Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.11.2018, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.11.2018, Blaðsíða 17
ekki eigi að ræða persónuleg mál og vilja heim- færa það upp á aðra, ekki síst til þess að hlífa sjálfum sér. Ég skil vel að sumir velji að hvíla innan síns þægindaramma og ég er ekki að segja að allir eigi að opinbera allt. Hver og einn verður að fá að finna sinn eigin takt.“ Gríðarlegar hremmingar Ásdís Halla leitaði víða að ástæðum fyrir því að þessar tilfinningar kviknuðu og segir að í sögulegu samhengi þekkist það að þegar ætt- ingjar kynnast á fullorðinsárum sjái fólk sjálft sig í hinum aðilanum og verði mjög brugðið. „Það að sjá sjálfan sig og sjá skyldleikann við annað fólk veldur því að það myndast til- finningar og kenndir sem fólk kann ekki að túlka almennilega. Það á sér jafnvel stað ein- hvers konar hrifning af því að sjá sjálfan sig í öðrum einstaklingi sem auðvelt er að rang- túlka og halda að sé hrifning af einstaklingn- um sem líkist manni. Þar sem ekki eru til orð yfir sterkar tilfinningar á milli náskyldra ein- staklinga sem kynnast á fullorðinsárum er auðvelt að misskilja eða rangtúlka ólguna innra með sjálfum sér. Maður getur fallið í þá gryfju að flytja hugtök sem maður þekkir úr öðrum aðstæðum yfir á þessar nýju aðstæður sem eru skyldar en samt annars eðlis. Þegar réttu orðin eru ekki til er svo auðvelt að mis- skilja sjálfan sig! Í framhaldinu getur maður gert afdrifarík mistök,“ segir hún. „Ég hugsa að það megi líkja því sem gerðist t.d. við það þegar sjúklingur hrífst af lækni eða sálfræðingi og telur að umönnunin og athyglin sé kærleikur eða ást. Ég undirstrika þó að ég er enginn sérfræðingur á þessu sviði og ætla mér ekki að reyna að leysa neina gátu. Ég get lítið annað gert en að lýsa eigin reynslu sem ég reyni að gera heiðarlega og opinskátt. Það eru engin sérstök fræði á bak við frásögnina en mér þætti vænt um að sjá aðra taka við keflinu eins og félagsráðgjafa, líffræðinga, sálfræðinga, geðlækna, erfðafræðinga eða aðra vísindamenn sem gætu skoðað þetta fræðilega því að í dag eru börn getin með svo margvíslegum hætti og blóðtengsl meira á reiki en oft áður. Þá er meiri hætta á því að svona gerist. Það ætti að gefa þessu meiri gaum af greiða við fólk sem gæti lent í snúnum kynnum. Af því að þetta eru gríð- arlega miklar hremmingar sem margir jafna sig aldrei á,“ segir hún. Nú er bókin komin út. Óttastu að vera litin hornauga og dæmd af samfélaginu? „Ég er að birta efni þessarar bókar því ég ætla ekki að flýja; ekki að loka mig af út af skömm og alls ekki að ganga í sjóinn. Ég stjórna ekki hvað gerist þegar sagan kemur út; ég get bara stjórnað hvernig mér líður. Ég er búin að fara í gegnum þessar tilfinningar og hugsanir fram og til baka. Ég er búin að gera það upp við mig að svona vil ég gera þetta og hef til þess stuðning þeirra sem skipta mig mestu máli. Ég stýri því ekki hversu óblítt hornauga samfélagsins verður og verð að taka viðbrögðunum af æðruleysi. Ég þarf ekki við- urkenningu allra. Mér dugar að einhvers stað- ar sé ein manneskja sem segir að lífið hafi orð- ið aðeins bærilegra við það að lesa þessa bók.“ Morgunblaðið/Ásdís „Sumar þeirra kvenna sem ég fæ genin frá eru yndislegar og aðrar fullkomlega óþolandi. Og ég er ekkert með minna frá þessum sem geta reynt á taugarnar,“ seg- ir Ásdís Halla sem lagðist í mikla rann- sóknarvinnu til þess að vita sem mest um langömmu sína, sem hún þótti líkjast. Hér má sjá Ingibjörgu Hjartardóttur Líndal, langömmu Ásdísar Höllu, árið 1908, með Hjört Halldórsson, afa Ásdísar Höllu, í fang- inu. Myndin er tekin skömmu áður en fjöl- skyldan flutti á Borð- eyri, þar sem eigin- maður hennar, Halldór Kr. Júlíusson, var sýslu- maður. Hjónaband þeirra lifði ekki af mik- ið hneyksli sem kom upp og í bókinni eru í fyrsta sinn birt gögn sem sýna hvað raun- verulega gerðist. Ingi- björg flúði land en Hjörtur varð eftir hjá föður sínum. Úr einkasafni 11.11. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.