Morgunblaðið - 15.11.2018, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 15.11.2018, Blaðsíða 8
allan mánuðinn eða bara einn dag í mánuði. Kaffi, þrif og tækniþjónusta allan sólarhringinn, net, húsögn, samfélag og fleira. Þú getur starfað um allan heim og á sex stöðum hér á landi og það fyrir mun minni pening en ef þú værir að skipta beint við fasteignafélög eða reka þína eigin fasteign með því stoðkerfi sem fylgir, eins og móttökuritara eða tæknifólki.“ Til frekari útskýringar segir Tómas að stórfyrirtæki gæti til dæmis opnað útibú samdægurs hjá Regus með litlum tilkostnaði, bæði hér á landi og um allan heim. „Það tekur bara nokkrar mínútur að gera við okkur samning. Okkar aðalsmerki er sveigjanleiki. Þú getur leigt skrifstofu í eina viku eða einn dag fyrir tímabund- in verkefni einnig. Eða bara fundaherbergi. Það er engin tilviljun að risafyrirtæki eins og Apple, Google, GlaxoSmithKlein og Adobe til að mynda eru við- skiptavinir Regus. Viðskiptavinirnir eru um sex millj- ónir um allan heim.“ Sem dæmi nefnir Tómas að netrisinn Google eigi sjálfur sínar höfuðstöðvar í Bandaríkjunum en reki svo útibú í 70 löndum í húsnæði Regus. En hversu stór fyrirtæki þrífast innan Regus með alla sína starfsemi? „Algengustu stærðirnar eru fyrirtæki með tveimur starfsmönnum og upp í sex til átta. En svo erum við með til dæmis eitt fyrirtæki með 25 starfsmönnum og annað sem er með 42 vinnustöðvar. Í nýja húsnæðinu við Hafnartorg, þar sem við verðum á þriðju hæðinni fyrir ofan H&M-tískuvöruverslunina, gætum við boðið vinnuaðstöðu fyrir 70 manna vinnustað með allri þjón- ustu, en alls verður boðið upp á 218 starfsstöðvar í því húsnæði.“ Hvaða þýðingu hafði það fyrir ykkur að verða hluti af Regus? „Það hafði þau áhrif að viðskipti og traust jukust, sem og allt utanunmhald, eins og bókhald, útgáfa greiðsluseðla og þess háttar. Við fórum á hærra plan í fagmennsku. Þjónustan jókst heilt yfir og þekkingin sömuleiðis. Nú fara allir starfsmenn í gegnum átta vikna þjálfun í Regus-skólanum áður en þeir hefja störf. Þetta er allt hluti af því að vera með sérleyfis- samning við Regus.“ Galið að borga fyrir autt fundarherbergi Blaðamaður spyr hvort þetta fyrirtæki sé í raun ekki svipað og fyrirtæki sem tilheyra hinu svokallaða deilihagkerfi. Fyrirtæki eins og Zip cars fyrir fólk sem vill samnýta bíla. Tómas tekur undir það. „Við lítum þannig á að öll rými sem standa tóm séu glatað fé. Við reynum að nýta alla fermetra betur. Gamla módelið er að menn leigja eða kaupa rými, setja upp billjarðborð og skrifborð og fundarherbergi sem stendur svo autt 90% af tímanum en borga samt fyrir það fullt verð all- an tímann. Það er í raun alveg galið að borga fyrir marga fermetra sem ekki eru notaðir. Það er vakning í heiminum núna í þá átt að bruðla ekki með hluti og nýta allt betur. Það er líka okkar hugsun.“ Spurður hvort snjalltæknin sé ekki stór hluti af því að svona fyrirtæki þrífist jafn vel og raun ber vitni ját- ar Tómas því. „Jú, klárlega. Allir viðskiptavinir okkar geta stjórnað öllu í gegnum Regus-snjallforritið í sím- anum; bókað fundi um allan heim og skrifstofurými. Allt yfirlit yfir öll viðskipti er aðgengilegt í appinu og menn geta afgreitt sig sjálfir frá a-ö. Þetta kerfi minnkar líka þörfina og álagið á starfsfólki okkar.“ Tómas segir að sérleyfissamningurinn við Regus sé til 15 ára og gildi fyrir sjö staði á Íslandi. Fast- eignirnar leigir Regus svo af öðrum fasteignafélögum. Tómas segir að samkvæmt fréttum sem birtust ný- lega hjá bresku fréttastöðinni BBC muni starfsemi eins og sú sem Regus stundar vaxa um 30% á ári næstu fimm árin. „Við trúum því að markaðurinn hér sé eins og annars staðar í heiminum. Vöxturinn hefur líka verið stanslaus og við höfum farið úr 15 skrif- stofum í 200 á fjórum árum. Svo bætist Höfðatorg við sem og Urðarhvarfið á næsta ári.“ Spurður hvernig gangi að fylla rýmin á Hafnartorgi Blaðamaður og Tómas hittust í skrifstofuhúsnæði Regus á annarri hæð í turninum á Höfðatorgi við Katrínartún í Reykjavík, en Regus er einnig til húsa á sautjándu hæð í sama húsi. Aðstaðan er svo sannar- lega með glæsilegasta móti. Útsýnið úr skrifstofunum er öfundsvert og sameiginleg aðstaða þeirra sem leigja þarna skrifstofurými er til fyrirmyndar. Þar sem Tómas er ekki sjálfur með skrifstofu, þar sem hann vinnur samkvæmt sömu hugmyndafræði og fyrirtækið sjálft selur sig út á, eins og hann orðar það; að hver sem er geti á hvaða tíma sem er fengið at- hafnarými hvar sem hann vill í eins langan tíma og hann vill, þá tyllum við okkur inn í laust fundar- herbergi á annarri hæðinni. Er fyrrverandi sjómaður „Ég bjó á Spáni í níu ár fyrir hrun þar sem ég vann sem matreiðslumaður á veitingahúsi,“ segir Tómas þegar hann er inntur eftir forsögunni að ævintýrinu. „Hinn 28. janúar 2009 kom ég heim og ætlaði að stoppa í viku. Ég var þá að velta fyrir mér nýjum verkefnum eftir efnahagshrunið, sem þá var nýgengið yfir. Ég ílengdist á landinu og sinnti ýmsum verkefnum. Það var svo árið 2014 sem ég tók hæð á leigu í Ármúla 6 og stofnaði Orange Project-skrifstofukjarnann ásamt eig- inkonu minni og Jóni Gunnari Sævarssyni, bútaði hæð- ina niður í einingar og leigði út til ýmissa athafna- manna og frumkvöðla sem vantaði aðstöðu. Þetta hefur stækkað ár frá ári síðan.“ Tómas var á sjó næstu tvö árin á eftir, samhliða því að reka Orange. Hann hætti svo árið 2016 þegar rekst- urinn var orðinn sjálfbær og hann gat farið að borga sjálfum sér laun. Spurður hvernig hugmyndin hafi fæðst upprunalega segir Tómas að í fyrsta lagi hafi hann viljað finna sér einhver verkefni í landi. „Á þessum tíma var fullt af lausu skrifstofurými. Ég sá þessa eign í Ármúla og fannst þetta frábær hugmynd; að leigja hana og endur- leigja til sprotafyrirtækja og einyrkja.“ Fljótlega fylltist hæðin í Ármúlanum og þá bætti Orange við sig hálfri næstu hæð fyrir ofan og svo allri þeirri hæð. „Svo fórum við niður á Tryggvagötu, þá var það Akureyri, Skútuvogur og þar næst Höfðatorg. Fram undan er opnun á Hafnartorgi og svo í Urðar- hvarfi í Kópavogi í apríl næstkomandi.“ En skammt er stórra högga á milli. Tómasi fannst fyrirtækið mega teygja sig lengra og þannig kom til samstarf við alþjóðlega risafyrirtækið Regus, sem er stærsta fyrirtæki í heimi í rekstri á skrifstofuaðstöðu með allri þjónustu innifalinni. Spurður út í tildrög þess samstarfs segir Tómas að hann hafi fregnað það árið 2016 að Regus hefði verið að skoða sig um og haft áhuga á að hefja hér starfsemi. „Það var því tvennt í stöðunni: Að þeir keyptu Orange, sem kom til greina á sínum tíma, eða að ég keypti af þeim sérleyfi til að inn- leiða þeirra kerfi og hugmyndafræði inn í reksturinn og á sama tíma tengjast þeirra alþjóðlega neti, sem við og gerðum. Nú erum við á fullu inni í Regus-kerfinu á alþjóðavísu og þannig geta allir okkar viðskiptavinir fengið vinnuaðstöðu hvenær sem þeim þóknast, á 3.000 stöðum, í 120 löndum, í 900 borgum og á 850 flug- völlum.“ Hægt að leigja í einn dag Spurður nánar út í vöruframboðið og sveigjanleik- ann sem er í boði fyrir þá sem vantar þessa þjónustu segir Tómas að hægt sé að fá allt frá langtímaleigu með öllu inniföldu niður í lágmarksleigu þar sem við- komandi fær aðgang til dæmis bara að fundarherbergi hluta úr degi eða sameiginlegu vinnurými í ákveðinn tíma í hverjum mánuði. Samhliða því fær viðkomandi sama aðgang um allan heim. „Þetta er allt önnur hugmyndafræði en hjá hefðbundnum fasteigna- félögum þar sem þér er afhent tómt rými og þú festir þig í kannski eitt til tvö ár eða lengur án möguleika á að komast út úr samningnum. Hér er alltaf allt innifal- ið fyrir fast verð, hvort sem þú borgar fyrir aðstöðu og í Urðarhvarfi segir Tómas mikið spurt um hús- næðið í Kópavogi og gríðarlegur áhugi sé jafnframt fyrir húsnæðinu á Hafnartorgi. „Við þurfum að vera með gott húsnæði í miðbænum. Viðskiptamódelið snýst um að hafa ekki of langt á milli skrifstofu- bygginga okkar, þannig að viðskiptavinurinn geti alltaf stokkið í vinnuaðstöðu, hvar sem hann er staddur í heiminum.“ Þrír erlendir aðilar hafa nú þegar samið um aðstöðu á Hafnartorgi að sögn Tómasar og alls hafa 20 samn- ingar verið gerðir. „Við teljum að Hafnartorgið verði orðið mjög þétt bókað á fyrstu sex mánuðunum. Svo erum við með lista af áhugasömum aðilum fyrir Urðarhvarf, því það vant- ar sárlega svona þjónustu í Kópavogi.“ Aldrei fullbókað Þegar Tómas talar um þéttar bókanir, þá er ákveð- inn hemill þar á. „Málið er að við fullbókum aldrei hús- næðið, það er alltaf eitthvað laust. Út á það gengur við- skiptamódelið; að geta lofað viðskiptavininum því að hann geti alltaf stækkað við sig hjá okkur. Við getum ekki látið græðgina taka yfir, þó svo að eftirspurnin sé mikil. Við verðum að geta staðið við loforð okkar.“ Beðinn að gefa verðdæmi segir Tómas að sem dæmi gæti samningur upp á fimm stofu á mánuði kostað 29.90 „Þá ertu með heimilisfang fy móti viðskiptavinum, vörum raun kemst aldrei nokkur m á skrifstofunni fimm daga í m Tómas bindur miklar von sveitarfélögum þjónustuna í kjörnir fulltrúar eða starfsm geti nýtt sér vinnuaðstöðu á stöðu í heimabyggð þó svo a bæjarfélagi. „Við gætum þe 120 löndum fyrir brot af því Þá gæti þetta verið hentugt fyrirtæki, sem þurfa að ferð Tómas ítrekar að það sé h þurfa að vera bundinn við að einhvern einn stað. „Nú er a og þú ert bara á ferðinni. Sk þarna,“ segir Tómas og ben „Til hvers að vera með þúsu ið er kannski aldrei við, á fer En allur fyrirtækjarekstu með Regus? „Vissulega er áhætta í öllu Við gætum opnað send Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Á aðeins fjórum árum hefur skrifstofufyrirtæki þeirra Tómasar Hilmars Ragnarz og eiginkonu hans Fríðu Rúnar Þórðardóttur, Regus, áður Orange Project, sprungið út í orðsins fyllstu merkingu, en það byrjaði með útleigu á nokkrum skrifstofurýmum á einni hæð í Ármúla en býður nú skrifstofuaðstöðu með öllu inniföldu um allan heim. Tómas Hilmar Ragnarz segir að það skekki samkeppnisstöðuna á markaðnum þegar ríki og sveitarfélög niðurgreiði fyrirtækjaklasa fyrir frumkvöðla eins og gert er að hans sögn í Reykjavík, Akureyri og Ísafirði. 8 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2018VIÐTAL

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.