Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.11.2018, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.11.2018, Blaðsíða 6
ERLENT 6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11.11. 2018 Pep Guardiola, þjálfari Man- chester City, sagði að félagið snerist um meira en peninga. „Ég er fullkomlega heiðar- legur, ég veit ekki hvað gerist því að ég er þjálfari,“ sagði hann fyrir viðureign liðsins við Shaktar Donetsk í meist- aradeild Evrópu á miðviku- dag. „Ég einbeiti mér að því sem gerist á vellinum, í búningsklefanum.“ Síðan bætti hann við: „Ef fólk segir að þetta snúist bara um peninga verðum við að taka því, en það sjón- armið er al- gerlega rangt.“ Margt hefur breyst í heimiknattspyrnunnar á und-anförnum áratugum. Nokkur knattspyrnuliðið tróna á toppnum og þannig er búið um hnúta að erfitt er að velta þeim úr sessi ef ekki ómögulegt. Undanfarna viku hafa jafnt og þétt birst upplýsingar úr lekaskjölum, Football Leaks, sem benda til að hinar rúmu reglur dugi sumum þeirra bestu ekki til. Lengra hafi verið gengið til að tryggja sig í sessi og þegar upp hafi komist hafi verið gefinn afsláttur á refsingunni. Enska félagsliðið Manchester City og franska liðið Paris Saint-Germain hafa verið í eldlínunni í lekanum. Á fimmtudag birti þýska tímaritið Der Spiegel á vefsíðu sinni fjórða hluta greinaflokks síns úr lekaskjölunum. Þar er því lýst hvernig City geti í krafti peninga knúið lið til að láta leikmenn af hendi þótt þau hafi engan áhuga á að selja þá. Belginn Kevin de Bruyne, einn besti leikmaður heims, er nefndur sem dæmi. Hann lék hjá Wolfsburg og liðið ætlaði að halda honum, en það tókst ekki. „Þegar City vill fá leikmann hvað sem hann kostar kiknar jafnvel bíla- framleiðandi með 200 milljarða evra veltu,“ segir í Der Spiegel og er vísað til bílaframleiðandans Volkswagen. Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, setur reglur, sem eiga að tryggja sanngirni í fjármálum inn- an íþróttarinnar. Financial Fair Play, skammstafað FFP, nefnast þær á ensku og voru settar til að koma í veg fyrir að knattspyrnu- félög hlæðu upp skuldum og tak- marka hversu mikið tap mætti vera á rekstri þeirra á tilteknu tímabili. Fyrir fjórum árum sektaði UEFA Manchester City um 60 milljónir evra (8,3 milljarða króna) fyrir að brjóta reglurnar. Í kjölfarið var samið um að félagið fengi 40 milljónir evra (5,5 milljarða króna) til baka héldi það samkomulagið. Dýr brottrekstur þjálfarans Rob- ertos Mancinis 2013 fyrir að ná ekki að verja meistaratitil félagsins olli því hins vegar að allt benti til að þeir myndu brjóta FFP-reglurnar. Der Spiegel vitnar í tölvupóst fjár- málastjóra City, Jorges Chumillas: „Okkur mun vanta 9,9 milljónir punda (1,6 milljarða króna) til að standast UEFA FFP þetta tímabil. Hallinn er vegna brottreksturs RM [þjálfara]. Ég held að eina lausnin væri viðbót við kostunarupphæð AD [Abú Dabí] til að brúa bilið.“ Annar yfirmaður hjá City leggur síðan að sagt er til að gert verði „sam- komulag dagsett aftur í tímann til næstu tveggja ára … borgað fyr- irfram“. Í Der Spiegel segir að tíu dögum eftir lok tímabilsins hafi fjármála- stjórinn tilkynnt að samningarnir við kostunaraðilana yrðu lagaðir til. Helsti kostunararaðilinn, Etihad, ríkisflugfélag Sameinuðu arabísku furstadæmanna, myndi borga 1,5 milljónir punda (238 milljónir króna) til viðbótar, ferðamálaráð Abú Dabí bæta við 5,5 milljónum punda (874 milljónir króna) og fjárfestingasjóð- urinn Aabar hálfri milljón punda (79 milljónum króna). Þegar Chumillas spyr starfsbróður sinn Simon Pearce hvort breyta megi dagsetningu greiðslnanna frá kost- unaraðilunum var svarið samkvæmt lekagögnunum: „Auðvitað, við getum gert það sem okkur sýnist.“ Á bak við þetta eru spurningar um uppruna peninganna. Að baki Man- chester City er fjárfestingafélagið ADUG, sem er í eigu auðkýfingsins Mansours bin Zayeds Al Nains. Hann er einnig varaforsætisráðherra Sam- einuðu arabísku furstadæmanna. Takmörk eru fyrir því hvað eigendur mega dæla miklu fé í leikmannakaup, en þau hækka komi kostunaraðilar til sögunnar. Stóra spurningin er hvort kostunaraðilarnir í þessu tilfelli séu óháðir eða handbendi eigandans. Fé- lagslið á borð við Bayern München og Atlético Madrid hafa kvartað undan þessum viðskiptaháttum. Sams konar ásakanir koma fram í lekaskjölunum um Par- ísarliðið PSG, sem einnig þurfti að borga sekt 2014 fyrir að hafa brotið FFP- reglurnar. Liðið gerði eins samning og City um endurgreiðslu ef það stæði við skilmála samkomulagsins um sektina. Bæði City og PSG sluppu við þyngstu refsinguna við brotum á reglunum; útilokun frá keppni í Meistaradeild Evrópu. Eigandi liðsins er frá Katar og er dregið í efa að fimm ára samningur við ferðamálaráð Katar upp á 1,075 milljarða evra (138 milljarða króna) standist skoðun. Í niðurstöðum þeirra sem fóru yfir skjölin segir að UEFA hafi „af ásettu ráði hjálpað félögunum að hylma yfir eigin brot af pólitískum ástæðum“. Hlutaðeigandi félög og UEFA hafna ásökunum og segja tilvitnanir og upplýsingar úr gögnunum slitin úr samhengi. Á vefsíðu samtakanna European Investigative Collaborators, sem halda utan um gögnin og hafa unnið að birtingu þeirra í samvinnu við valda fjölmiðla, segir að upplýsing- arnar um „hvernig leynisamningar embættismanna félagsliða, leiðandi knattspyrnusambanda, umboðs- manna, fjárfesta og leikmanna hafi spillt vinsælustu íþrótt heims“ bygg- ist á rannsókn á rúmlega 70 milljón skjölum, 3,4 terabætum upplýsinga alls, sem nái allt til þessa árs. „Við getum gert það sem okkur sýnist“ Birting lekaskjala bendir sterklega til maðka í mysu knattspyrnunnar. Hinir afhjúpuðu kenna um hælbítum og hatursmönnum. Karl Blöndal kbl@mbl.is Pep Guardiola Ekki bara um peninga AFP Leikmenn Manchester City létu lekafréttir sem vind um eyru þjóta og völtuðu yfir Shakhtar Donetsk með sex mörkum gegn engu í meistaradeild Evrópu á miðvikudag. Hér hnýtur Raheem Sterling eftir að hafa stungið tá í svörð og fær víti. BOTSVANA Hundruð buffala drukknuðu í á sem liggur á landamær- um Botsvana og Namibíu. Yfi rvöld í Botsvana segja að það líti út fyrir að ljón hafi elt buffalana og þeir síðan lent í ánni en ekki komist upp árbakkann hinum megin. Ekki er óalgengt að dýr drukkni í ánni en ekki er vitað til þess að svo mörg dýr hafi áður drepist í einu en yfi rvöld meta það svo að um 400 dýr hafi drukknað. SKOTLAND EDINBORG Óþekktur listamaður hefur sett svip sinn á umferðarmerki í Edinborg. Mynd- irnar minna á verk ítalska listamannsins Clet Abraham en verk hans seljast á hundruð þús- unda króna. Margir eru ánægðir með framtakið og vilja ekki að borgin skipti merkingunum út því skreytingarnar, sem m.a. eru blóm og vínglös, hressi upp á umhverfi ð en á sama tíma séu umferðarmerkingar skýrar. BANDARÍKIN Þátttaka í kosningunum í Bandaríkjunum á þriðjudag var óvenju mikil. Hún var sú mesta í meira en hálfa öld í kosningum þegar ekki er kosið um forseta. Rúmlega 47% fólks á kosningaaldri greiddu atkvæði. Þátttakan var 36,7% árið 2014 og 41% árið 2010. Fleiri hafa ekki kosið frá 1966 þegar 49% nýttu kosningarétt sinn í sambærilegum kosningum. SPÁNN Spænska lögreglan handtók mann sem lagði á ráðin um að myrða forsætisráðherra landsins, Pedro Sánchez. Maðurinn, sem er 63 ára, var með mikið magn óskráðra vopna af ýmsu tagi á heimili sínu. Fjölmiðlar á Spáni hafa greint frá því að maðurinn hafi viljað hefna fyrir að Sánchez ætli sér að grafa upp líkamsleifar Francisco Franco. Grafhýsi einræðisherrans Franco er í miklum metum hjá öfgahægrifólki á Spáni.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.