Morgunblaðið - 15.11.2018, Blaðsíða 2
Hagnaður bankanna, tekjur og arðsemi eiginfjár
Heimild: Árshlutauppgjör bankanna
Hagnaður Rekstrarkostnaður Vaxtatekjur nettó Þóknanatekjur nettó Arðsemi eigin fjár
9M 2018 9M 2017 9M 2018 9M 2017 9M 2018 9M 2017 9M 2018 9M 2017 9M 2018 9M 2017
Arion banki 6,2 10,4 25,6 21,4 22 22,6 12,3 10,7 3,9% 6,3%
Íslandsbanki 9,2 10,1 23,6 22,4 23,6 22,7 8,7 10,1 7,1% 7,7%
Landsbankinn 15,4 16,8 17,7 17,7 29,8 27,1 5,8 6,6 9,4% 8,8%
Upphæðir eru í milljörðum kr.
Samanlagður hagnaður viðskipta-
bankanna þriggja nam 30,8 millj-
örðum í ár. Þar af nemur hagnaður
Landsbankans nærri helmingi upp-
hæðarinnar. Er hagnaðurinn í ár 6,5
milljörðum minni en yfir sama tíma-
bil í fyrra þegar hann nam 37,3
milljörðum. Mestur er samdráttur-
inn hjá Arion banka. Minnkar hagn-
aðurinn um 4,2 milljarða eða 40%.
Samdrátturinn er 9% hjá Íslands-
banka og 8,3% hjá Landsbankanum.
Svipuð mynd birtist þegar horft er
til þróunar á arðsemi eigin fjár
bankanna þriggja. Á fyrstu 9 mán-
uðum þessa árs reynist hún aðeins
3,9% hjá Arion banka en bankinn
hefur hlotið þung högg vegna
greiðslustöðvunar United Silicon og
Primera Air. Fer arðsemin úr 6,3%
á fyrstu 9 mánuðum síðasta árs.
Hún helst yfir 7% hjá Íslandsbanka
en var 7,7% í fyrra. Hjá Landsbank-
anum eykst arðsemin úr 8,8% í 9,4%
þrátt fyrir minni hagnað. Það skýr-
ist af því að eigið fé bankans hefur
lækkað talsvert vegna arðgreiðslna.
Snorri Jakobsson, hjá fjármála- og
hagfræðiráðgjöf Capacent, segir
fátt annað í spilunum hjá viðskipta-
bönkunum en hægur vöxtur eða
samdráttur á komandi árum.
„Þegar rýnt er í reikninga bank-
anna og þróunina þá blasir það ein-
hvern veginn við. Þeir eru í senn of
stórir og of litlir fyrir hagkerfið.
Það er mikil stærðarhagkvæmni í
bankarekstri og þeir eru litlir en
þeir geta ekki stækkað.“ Segir
Snorri að fjármálakerfið sé á fleygi-
ferð og miklar breytingar fram-
undan þar sem samkeppnin harðnar
ár frá ári.
Færri sóknarfæri en áður
„Stærstu fyrirtækin taka lán í er-
lendum bönkum og lífeyrissjóðirnir
taka æ stærri skerf af húsnæðis-
lánamarkaðnum. Þá eru í raun eftir
yfirdráttarlánin og lán til lítilla og
meðalstórra fyrirtækja,“ segir
Snorri. Segir hann að þegar rýnt sé
framtíðina blasi við tekjusam-
dráttur og að eina ástæðan fyrir því
að staðan sé ekki verri en hún er sé
sú staðreynd að bankarnir hafi náð
árangri á kostnaðarhliðinni.
„Þeir sýna aðhald og þótt kostn-
aðurinn hækki talsvert hjá Arion þá
skýrist það m.a. af einskiptisliðum.“
Vaxtartækifærin annars staðar
Snorri bendir á að í fjármálakerf-
inu séu vaxtartækifæri, ekki síst
þar sem krafan um eigið fé er ekki
eins ströng og á bankana.
„Þetta sjáum við t.d. hjá Valitor
sem Arion banki hefur ákveðið að
selja. Þar hefur mikil útrás verið í
gangi og fyrirtækið orðið í raun
dragbítur á bankann vegna þess.
Kostnaðurinn er mjög mikill. Þótt
þarna séu tækifæri þá verður bank-
inn í raun að losa þetta út úr sínu
bókhaldi.“
Samdráttur í kortunum
hjá öllum bönkunum
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Uppgjör viðskiptabank-
anna gefa til kynna að þeir
eigi erfitt með að sækja
ný tækifæri á markaðnum
á komandi árum.
Hagnaður bankanna á fyrstu níu mánuðum ársins nam 30,8 milljörðum
króna. Dróst hann saman um 6,5 milljarða miðað við sama tíma í fyrra.
2 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2018FRÉTTIR
ol pium 350Nú jóðum við til sölu hestakerrur frá reyndum framleiðenda
Fautrax sem eru nú að bjóða upp á nýja línu af kerrum sem
eru sérhannaðar fyrir íslenska hestinn.
8 ára ábyrgð á grind og lífstíðarábyrgð á gólfplötu.
Einnig mikið úrval aukabúnaða.
Leitið tilboða hjá sölumönnum okkar í síma 480 0400
Austurvegur 69 - 800 Selfoss
Lónsbakk i - 601 Akureyr i
Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir
Sími 480 0400 // jotunn@jotunn.is // www.jotunn.is
maxipodium 500
Hestakerrur frá Fautras
ym
maxipodium 500
b
Mesta lækkun Mesta hækkun
VIKAN Á MÖRKUÐUM
AÐALMARKAÐUR ÁLVERÐ ($/tonn)
REITIR
-2,07%
71
EIM
+7,98%
203
S&P 500 NASDAQ
-2,87%
7.194,547
-2,08%
2.723,29
-0,84%
7.045,93
FTSE 100 NIKKEI 225
15.5.‘18 15.5.‘1814.11.‘18 14.11.‘18
1.800
85
2.327,0
1.940,7
Unnið í samstarfi við IFS.Hreyfingar frá upphafi viku til kl. 16 í gær.
67,35
-1,81%
21.846,48
BRENT OLÍUVERÐ ($/tunnu)
78,43
65
2.400
TRYGGINGAMARKAÐUR
Haraldur Ingólfsson útibússtjóri
Sjóvár á Akranesi, segist í samtali
við ViðskiptaMoggann finna fyrir
töluverðri fjölgun viðskiptavina hjá
útibúinu í kjölfar þess að trygginga-
félagið VÍS lokaði útibúi sínu á
staðnum í lok september sl.
„VÍS tilkynnti með skömmum fyr-
irvara um miklar breytingar á úti-
búaneti sínu, sem tengist þá fyrst og
fremst landsbyggðinni, og íbúar á
Akranesi virðast margir vera ósáttir
við þá fækkun starfa sem þetta hef-
ur í för með sér í bænum,“ segir
Haraldur.
Hann segir að VÍS hafi verið með
ráðandi markaðshlutdeild í bænum
fyrir lokunina, eða um 40%, og fjóra
starfsmenn. Sjóvá hafi á sama tíma-
punkti verið með rúmlega 30% hlut-
deild og tvo starfsmenn. TM er með
umboðsmann á Akranesi.
„Viðbrögðin hér á Akranesi hafa
verið sterk. Þó að tryggingaþjón-
ustan sé smátt og smátt að verða
meira rafræn, þá skiptir það fólk
líka máli að hafa þjónustu í heima-
byggð.“
Andri Ólafsson samskiptastjóri
VÍS vill taka fram að engum hafi
verið sagt upp störfum. „Allir starfs-
menn þjónustuskrifstofunnar eru
enn starfsmenn VÍS og þjónusta enn
viðskiptavini sína á svæðinu.“
tobj@mbl.is
Töluverð aukning
eftir lokun útibús VÍS
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
VÍS, Sjóvá og TM voru öll á Akranesi
þar til í lok september.
FERÐAÞJÓNUSTA
Velta erlendra greiðslukorta hér á
landi nam 18,4 milljörðum króna í
október síðastliðnum. Dregst veltan
saman um 9% miðað við sama mán-
uð í fyrra en þá nam veltan tæpum
20,2 milljörðum króna. Þannig
eykst samdrátturinn frá því í sept-
ember. Þá nam hann 6% miðað við
septembermánuð í fyrra. Raunar
hefur mælst samdráttur í veltu er-
lendra greiðslukorta hér á landi
alla mánuði yfirstandandi árs, mið-
að við samsvarandi tímabil 2017, að
marsmánuði undanskildum. Þá
jókst veltan milli ára um 8% og
reyndist 18,3 milljarðar króna.
Sé litið yfir fyrstu 10 mánuði árs-
ins nam erlend kortavelta hér 219,5
milljörðum króna, samanborið við
232,2 milljarða yfir sama tímabil í
fyrra. Nemur samdrátturinn því
5,5%.
Samdráttur innanlands
Í október nam velta með innlend
greiðslukort 37,6 milljörðum króna,
samanborið við 38,8 milljarða í
október í fyrra. Nemur samdrátt-
urinn því 3%. Það sem af er ári hef-
ur greiðslukortaveltan hins vegar
aukist um 6% og stendur eftir
fyrstu tíu mánuði ársins í 394 millj-
örðum króna.
Það er raunar aðeins í október
og september síðastliðnum sem
orðið hefur samdráttur milli ára í
veltu með innlend greiðslukort. Á
fyrstu átta mánuðum ársins varð
hins vegar aukning milli ára.
ses@mbl.is
Kortavelta útlendinga
dróst saman um 9%
FJÁRMÁL
Kostnaður eignarhaldsfélagsins
Lindarhvols, sem annaðist umsýslu,
fullnustu og sölu á þeim stöðugleika-
eignum sem framseldar voru ríkinu í
apríl árið 2016 vegna þeirrar þjón-
ustu sem lögfræðifyrirtækið Íslög
ehf. veitti, nam 16 milljónum króna á
árinu 2018.
Um er að ræða tvær greiðslur sem
aðgengilegar eru á vefsíðunni opn-
irreikningar.is, báðar dagsettar 20.
ágúst, upp á 11,6 milljónir króna og
4,4 milljónir króna.
Í svari sem ViðskiptaMogganum
barst frá fjármála- og efnahags-
ráðuneytinu kemur fram að tæpar 13
milljónir af þeim kostnaði megi rekja
til ráðgjafar lögmanna Íslaga í verk-
efnum tengdum söluferli á Arion
banka, söluferli Lyfju og umsýslu
stöðugleikaeigna, auk annarra verk-
efna.
Íslög ehf. eru í eigu hæstaréttar-
lögmannsins Steinars Þórs Guðgeirs-
sonar en lögmannsstofan hélt utan
um rágjöf og daglegan rekstur Lind-
arhvols. Samtals nemur kostnaður
Lindarhvols vegna þjónustu Íslaga
88,6 milljónum króna á árunum 2016-
2018. Greiðslur Lindarhvols til Íslaga
numu 36,4 milljónum árið 2016 og
36,2 milljónum 2017. Samningur var
gerður um þjónustuna í lok apríl
2016. Miðað við að starfsemi Lind-
arhvols hefur legið niðri frá því í febr-
úar síðastliðnum, skv. upplýsingum
frá fjármála- og efnahagsráðuneyt-
inu, hafa greiðslur Lindarhvols til Ís-
laga að jafnaði numið rúmum 4,2
milljónum króna á mánuði.
31 milljón í stjórnarlaun
Stjórnarfundir Lindarhvols frá
stofnun þess í apríl 2016 og fram í
febrúar 2018 er eiginlegri starfsemi
félagsins var hætt voru 41 talsins og
nema stjórnarlaun fyrir árin 2016 og
2017 14 milljónum annars vegar og
16,6 milljónum hins vegar, samtals
30,6 milljónum. Í stjórn Lindarhvols
sátu Þórhallur Arason, stjórnar-
formaður, Ása Ólafsdóttir og Haukur
C. Benediktsson. peturhreins@mbl.is
89 milljónir króna til Íslaga
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Skrifstofa Íslaga er við Túngötu 6.