Morgunblaðið - 22.11.2018, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 22.11.2018, Blaðsíða 44
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is www.ILVA.is laugardaga og sunnudaga 12-18, mánudaga - föstudaga 11-18:30 CHRISTMAS jólatré með LED ljósi. Gengur fyrir rafhlöðum. H32 cm. 3.995 kr. Nú 2.797 kr. H37 cm. 4.995 kr. Nú 3.497 kr. JÓLIN ERU KOMIN Í ILVA Andri Björn Róbertsson bassa- barítón og Edwige Herchenroder pí- anóleikari flytja sönglög sem á einn eða annan hátt fjalla um ást eða dauða – og stundum hvort tveggja þar sem skammt getur verið þar á milli, á tónleikum í röðinni Tíbrá í Salnum í kvöld kl. 20. Samstarf Andra og Edwige hófst á námsárum þeirra við Royal Academy of Music í London og tónleikadagskrána hafa þeir flutt áður, á tónlistarhátíðinni Aix-en-Provence. Ástin og dauðinn á Tíbrártónleikum FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 326. DAGUR ÁRSINS 2018 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 641 kr. Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr. PDF á mbl.is 6.173 kr. iPad-áskrift 6.173 kr. Körfuknattleikssamband Íslands hefur hafið leit að nýjum þjálfara kvennalandsliðs Íslands eftir að Ív- ar Ásgrímsson tilkynnti að hann væri hættur. Samningur Ívars gilti til loka undankeppni EM en Ísland lauk þátttöku sinni í henni í gær með tapi gegn Bosníu í Laugar- dalshöll. Ísland tapaði öllum leikj- um sínum í keppninni. » 1 og 3 Ívar hættur eftir und- ankeppni án sigurs ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM Höfundakvöld Sögufélags verður í kvöld kl. 20-22 í Gunnarshúsi á Dyngjuvegi 8. Fimm nýjar fræði- bækur eru komnar út á vegum fé- lagsins og verða þær kynntar með léttu spjalli við höfunda og rit- stjóra þeirra en þeir eru allir sagn- fræðingar. Að því loknu verða al- mennar umræður. Af einstökum dagskrárliðum má nefna að Markús Þ. Þórhallsson mun kynna Stund kláms- ins: Klám á Ís- landi á tímum kynlífsbylt- ingarinnar eftir Kristínu Svövu Tómas- dóttur. Fimm fræðibækur á höfundakvöldi Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is Tryggvi Hjaltason er 32 ára Eyja- maður með vítt áhugasvið sem farið hefur óhefðbundnar leiðir í námi. Tryggvi segist ungur hafa fengið áhuga á að sigrast á áskorunum með því að gera hluti sem hann var ekki góður í og skynja hvernig hann gæti gert þá sem best á stystum tíma. „Þessi aðferð er svo ótrúlega skemmtileg að ég setti mér það ný- ársheit að segja já við öllu á árinu sem er utan við þægindahring minn. Árið hefur verið stórkostlegt ævin- týri sem leiddi mig m.a. í predik- unarstól Landakirkju þar sem ég sagði frá ferðalagi mínu í leit að til- gangi lífsins. Það ferðalag hófst þeg- ar ég sex ára gamall missti yngri bróður minn í bílslysi og velti því fyr- ir mér hvort Guð væri vondur að taka hann frá okkur. Eftir langa veg- ferð fann ég að tilgangur lífsins er ekki leitin að hamingjunni heldur tenging við kærleiksríkan Guð. Hamingjan er afleiðing af þeirri tengingu og fyrir þá tengingu virð- umst við vera smíðuð,“ segir Tryggvi sem tekst á við næstu ögrun sem er að læra að lesa nótur og spila á píanó. „Þetta er taugabrautamyndandi verkefni sem ég geri m.a. í þeim til- gangi að efla heilastarfsemina og eiga möguleika á fleiri heilbrigðum árum á ævinni. Ég hef óbilandi áhuga á mannslíkamanum og mann- legri hegðun,“ segir Tryggvi sem út- skrifaðist með B.S.-gráðu í grein- ingar- og hegðunarfræði (e.: Secur- ity & Intelligence studies) og liðs- foringjaþjálfun frá Bandaríkjaher. Eftir námið í Bandaríkjunum tók Tryggvi grunn í hagfræði og M.S. í fjármálafræði. Tryggvi segist hafa lært mikið um mannlega hegðun í náminu í Bandaríkjunum og það hafi nýst honum vel í starfi hjá CCP, tölvuleikjafyrirtækinu. Góð þekking á mannlegri hegðun sé stór hluti af því að búa til góða tölvuleiki. „Í gegnum tölvuleiki er hægt að mæla mannlega hegðun nákvæm- lega og Eve Online er í raun félags- legt raunkerfi í sýndarveruleik, (e. Socioeconomic system),“ segir Tryggi og bætir við að hann hafi sett sér siðferðisreglur sem felist m.a. í því að nota aldrei þekkingu sína á mannlegri hegðun í slæmum til- gangi. Markmiðið sé að nýta þekk- inguna til þess að ná því besta sem hægt er út úr einstaklingum og kerf- um og hann leiti sífellt að þeim 20% sem hreyfi við 80% samkvæmt lög- máli Pareto. Tryggvi hefur starfað fyrir þrjú ráðuneyti og er nýtekinn við for- mennsku í hugverkaráði. Hann segir kröftugt frumkvöðlastarf í gangi á Íslandi og er sammála Guðmundi Hafsteinssyni, formanni stýrihóps um mótun nýsköpunarstefnu, að Ís- land eigi að vera framtíðarland, fimm árum á undan tækninni og það sé fyllilega raunhæft markmið að Ís- land geti orðið að tilraunasamfélagi í tækni. „Við höfum vel menntað fólk, góða umgjörð og getum brugðist hratt við í lagaumhverfinu. Það þyrfti t.d. ekki mörg vel heppnuð rannsóknar- og þróunarverkefni til þess að gjör- breyta landslaginu á Íslandi og bæta lífsgæði þjóðarinnar til mikilla muna,“ segir Tryggvi bjartsýnn. Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson Framtíðin Tryggvi Hjaltason situr í hugverkaráði og telur raunhæft að Ísland geti orðið tilraunasamfélag í tækni. Starf hjá CCP góður grunnur í tölvuleikjagerð  Nýársheitið að segja já við öllu utan þægindarammans

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.