Morgunblaðið - 15.11.2018, Side 16

Morgunblaðið - 15.11.2018, Side 16
VIÐSKIPTA Viðskiptablað Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100, vidsk@mbl.is Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Stefán Einar Stefánsson fréttastjóri, ses@mbl.is Auglýsingar sími 5691111, augl@mbl.is Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent ehf. VIÐSKIPTI Á MBL.IS Gætu átt forgang á flugvélar WOW Skuldirnar þyngja róðurinn „Ofurtilboðið bara ótrúlega gott.......... „Dapurlegt á hvaða plani orðræðan ... Þýskur netbanki ætlar að opna á Ís .... Mest lesið í vikunni INNHERJI RÉTTARRÍKIÐ ÞÓRODDUR BJARNASON SKOÐUN Norsk-íslenska netvafrafyrirtækið Vivaldi, sem er að fullu í eigu frum- kvöðulsins og athafnamannsins Jóns von Tetzchner, mun bjóða notendum upp á tölvupóst í næstu stóru útgáfu vafrans, sem væntanleg er snemma á næsta ári. „Þetta er póstur sem verður hluti af vafranum, sem hver sem er mun geta notað frítt og feng- ið netfang ókeypis sömuleiðis,“ segir Jón í samtali við ViðskiptaMoggann. Hann segir að meðal eiginleika póstforritsins sé að gefa fólki kost á að stjórna mörgum mismunandi tölvupóstreikningum á einum og sama staðnum á einfaldan hátt. „Þetta er hugsað fyrir þá sem nota tölvupóst mikið. Þetta verður eins og að vera með Outlook, nema bara betra,“ bætir Jón við og brosir, en pósturinn mun birtast að hans sögn í flipa í vafranum. „Ég hef verið að nota þennan póst sjálfur með góðum árangri síðustu 18 mánuði í prufuút- gáfu.“ Smíðaður á Íslandi Stór hluti af smíði tölvupóstsins nýja fer fram á Íslandi, en hjá fyrir- tækinu starfa nú 45 manns á þremur starfsstöðvum, Íslandi, Noregi og í Bandaríkjunum. Jón segir að það skipti sig mestu máli í rekstri Vivaldi að búa til góðan vafra, og hann hafi engan áhuga á að selja fyrirtækið í framtíðinni, eins og hann gerði með Operu-vafrann sem hann stofnaði og seldi fyrir nokkrum árum. „Í dag erum við með um eina milljón notenda, en þurfum nokkrar milljónir til að vera sjálfbær.“ Árstekjur fyrirtækisins nema um einni milljón bandaríkjadala, en að öðru leyti fjármagnar Jón fyrirtækið að fullu. Morgunblaðið/Hari Auk tölvupóstsins nýja vinnur Vivaldi nú að vafra fyrir snjallsíma. Vivaldi smíðar tölvupóst Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Fólk sem notar mikið tölvu- póst er markhópurinn fyrir tölvupóstinn nýja í Vivaldi- vafranum, sem kemur á markaðinn fljótlega. Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is WOW air varð eigin velgengniað bráð. Félagið flaug of nærri sólinni, óx of hratt. Þegar vind- ar snerust skyndilega var engin leið að rifa seglin – nauðsynlegt reyndist að fella siglutréð en það gerðist þegar félagið óskaði eftir samningum við Icelandair um að síðarnefnda félagið tæki hið fyrrnefnda yfir. Fyrir nokkru varð ljóst í hvaðstefndi en erfiðleikar við skulda- bréfaútboð WOW í september gáfu til kynna að verkefnið væri of ofvaxið og illviðráðanlegt. Frétt Morgun- blaðsins um himinháar skuldir félags- ins við Isavia upp á nærri 2 milljarða króna, varpaði ljósi á að þótt for- svarsmenn félagsins hefðu borið sig vel og mannalega var staðan allt ann- að en björt. Þeir sem fylgst hafa með þróun mála á flugmarkaði síðustu ár, vörpuðu í raun öndinni léttar þegar ljóst var að viðræður hefðu leitt til kaupa Icelandair á WOW air. Mark- aðurinn var allur á sama máli. Allir höfðu tiplað á tánum í kringum þá staðreynd að ef ekkert yrði gert myndu dagar þessa glæsilega flug- félags senn verða taldir. Og nú liggur Samkeppniseftirlitiðyfir kaupunum. Stofnunin hef- ur í mörgum stórum málum tekið sér rúman tíma til að heimila samruna og yfirtökur á stórum félögum. Blindur maður sér hins vegar að úr þessu er engin önnur leið fær en að heimila kaupin, leiði áreiðanleikakönnun til þess að það sé fýsilegur kostur fyrir hluthafa Icelandair Group. Það er vonandi að forsvarsmenn eftirlitsins geri það líka. Greiði veg- inn strax Af langri reynslu hefur Innherjiþað á tilfinningunni að þeir sem mest tali um persónulegt álag í vinnu séu þeir sem minnst hafi að gera. Hinir harðduglegu bera fremur hlut- skipti sitt í hljóði og beina kröftum sínum fremur í verkefnin en þá iðju að ræða umfang þeirra og mikilvægi. Þessi reynsla hefur valdið því að Inn- herji hefur lengi tekið ákveðinn vara á vinnumarkaðsrannsókn Hagstof- unnar þar sem eftir slembiúrtaki er hringt í fjölda manna og þeir m.a. spurðir hversu langir vinnudagar þeirra eru. Þessi „rannsókn“ hefur leitt tilþeirrar niðurstöðu, eftir saman- burð við aðrar þjóðir, sem flestar hafa reiknað og talið saman með öðrum hætti en hér, að Íslendingar vinni lengst allra og að afraksturinn sé rýr, sé honum deilt niður á hinar fjöl- mörgu vinnustundir. Íslendingar hafa því samkvæmt tölunum bæði reynst harðduglegir og húðlatir, allt í senn. En nú hefur Hagstofan, ákveðið aðbeita alþjóðlegum og viður- kenndum aðferðum til að meta stöð- una á vinnumarkaðnum. Öllum að óvörum, ekki síst talnaspekingunum sem lengst og mest hafa belgt sig í fjölmiðlum, kemur í ljós að vinnu- markaðsrannsóknin sem flestar orr- usturnar milli vinnuveitenda og laun- þega hafa verið háðar um, reyndist í besta falli bull og vitleysa. Þannig segir Hagstofan: „Nýjar tölur um heildarfjölda unninna vinnustunda sýna talsvert lægri niðurstöðu en fyrri tölur sem byggjast á gögnum vinnumarkaðsrannsóknar og liggur munurinn á bilinu 16-20% fyrir tíma- bilið 2008-2016.“ 16 til 20 prósent er ekkert lítilræðiþegar kemur að mati á helstu kröftum vinnumarkaðarins. Um það þarf ekki að orðlengja en hin litla framleiðni og langi vinnudagur hefur lengi verið mönnum mikil ráðgáta. Það sést m.a. á eftirfarandi orðum úr inngangi að skýrslu McKinsey &Company sem unnin var í samstarfi við Viðskiptaráð árið 2012: „Þetta óvenjumikla framlag vinnuaflsins varpar ljósi á verulegan framleiðni- vanda í flestum geirum hagkerfisins. Uppgötvunin sem nú hefur veriðgerð, sem sýnir að Íslendingar vinna hvorki lengri vinnudag en aðrir né afkasta minna á meðan þeir eru stimplaðir inn, gerir það að verkum að núllstilla verður alla umræðu um mikilvægi þess að vinnuvikan verði stytt og framleiðni aukin. Við erum á einskonar byrjunarreit. Aftur komin á byrjunarreit Óviðjafnanlegur dem- antur var seldur á 50,3 milljónir sviss- neskra franka, um 6,2 milljarða króna, í Genf. Sex milljarða demantur 1 2 3 4 5 SETTU STARFSFÓLKIÐ Í BESTA SÆTIÐ

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.