Morgunblaðið - 22.11.2018, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2018
Menntamálastofnun hefur lokið úr-
vinnslu samræmdra könnunarprófa
sem lögð voru fyrir í haust. Yfir
landið allt fengu nemendur í fjórða
bekk að meðaltali 6,1 í einkunn í ís-
lensku og 6,8 í einkunn í stærðfræði.
Í sjöunda bekk fengu nemendur að
meðaltali 6,4 í einkunn og 5,9 í
stærðfræði. Hæsta meðaleinkunnin
í íslensku og stærðfræði í 4. bekk
var í Reykjavík en í Suðurkjördæmi
og í Norðvesturkjördæmi var hún
lægst.
Nemendur í Reykjavík voru einn-
ig með hæstu meðaleinkunnina í ís-
lensku og stærðfræði í sjöunda bekk
á meðan lægsta meðaleinkunnin í ís-
lensku var í Suðurkjördæmi og í
stærðfræði var hún lægst í Suður-
og Norðausturkjördæmi.
Samtals þreyttu um 8.730 nem-
endur haustpróf að þessu sinni;
4.549 nemendur í 4. bekk og 4.181
nemandi í 7. bekk.
Hæstu meðalein-
kunnir í Reykjavík
Skóli Tæplega níu þúsund nemendur
þreyttu samræmd próf í 4. og 7. bekk í ár.
SVIÐSLJÓS
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Þessi fræði hafa þróast heilmikið að
undanförnu. Við erum farin að skilja
betur áhættuna sem fylgir
ákveðnum stökkbreytingum, ekki
bara BRCA heldur í öðrum genum
líka,“ segir Krist-
ján Skúli Ásgeirs-
son brjósta-
skurðlæknir.
Kristján er í for-
svari fyrir al-
þjóðlegt þing um
BRCA og
brjóstakrabba-
mein sem hefst í
Klíníkinni í Ár-
múla í dag.
Á þinginu verð-
ur fjallað um rannsóknir, ráðgjöf,
eftirlit og áhættuminnkandi skurð-
aðgerðir á konum sem eru í mikilli
hættu á að fá brjóstakrabbamein, til
að mynda konur með stökkbreyt-
ingar í BRCA2-genum. Fjöldi
þekktra vísindamanna á þessu sviði
sækir þingið.
Hópur sérvalinna fræðimanna
„Markmiðið er að fá saman helstu
sérfræðinga á þessu sviði, fólk sem
hefur sérhæft sig í að fjalla um kon-
ur sem eru í mikilli áhættu að fá
brjóstakrabbamein, konur sem eru
með stökkbreytingar í genum eins
og til dæmis BRCA,“ segir Kristján í
samtali við Morgunblaðið.
„Það er heilmikið vísindastarf í
gangi í þessum fræðum. Nú er um-
ræða um það hvernig á að sinna eft-
irspurn eftir þjónustunni sem konur
krefjast eftir að þær fá upplýsingar
um sína áhættu. Þar eru áhættu-
minnkandi brjóstnámsaðgerðir stór
þáttur. Þau fræði eru á mikilli ferð.
Það er mikil framþróun í því hvernig
þessar aðgerðir eru gerðar.
Við höfum fengið til okkar helstu
sérfræðinga á þessu sviði, frá
Bandaríkjunum, Kanada, Bretlandi
og Skandinavíu, til að ræða um nýj-
ustu rannsóknir á þessu sviði. Þar
sem ráðstefnan er fyrst og fremst
ætluð þeim skurðlæknum sem sér-
hæfa sig á þessu sviði munum við
nýta aðstöðuna í Klíníkinni og gera
aðgerðir meðan á ráðstefnunni
stendur. Þannig getum við fræðst
um það hvernig er hægt að ná sem
bestum árangri fyrir konurnar.“
Þetta er í þriðja sinn sem ráð-
stefna sem þessi er haldin hér. Sú
fyrsta var haldin árið 2014 og sú
næsta árið 2016, þá einnig í Klíník-
inni.
„Við höfum skapað okkur gott
orðspor og eftirspurnin nú var meiri
en við gátum annað. Það varð að
loka fyrir skráningu fyrir mörgum
vikum en fólk getur þó skráð sig og
horft á streymi á netinu,“ segir
Kristján en alls sækja tæplega
hundrað gestir þingið að þessu sinni.
„Það var hugmyndin, að hafa þetta
tiltölulega lítinn en sérvalinn hóp af
fólki sem sérhæfir sig á þessu sviði.
Þannig verður þingið gagnvirkara,
meira um spurningar og svör.“
Athygli vekur að gerðar verða að-
gerðir í skurðstofu sem gestir geta
fylgst með meðan á þinginu stendur.
Kristján segir að slíkt sé ekki óal-
gengt á smærri þingum sem þess-
um.
„Aðstaðan sem við höfum í Klíník-
inni er einstök og það er frábært að
geta flétta svona aðgerðum inn í fyr-
irlestraraðirnar. Þá verður meira líf
í kringum þetta.“
Rannsóknir Kára merkilegar
Einn fyrirlesara á þinginu er Kári
Stefánsson, forstjóri Íslenskrar
erfðagreiningar, sem mun fjalla um
þann árangur sem náðst hefur í
gegnum vefgáttina Arfgerð.is en þar
geta Íslendingar fengið upplýsingar
um það hvort þeir beri meinvaldandi
breytingu í BRCA2-geni.
„Kári er frumkvöðull og hans
sjónarmið falla vel að þessari hug-
mynd sem nú er að ryðja sér til rúms
um kembileit eða „Population Gene-
tic Screening“.
Aðrar þjóðir hafa verið að stíga
svipuð skref og gera genapróf að-
gengilegri en verið hefur. Vanda-
málið hefur að mörgu leyti verið að
oft er verið að gera genapróf á kon-
um sem þegar hafa fengið brjósta-
krabbamein. Prófin ætti einmitt að
gera til að finna áhættuna svo hægt
sé að bregðast við áður en þær fá
brjóstakrabbamein. Fólki finnast
þessar rannsóknir Kára ákaflega
merkilegt fyrirbæri enda eru nokk-
ur hundruð Íslendingar sem hafa
greinst með stökkbreytinguna sem
vissu ekki af því áður.“
Mikil framþróun í brjóstaað-
gerðum um þessar mundir
Alþjóðlegt þing um BRCA og brjóstakrabbamein hefst í Klíníkinni í dag
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Klíníkin Á alþjóðlegu þingi sem hefst í dag verða framkvæmdar skurðaðgerðir sem gestir geta fylgst með.
Eins og fjallað er um hér til hliðar er Kári Stefáns-
son meðal fyrirlesara á þinginu í Klíníkinni. Meðal
annarra gesta eru mörg af stærstu nöfnum á
þessu sviði, svo sem Amy Colwell og Kevin
Hughes, prófessorar frá Boston í Massachusetts,
Diana Eccles, Dean of University of Southampton,
Gareth Evans prófessor frá Manchester, Steve Nar-
od prófessor frá Toronto og skurðlæknarnir
Douglas Macmillan, Steve McCulley og Susanna
Kauhanen.
„Svo verða þarna vísindamenn frá Færeyjum
sem hafa skoðað þjóðina alla og segja okkur frá
sínum niðurstöðum. Þar er myndin öðruvísi en víðast annars staðar
og ekki hafa fundist nein BRCA-gen,“ segir Kristján Skúli.
Virtir vísindamenn í heimsókn
NÝJAR RANNSÓKNIR FRÁ FÆREYJUM KYNNTAR
Kári
Stefánsson
Kristján Skúli
Ásgeirsson
laugavegi 47 www.kokka.is kokka@kokka.is
Pappelina gólfmotta, 70 x 100 cm
Verð 12.500 kr.
Vogir sem sýna verð
á vörum eftir þyngd
Löggiltar fyrir Ísland og
tilbúnar til notkunar
ELTAK sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
VERSLUNAR-
VOGIR