að gera að halda hýðinu á bátunum. Færið nú kálið yfir í krukku en farið ögn varlega til að komast hjá því að brjóta eplabátana. Þekið með kál- blaðinu og fergið. Gætið þess að vökvinn hylji græn- metið. Komið krukkunni fyrir á diski og látið gerjast í 3-5 vikur við stofuhita. Geymist í nokkra mánuði í kæli. Jólarauðkál Curtido er súrkál ættað frá El Salvador. Blandan er vinsæl enda er curtido hreinlega gott með öllu. Dagný segir að ef ætlunin sé að frelsa einhvern sem sé illa við súrkál mæli hún með því að bjóða viðkomandi curtido að smakka. Hún segir það vera sérlega gott með kasjúhnetusmjöri ofan á t.d. maískexi. Þar að auki sé það gull- fallegt og minni frekar á frískandi salat en það súrkál sem flestir þekkja. 1,5 kg hvítkál 150 g rauð paprika 100 g gulrót 100 g laukur 10 g hvítlaukur 1 msk. þurrkað óreganó ½ msk. Gochugaru-chiliflögur ½ tsk. broddkúmen 30-35 g salt Geymið eitt til tvö heil kálblöð, skerið kálhöfuðið í fernt og fjar- lægið stilkinn. Skerið hvítkálið í fína strimla, paprikuna í bita og gulræturnar í þunnar sneiðar. Sax- ið laukinn smátt og kremjið hvít- laukinn. Setjið allt grænmetið í stóra skál ásamt kryddi og salti. Blandið vel og látið standa þar til grænmetið fer að svitna og nudd- ið þá og hnoðið þar til vökvinn flæðir úr grænmetinu. Færið nú blönduna yfir í krukku, þekið með kálblaðinu og fergið. Gætið þess að vökvinn hylji grænmetið. Kom- ið krukkunni fyrir á diski og látið gerjast í 3-4 vikur við stofuhita. Geymist mánuðum saman í kæli. Curtido er oft orðið mjög bragðgott eftir 7-10 daga en verð- ur enn betra ef það fær að gerjast í 3-4 vikur. Curtido Curtido er hér lengst til hægri. Opið: 8-18 virka daga 10-14 á laugardögum Síðumúla 22 | Sími 517 0404 | serefni.is Spiced Honey litur ársins 2019

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.