Morgunblaðið - 15.11.2018, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2018FRÉTTIR
Sími: 411 5000 • www.itr.is
Fyrir líkama og sál
Laugarnar í Reykjavík
Frá
morgnifyrir alla
fjölskylduna
í þínu
hverfi t i l kvölds
Fyrr í mánuðinum var Margrét Pétursdóttir
hjá EY kjörin í stjórn Alþjóðasambands
endurskoðenda (IFAC) Þar situr hún fyrir
hönd Norðurlandanna og er fyrsti Íslend-
ingurinn til að sitja í stjórninni. Margrét er
að vonum spennt enda fylgir stjórnarset-
unni tækifæri til að hafa áhrif á þróun
endurskoðunar á heimsvísu.
Hverjar eru helstu áskoranirnar í rekstr-
inum þessi misserin?
Örar tækniframfarir valda því að starf
endurskoðenda tekur stöðugum breytingum.
Endurskoðendur þurfa að tileinka sér nýja
tækni og sjálfvirkni hratt og örugglega og
einnig þarf að huga að annars konar hæfi-
leikum en áður varðandi nýliðun í stéttinni.
Auk þess stendur fyrir dyrum innleiðing á
Evrópureglum um starfsemi endurskoðenda
sem mun valda miklum breytingum á starf-
inu.
Hver var síðasti fyrirlesturinn eða ráð-
stefnan sem þú sóttir?
Ég var á ráðstefnu í Sydney í síðustu
viku (World Congress of Accountants) þar
sem saman komu tæplega sex þúsund
endurskoðendur frá fjölda landa um heim
allan. Fyrirlesarar voru á heimsmælikvarða
og var um að ræða þétta dagskrá fjóra heila
daga.
Hvernig heldurðu þekkingu þinni við?
Á endurskoðendum hvíla lögbundnar
kröfur um endurmenntun en hverjum end-
urskoðanda ber að sækja sér endurmenntun
sem nemur 120 klukkustundum á hverju
þriggja ára tímabili. Auk þess að sækja
ýmsar ráðstefnur á vegum Félags löggiltra
endurskoðenda (FLE) og EY tek ég virkan
þátt í erlendu samstarfi bæði hjá EY og á
vegum FLE.
Hvað gerirðu til að fá orku
og innblástur í starfi?
Starf endurskoðandans í dag er svo
gríðarlega fjölbreytt og felur í sér stöðugar
áskoranir þ.a. það eitt og sér er fyrir mig
innblástur. Ég myndi, held ég, seint þrífast
í starfi sem fæli í sér miklar endurtekn-
ingar.
Hugsarðu vel um líkamann?
Ég mæti í ræktina svona þrisvar í viku,
geng mikið þegar ég fæ tækifæri til og
stunda golf. Auk þess reyni ég að borða
hollan mat að öllu jöfnu til að halda orku.
Hvað myndirðu læra ef þú fengir að
bæta við þig nýrri gráðu?
Ég myndi læra eitthvað tengt stjórnar-
háttum held ég, og þá helst hvernig stjórn
getur starfað þannig að jafnvægi sé á milli
markmiðs um hámörkun hagnaðar og sam-
félagslegrar ábyrgðar. Eins hvernig stjórn
tryggir að stefnan sé innleidd í ferla félags-
ins á þann hátt að nýta hæfileika hvers og
eins starfsmanns þannig að hann njóti sín
og að öllum líði vel í vinnunni.
Mörkin á milli einkalífs og vinnu eru, með
aukinni tækni, að verða sífellt óljósari og við
verðum að hverfa frá þeirri hugsun að vinn-
an sé kvöð sem við þurfum að inna af hendi
og njótum síðan lífsins í frítímanum. Fram-
tíðastefnan þarf að verða sú að við njótum
vinnunnar frekar en að hún sé kvöð og
mörg fyrirtæki eru byrjuð að fara spenn-
andi og nýjar leiðir með þetta að markmiði.
Hvaða kosti og galla sérðu við
rekstrarumhverfið?
Klárlega er óstöðugleiki hagkerfisins
gríðarlegur galli í rekstri fyrirtækja en á
sama tíma held ég að hann viðhaldi frum-
kvæði, kjarki og sköpunargleði sem veldur
því að Íslendingar eru oft í fremstu röð á
erlendum vettvangi þrátt fyrir það hve fá
við erum.
Hvaða lögum myndirðu breyta
ef þú værir einráð í einn dag?
Lögum um tekjuskatt, þar sem ég myndi
hækka persónuafslátt á lægstu laun þ.a.
þeir sem lægstu launin hafa myndu ekki
greiða tekjuskatt.
SVIPMYND Margrét Pétursdóttir sviðsstjóri hjá EY og meðlimur í stjórn IFAC
Óstöðugleikinn er galli en
viðheldur frumkvæði og kjarki
Morgunblaðið/Árni Sæberg
NÁM: Stúdent frá Fjölbrauta-
skóla Suðurnesja 1994; við-
skiptafræðingur frá Háskóla Ís-
lands 1999; löggiltur
endurskoðandi 2003.
STÖRF: Hóf störf við endur-
skoðun 1998 hjá því sem þá hét
Endurskoðunarstofan Skóla-
vörðustíg 12 ehf., síðar Moore
Stephens ehf. og frá árinu 2002
hef ég starfað hjá Ernst & Yo-
ung ehf. (EY) þar sem ég er
sviðsstjóri endurskoðunar-
sviðs. Varaformaður og síðar
formaður Félags löggiltra end-
urskoðanda (FLE) 2014-2017;
formaður Norrænu endurskoð-
unarsamtakanna (NRF) 2017;
kjörin í stjórn Alþjóða-
sambands endurskoðenda
(IFAC) 2018.
ÁHUGAMÁL: Golf er mitt aðal-
áhugamál þótt það hafi þurft
undan að láta seinstu tvö árin
vegna anna við endurbætur á
sumarbústað sem keyptur var
gamall. Við fjölskyldan ferð-
umst mikið og förum þá bæði í
hvíldar- og upplifunarferðir.
Síðan er líka bara dásamlegt að
vera heima með fjölskyldu og
vinum og elda góðan mat og
njóta samvista.
FJÖLSKYLDUHAGIR: Í sam-
búð með Ínu Hannesdóttur, hjá
okkur búa tveir synir Ínu og
einnig eigum við þrjú uppkomin
börn.
HIN HLIÐIN
FARARTÆKIÐ
Undanfarin ár hefur ítalski mótor-
hjólaframleiðandinn Ducati stolið
senunni á EICMA-mótorhjólasýn-
ingunni, sem haldin er í Mílanó í
nóvember ár hvert. Að þessu sinni
gerði fyrirtækið allt vitlaust með
Panigale V4 R; kappakstursútgáfu
af verðlaunahjólinu Panigale V4.
Meðal þess sem vekur athygli
við hönnun nýja hjólsins er að það
er með tvær vindskeiðar sína hvor-
um megin við framdekkið, eða öllu
heldur tvo litla vængi. Vindskeið-
arnar setja óneitanlega sterkan
svip á hjólið og gera það vígalegra.
Og eflaust veitir ekki af að gera
allt sem hægt er til að þrýsta
framdekkjunum niður í malbikið,
því frá vélinni berast allt að 221
hestöfl (en 234 með Akrapovic-
pústkerfi). Er Panigale V4 R ekki
nema 172 kg að þyngd, sem þýðir
að rétt um 1,36 hestöfl eru á hvert
kíló.
Eflaust hugsa margir lesendur
með sér sem svo: „Skyld‘etta vera
jólahjól?“ ai@mbl.is
Erfitt er að segja til um hvort hjólið er fallegra í svörtu eða rauðu.
Ducati með vindskeið
Vindskeiðin líkist hákarlsugga og
hjálpar til að halda hjólinu á jörðinni.
Margrét segir að innleiðing á
Evrópureglum um starfsemi
endurskoðenda muni valda
miklum breytingum á starfinu.