Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.11.2018, Blaðsíða 35
4.11. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 35
BÓKSALA 24.-30. OKTÓBER
Listinn er tekinn saman af Eymundsson
1 Jól í litla bakaríinuJenny Colgan
2 Afmæli hjá LáruBirgitta Haukdal
3 Sextíu kíló af sólskiniHallgrímur Helgason
4 Lára fer til læknisBirgitta Haukdal
5
Reykjanesskagi
– Náttúra og undur
Ellert Grétarsson
6 Ljóð muna ferðSigurður Pálsson
7 Siggi sítrónaGunnar Helgason
8 Mín sökClare Mackintosh
9 Er ekki allt í lagi með þig?Elísa Jóhannsdóttir
10 Horfið ekki í ljósiðÞórdís Gísladóttir
1 Afmæli hjá LáruBirgitta Haukdal
2 Lára fer til læknisBirgitta Haukdal
3 Siggi sítrónaGunnar Helgason
4 LjóðpundariÞórarinn Eldjárn
5 StormskerBirkir Blær Ingólfsson
6 DraumurinnHjalti Halldórsson
7
Úlfur og Edda
– Drottningin
Kristín Ragna Gunnarsdóttir
8 JólasveinarannsókninBenný Sif Ísleifsdóttir
9 Langelstur í leynifélaginuBergrún Íris Sævarsdóttir
10 Hvolparnir bjarga jólunum
Allar bækur
Barnabækur
Mér var að berast í hendur jóla-
gjöf sem lenti á vergangi – gríðar-
mikill doðrantur sem ég fékk að
gjöf jólin 2016, en
varð svo viðskila við
á kaffihúsi eða bar í
miðbæ Reykjavíkur.
Þetta er Jón lærði &
náttúrur náttúrunn-
ar eftir Viðar
Hreinsson, og hefur
nú loks borist mér eftir miklum
krókaleiðum; ég tók hana úr gjafa-
pappírnum í gær og hlakka mikið
til að lesa hana.
Í vikunni lauk ég
við tvær nýjar ís-
lenskar bækur:
Krossfiska eftir Jón-
as Reyni og Kláða
eftir Fríðu Ísberg og
var ánægður með
báðar. Er svo hálfnaður með stór-
kostlega bandaríska skáldsögu,
The Overstory eftir
Richard Powers,
sem fjallar um
manneskjur og tré –
og loftslagsbreyting-
arnar. Það er eigin-
lega fyrsta skáld-
verkið sem ég les
sem tekur á þeim vanda okkar
með sannfærandi hætti. Ég les
hana hægt; þetta er í raun ljóð,
dulbúið sem skáldsaga. Og það
eru jafnan bestu bækurnar.
ÉG ER AÐ LESA
Sverrir
Norland
Sverrir Norland er rithöfundur.
Fyrsta smásaga Arndísar Þór-arinsdóttur birtist árið 2005og fyrsta skáldsagan, Játn-
ingar mjólkurfernuskálds, kom út
2011. Sú bók segir frá unglings-
stúlku sem neyðist til að hefja skóla-
göngu á nýjum stað. Ný skáldsaga
hennar, Nærbuxnaverksmiðjan, er
ætluð yngri lesendum og segir frá
ævintýrum Gutta og Ólínu í Brókar-
enda, en þar snýst lífið um nær-
buxur og nærbuxnaverksmiðjuna
sem gnæft hefur yfir hverfið svo
lengi sem elstu börn muna.
— Bókin byggist á býsna óvenju-
legri hugmynd, hvaðan er hún kom-
in?
„Ég spurði son minn, sem þá var
fimm ára: Jæja Þórarinn minn, ef
mamma myndi skrifa sögu fyrir þig,
um hvað ætti hún að vera? Við vor-
um búin að vera að lesa mjög mikið
af Kafteini Ofurbrók svo að hann
svaraði að bragði að sagan ætti að
vera um nærbuxur. Og vélmenni, af
því að hann er áhugamaður um vél-
menni, og vélmenni sem skýtur
nærbuxum. Svo þurfti ég að greiða
úr þessu, varð að skrifa eftir þessari
fyrirsögn. Hann fékk svo handritið í
jólagjöf um síðustu jól.“
Sigmundur Breiðfjörð mynd-
skreytir bókina og Arndís lýsir mik-
illi ánægju með myndir hans. „Ég
hef aldrei hitt Sigmund samt, við
höfum verið í tölvupóstsambandi, en
hann býr í Kanada. Maður sér það
svo í myndunum hvað honum hefur
þótt skemmtilegt sjálfum að teikna
alla þessa nærbuxnabrandara, það
er svo mikill leikur í myndunum.“
— Það hlýtur líka að hafa verið
skemmtilegt fyrir þig að skrifa bók-
ina með öllum þessum orðaleikjum
og útúrsnúningum.
„Maður er alltaf pínulítið hrædd-
ur um að maður sé að kenna börn-
unum einhverja vitleysu áður en
þau læra eitthvað rétt. Það verður
að fara einhvern milliveg og það
verður líka að vera gaman fyrir þá
sem eru að lesa fyrir börnin, en ég
skrifaði söguna einmitt svolítið til
þess að vera lesin upphátt. Ég vildi
hafa umfjöllunarefni sem höfðaði til
fimm til sjö ára barna, en textinn er
þungur þannig að sagan virkar al-
veg fyrir eldri krakka.“
Brókarflokkur í aðsigi
— Sérðu fyrir þér að þessi bók sé
byrjun á einhverju?
„Ég vona það. Þegar ritstjórinn
minn nefndi brókarflokk þá var ekki
hægt annað en að taka undir það,
við Sigmundur erum bæði til í tusk-
ið,“ segir Arndís og skellir upp úr.
— Það kemur talsvert út af nýj-
um íslenskum barnabókum í ár, er
uppsveifla í bókum fyrir börn?
„Já, og ég held að þetta sé afleið-
ing af mjög heilbrigðri umræðu síð-
ustu tveggja ára. Í samhengi við
PISA-niðurstöður og rannsóknir á
lestri þá kemur hratt upp sú niður-
staða að það var bara ekki og er
ekki nóg af bókum fyrir börn sem
lesa mikið. Þau eru bara búin með
það sem kemur út í febrúar og þá er
ekkert væntanlegt mánuðum sam-
an. Það er ekki hægt að lesa Enid
Blyton endalaust árið 2018.
Ég held að að einhverju leyti sé
þetta viðbragð frá höfundum og út-
gefendum, þetta ákall um bækur
heyrist og það er mjög gott að það
er að virka. Það kom í síðustu viku
frétt frá Menntamálastofnun um að
lesfimi væri að aukast meðal barna
og þau telja að þetta hangi allt sam-
an, öll þessi umræða, öll þessi
lestrarhvatning – fólk er farið að
vera meðvitað um að barnabókin
skiptir máli. Það verður að vera
gaman að lesa til að maður nenni að
læra að lesa.“
Það verður að vera
gaman að lesa
Lífið í Brókarenda, sem birtist í nýrri barnabók Arndísar Þórarinsdóttur,
snýst um nærbuxur, eða réttara sagt nærbuxnaverksmiðju.
Árni Matthíasson arnim@mbl.is
Arndís Þórarinsdóttir segir að
fólk sé farið að vera meðvitað
um að barnabókin skipti máli.
Morgunblaðið/Hari
SKECHERS RELMENT PELMO HERRASKÓR MEÐ MEMORY FOAM
INNLEGGI. STÆRÐIR 41-47,5. FÁST LÍKA GRÁIR OG BEIGE.
HERRASKÓR
KRINGLU OG SMÁRALIND
14.995