Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.11.2018, Page 30

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.11.2018, Page 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.11. 2018 M jög er rætt um þann fjand- skap, stóryrði og fullyrð- ingar í bland við fáránleika og heimsku sem einkennir framgöngu margra á net- miðlum. Þar eru jafnvel beinar atlögur að heiðri og tiltrú einstaklinga sem flókið og jafnvel ómögulegt er að láta menn ábyrgj- ast. Ærumat sveiflast Þróun hjá dómstólum virðist um þessar mundir vera sú að veita stóryrtum og fullyrðingasömum ríku- legra svigrúm með vísun til málfrelsis en beinlínis má lesa út úr lögunum sjálfum. Slík þróun er skiljanleg og jafnvel æskileg þótt æskilegra kynni að vera að sá aðili sem stjórnarskráin ætlar að leggja línuna geri það, veiti leiðbeiningar eða gefi bein lagafyrirmæli um breytt mat. En það er líka hugsan- legt að dómstólar horfi til ástandsins á netinu en mál þaðan berast seint og illa til þeirra vegna takmark- aðs rekjanleika. Fjölmiðlar sem rísa undir því nafni, sem eru nú orðnir fáir á Íslandi, hafa sín sigti, þótt þar sleppi samt eitt og annað í gegn. Netið er allt önnur saga, þótt þar sé mikill munur á þeim sem bestir eru og hinum lökustu. Sennilega verður ekki raunveruleg bót gerð fyrr en finnst leið til að láta alla menn bera þar ábyrgð á orðum sínum eða þá að aðrir axli fyrir þá ábyrgð eins og er reglan á hinum almennu fjölmiðlum. Allir fjölmiðlar sem eitthvað geta gefa skoðunum miðilsins aukinn þunga með því að hann ber ábyrgð á því sem þar er sagt í ritstjórnardálkum. Minni háttar fjölmiðlar treysta sér ekki til að hafa eiginlega skoðanadálka fjölmiðilsins og þar eru ein- stakir starfsmenn látnir viðra sjónarmið sín og getur því viðhorfið verið eitt í dag og annað á morgun og segir ekkert um stefnu miðilsins. Þegar talað er í leiðurum eða sambærilegum ritstjórnargreinum er talað í nafni fjölmiðilsins og hann ber því ábyrgð á þeim orðum. Því fylgir krafa um að samhengi sé í þeim skoðunum og þær séu vel grundaðar. Ævisögur eru enn eftirsóknarverðar bækur. Mis- vel er þó að slíkum bókum staðið og iðulega telja menn sig þá þurfa litla ábyrgð að taka á sínum orð- um. Og það fer ekki illa á því að í slíkum bókum sé svigrúmið mikið. Enda er þá ekki farið í felur með hver samþykkir endanlega frásögn. Gallagripur tekur öllu vel Seint verður sagt um bréfritara að þar fari gallalaus maður. Væri hann hús og lyti fasteignaviðskiptum væri honum vísast óhætt að segja að þótt hann væri göllum hlaðinn þá hefði hann hvergi rúm fyrir leynda galla lengur. Bréfritari er svo sem ekki að dreifa um sig nei- kvæðum sögum nema helst til gamans og á þá erfitt með að stilla sig. En hann býr svo vel að stór hópur sjálfboðaliða er iðinn við að upplýsa heiminn um galla hans. Það er eitt af undrum tilverunnar hversu mörgum göllum má koma fyrir á einu eintaki og hlýtur þó margt að vera enn ósagt, því margir eru enn að. Virðingarvert er að tiltölulega fáir úr þeim fjölda eru gerðir út af mönnum með illa fengið fé sem þeir í iðrunarskyni verja í göfgandi verkefni eins og að Þegar Öræfajökull ræskir sig þarf enginn að gefa honum orðið Reykjavíkurbréf02.11.18

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.