Morgunblaðið - 15.11.2018, Side 13

Morgunblaðið - 15.11.2018, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2018 13SJÓNARHÓLL BÓKIN Dan Schawbel virðist hafa hitt nagl- ann á höfuðið: þó svo að tæknin eigi að hjálpa okkur að eiga í samskipt- um við annað fólk höfum við í raun einangrast. Það tek- ur enga stund að senda kollega tölvu- póst, eða setja færslu á Facebook sem fær helling af jákvæðum við- brögðum – en við virðumst vanrækja það að umgangast vinnufélaga, vini og ættingja augliti til auglitis. Schawbel segir að af þessum sökum upplifi margir einangrun og ein- manaleika í vinnunni. Stjórnendur þurfi að grípa til aðgerða og reyna að breyta menningu vinnustaða sinna til að gera samskiptin heil- brigðari og meira gefandi. Um þetta hefur Schawbel skrifað bók: Back to Human: How Great Leaders Create Connection in the Age of Isolation. Auk þess að ýta undir einangr- unartilfinningu segir Schawbel að þau tæknivæddu samskipti sem ein- kenna vinnustaði í dag séu ekki endi- lega skilvirk. Hver kannast t.d. ekki við að sitja fastur í langdregnum tölvupóstsam- skiptum þegar auð- veldast og skýrast hefði verið að ein- faldlega taka upp símann eða rölta yfir á næsta bás og ræða málin í hvelli? Að ekki sé talað um „reply all“ takkann sem fyllir ótal tölvu- pósthólf af upplýs- ingum sem viðtak- endurnir þurfa ekki endilega á að halda. Schawbel greinir vandann og leggur m.a. próf fyrir lesandann til að sjá hvort og þá hvar rafræn samskipti hans hafa farið út af sporinu. Höf- undurinn veitir líka hagnýt ráð um hvernig má gera samskiptin betri – og jafnvel fá sama gleðistrauminn í samskiptum við vinnufélagana og fæst með nýju „læki“ á Facebook. ai@mbl.is Er ekki tími til kom- inn að tengjast? Nú líður senn að því að 100 ár verða liðin frá gildis-töku íslensk-danska sambands-lagasamnings-ins. Í 1. gr. sambandslaganna sagði: „Danmörk og Íslands eru frjáls og fullvalda ríki, í sambandi um einn og sama konung og um samning þann, er felst í þessum sambandslögum.“ Með undirritun dansk-íslenska sam- bandslagasamningsins og gildistöku laganna varð Ísland fullvalda ríki. Birtingarmyndir fullveldisins voru margs- konar í kjölfar þessa nýja réttarástands, en þessar birt- ingamyndir verða gerðar að um- talsefni í þessari grein. Á hádegi sunnudaginn 1. desem- ber 1918 var íslenski fáninn – fáni hins fullvalda ríkis – dreginn að húni á fánastöng Stjórnarráðs- hússins. Í kjölfar þess að íslenski fáninn var dreginn að húni var tuttugu og einu fallbyssuskoti skotið frá varðskipinu Islands Falk samkvæmt ákvörðun dönsku ríkisstjórnarinnar og í samræmi við venju þess efnis að tuttugu og einu fallbyssuskoti skyldi skotið þegar heiðra ætti fána fullvalda ríkis. Frekari birtingarmyndir fullveldisins var að finna í ákvæðum dönsk-íslensku sambandslaganna. Í 7. gr. lag- anna kom fram að Danmörk færi með utanríkismál Ís- lands í umboði þess. Í 8. gr. laganna sagði að Danmörk hefði á hendi gæslu fiskveiða í íslenskri landhelgi undir dönskum fána. Þá sagði í 10. gr. að Hæstiréttur Dan- merkur hefði á hendi æðsta dómsvald í íslenskum mál- um. Af þessu er ljóst að tiltekinn hluti framkvæmdavalds og dómsvalds var í höndum danskra stjórnvalda, en þó einungis með heimild íslenskra stjórnvalda – m.ö.o. með gerð sambandslagasamningsins varð eðlisbreyting á stöðu Íslands í þeim skilningi að orðalag samningsins gerði ráð fyrir því að Ísland veitti Danmörku umboð til að fara með hluta fullveldis en forsenda slíkrar ráðstöf- unar er að fullveldi sé til staðar. Mikilvægan hluta dönsk-íslensku sambandslaganna var að finna í 19. gr. laganna. Í ákvæðinu var mælt fyrir um þá skyldu danskra stjórnvalda að tilkynna erlendum ríkjum að Danmörk hefði viðurkennt Ísland sem full- valda ríki. Þessi skylda hafði umtalsverða þýðingu enda ljóst að Danmörk var þá þegar fullvalda og fullgildur þjóðréttaraðili. Meiri líkur en minni voru á því að önnur ríki myndu viðurkenna Íslands sem fullvalda ríki ef til- kynning um það bærist frá ríki sem þegar var fullvalda. Hið nýfrjálsa og fullvalda ríki hafði fjölmörg samskipti við önnur ríki eftir gildistöku dansk-íslensku sambands- laganna. Áhugavert er að skoða efni þjóðréttarsamninga sem Ísland gerði við önnur ríki stuttu eftir að sam- bandslagasamningurinn öðlaðist gildi. Á árunum 1920- 1930 voru gerðir tvíhliða samningar við önnur ríki, s.s. Finnland, Litháen, Austurríki og Grikkland, er lutu að verslun og viðskiptum en slíkir samningar voru algengir meðal ríkja. Um var að ræða svokallaða vináttu-, verslunar- og siglinga- samninga en í slíkum samn- ingum reyndu ríki að sammælast um tilteknar meginreglur sem gilda skyldu í samskiptum ríkja og vörðuðu þegna þeirra þegar þeir ferðuðust eða flyttust bú- ferlum til annarra ríkja. Í nokkrum tilvikum gerðist Ís- land aðili að öðrum samningum sem ekki vörðuðu versl- un og viðskipti. Árið 1928 gerðist Ísland aðili að hinum svokallaða Briand-Kellogg-sáttmála, en sá samningur mælti fyrir banni við beitingu hervalds í samskiptum ríkja. Umræddur samningur var hluti þróunar sem hófst 1907 með gerð Drago-Porter-sáttmálans en þeim samn- ingi var ætlað að mæla fyrir banni við beitingu hervalds við innheimtu samningsskulda. Þessari þróun lauk síðar með gerð stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna árið 1945 en hann mælir fyrir um að ríki skuli ekki beita hervaldi í samskiptum við önnur ríki nema í sjálfsvörn eða að feng- inni sérstakri heimild frá öryggisráði Sameinuðu þjóð- anna. Af þessum þjóðréttarsamningum virðist sem íslensk stjórnvöld hafi eftir að fullveldi var náð, að eigin frum- kvæði eða fyrir tilstilli danskra stjórnvalda, gert samn- inga sem almennt tíðkaðist að gerðir væru meðal ríkja. Virðast stjórnvöld hafa þannig horft m.a. til viðskipta- hagsmuna í því sambandi en ekki var vanþörf á því enda settu helstu viðskiptalönd Íslands á gjaldeyris- og inn- flutningshöft eftir 1930 sem höfðu áhrif á útflutning sjáv- arafurða frá Íslandi. Allt frá upphafsdögum fullveldis hefur Ísland því verið virkur þátttakandi í samfélagi þjóðanna. Fyrstu samningar Íslands LÖGFRÆÐI Finnur Magnússon hæstaréttarlögmaður og aðjunkt við lagadeild Háskóla Íslands ” Árið 1928 gerðist Ísland aðili að hinum svokall- aða Briand-Kellogg- sáttmála, en sá samn- ingur mælti fyrir banni við beitingu hervalds í samskiptum ríkja. Síðumúli 13 - 108 Reykjavík - S. 577 5500 - atvinnueign.is Til sölu vandað staðsteypt atvinnuhúsnæði fyrir léttan iðnað eða þjónustu. Grunnflötur hússins er 1.100 fm. sem skiptist í 8 einingar (misstórar) auk þess sem steypt plata er milli hæða og efri hæð með 3,5 m. lofthæð getur nýtst sem skrifstofur, starfsmannaaðstaða eða lager, skilast á byggingarstigi 4. Miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu, stutt í stofnbrautir, Vesturlandsveg í austurátt eða í suðurátt að Höfðum/ Ártúnsbrekku. Stutt er í vöruhús og flutning í Voga. Mikillar uppbyggingar má vænta á næstu árum og áratug í nágrenninu. Fasteignamiðlun ATVINNUHÚSNÆÐI GYLFAFLÖT 17 - 112 RVK Allar nánari upplýsingar veita: Halldór Már löggiltur fasteignasali sími 898 5599, halldor@atvinnueign.is Þóra löggiltur fasteignasali sími 777 2882, thora@fastborg.is Sölusamsetning jarðh. e.hæð Samtals fm Verð Hálft hús 548 518 1.066 242.000.000 Endi + 1xbil 308 295 603 139.000.000 Endi + 2xbil 428 407 834 192.000.000 2millibil 240 223 463 109.000.000 3millibil 360 335 695 162.000.000 Endi 188 184 371 88.000.000 Stakt bil 120 112 232 55.000.000

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.