Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.11.2018, Síða 37

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.11.2018, Síða 37
KVIKMYNDIR Draggdrottning deyr úr krabbameini, skápahommi tekur ástlaust hjónaband fram yfir manninn sem hann elskar, eldri lesbía snýr heim úr ævintýraferð í grásmóskulegan hversdaginn, hommi ákveður að vera áfram í skápnum starfsferils síns vegna og samkyn- hneigður faðir sviptir sig lífi eftir að honum er útskúf- að. Þetta var meðal þess sem Benjamin Lee, sem sat í dómnefnd á alþjóðlegri kvikmyndahátíð í New York á dögunum, þar sem samkynhneigð var þemað, upplifði. Niðurstaða hans er eftirfarandi: Ætli kvikmyndir um samkynhneigða að halda áfram að þróast verða þær að hleypa einhverri gleði inn. Ekkert sé að því að kvikmynd ljúki á jákvæðum og giftusamlegum nótum, alltént endrum og sinnum. 4.11. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 37 Inn með gleðina! Depurð. Frá Gay Pride í Taívan. AFP Synd væri að segja að verðlaunamyndin Broke- back Mountain endaði vel. Dassler-bræður elduðu grátt silfur. Bræðraslagur RÚV Bræður munu berjast er þýsk mynd í tveimur hlutum og verður sá fyrri á dagskrá í kvöld, sunnu- dagskvöld. Myndin segir sögu Dass- ler-bræðranna, sem stofnuðu Adi- das og Puma. Á þriðja áratugnum hófu Adi og Rudi Dassler að fram- leiða íþróttaskó. Bræðurnir voru gerólíkir og milli þeirra myndaðist óvild sem varð til þess að leiðir skildi og þeir stofnuðu sitt íþrótta- merkið hvor. Aðalhlutverk: Christi- an Friedel og Hanno Koffler. SJÓNVARP SÍMANS gerir sér lítið fyrir og hend- ir í tvo gamla spennutrylla í kvöld, laugardags- kvöld. Fyrst er það Die Hard With a Vengeance frá 1995 með Bruce Willis, Jeremy Irons og Samuel L. Jackson í aðalhlutverkum. Myndin, sem fjallar um harðhausinn John McClane, er bönnuð börnum yngri en 12 ára. Á hæla henni kemur D.O.A. frá 1988 með Dennis Quaid og Meg Ryan í aðalhlutverkum. Enskuprófessorinn Dexter Cornell flækist í röð morðmála sem tengj- ast öll fólki í kringum hann. Myndin er stranglega bönnuð börnum. Yfirspenna Meg Ryan STÖÐ 2 Mr. Mercedes eru spennu- þættir úr smiðju Davids E. Kelley og Stephens King sem sýndir eru á sunnudagskvöldum en þeir byggj- ast á metsölubókum þess síðar- nefnda. Brendan Gleeson leikur Bill Hodges, rannsóknarlögreglu- mann á eftirlaunum, sem berast dularfull skilaboð. Þau tengjast óleystu sakamáli sem hann hefur átt erfitt með að gleyma. Brendan Gleeson leikur aðalhlutverkið. Kingimagnað Miði á A svæði kr. 7.500 Miði á B svæði kr. 6.000 Kynnir: Gísli Einarsson Eftirtaldir listamenn koma fram og styrkja verkefnið: Karlakórinn Esja, stjórnandi Kári Allansson Geir Ólafsson Gissur Páll Gissurarson Guðrún Gunnars, Margrét Eir og Regína Ósk Guðrún Árný Karlsdóttir Helgi Björnsson Hrafnhildur Árnadóttir Hafstað Kristinn Sigmundsson Matthías Stefánsson, fiðluleikari Páll Rósinkranz Raggi Bjarna Sverrir Bergmann Undirleikarar: Halldór Gunnar Pálsson, Hilmar Örn Agnarsson, Þorgeir Ástvaldsson, Þórir Baldursson Barna- og unglingageðdeild LSH og Líknarsjóði Fjörgynjar Lionsklúbburinn Fjörgyn stendur fyrir tónleikum til styrktar Stórtónleikar í Grafarvogskirkju 8. nóvember 2018, kl. 20:00

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.