Morgunblaðið - 23.11.2018, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 23.11.2018, Qupperneq 6
6 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2018 Starfssvið: TÆKNIMAÐUR Menntunar- og hæfniskröfur: Vegna mikilla umsvifa leitum við að framúrskarandi starfsmanni í DeLaval þjónustudeild Bústólpa. Starfsmaðurinn mun hljóta þjálfun hjá Bústólpa og DeLaval • Þjónusta á DeLaval mjaltaþjónum og öðrum tæknibúnaði • Viðgerðir og uppsetningar á DeLaval búnaði • Iðnmenntun skilyrði • Góð enskukunnátta • Góð tölvukunnátta • Hæfni til að vinna sjálfstætt • Lipurð í mannlegum samskiptum • Þekking á landbúnaði er kostur • Bílpróf er skilyrði Umsóknarfrestur er til og með 29. nóvember 2018. Umsókn um starfið ásamt ferilskrá skal senda til skrifstofustjóra á netfangið sigurbjorg@bustolpi.is. Stefán Hlynur Björgvinsson þjónustustjóri DeLaval veitir frekari upplýsingar um starfið í síma   eða í gegnum netfangið stefan@bustolpi.is Bústólpi starfrækir fóðurverksmiðju á Oddeyrartanga á Akureyri ásamt því að reka verslun með vörur sem tengjast landbúnaði. Bústólpi er þjónustuaðili DeLaval á Íslandi. Hjá Bústólpa starfa 23 manns. Bústólpi hefur verið valið framúrskarandi fyrirtæki átta ár í röð af Creditinfo. Við finnum rétta einstaklinginn í starfið www.capacent.is Ráðgjafar okkar búa yfir víðtækri þekkingu á atvinnulífinu og veita trausta og persónu lega ráðgjöf. Síðastliðinn mánudag veitti Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðn- aðar og nýsköpunarráðherra, Sagafilm Hvatningarverðlaun jafnréttismála árið 2018 á fundi um jafnréttismál sem haldinn var í Háskóla Íslands. Hilmar Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins, veitti verðlaununum viðtöku, en markmiðið með þeim er að vekja jákvæða athygli á fyrir- tækjum sem hafa jafnrétti að leiðarljósi í starfsemi sinni og jafnframt að hvetja önnur fyrirtæki til að gera slíkt hið sama. Jafnréttisverðlaunin, sem nú voru veitt í 5. sinn, fara til fyrirtækja sem hafa stuðlað að jöfnum möguleikum kynjanna til starfsframa, jöfnum launum, jafnvægi í kynjahlutföllum og aukinni vitund um þann ávinning sem jafnrétti hefur fyrir alla. At- vinnuvega- og nýsköpunar- ráðuneytið, Samtök atvinnu- lífsins og Festa – miðstöð um samfélagsábyrgð standa að Hvatningaverðlaunum jafn- réttismála og er landsnefnd UN Women á Íslandi sam- starfsaðili. Í áliti dómnefndar ber ár- angur Saga film í jafnréttis- málum þess merki að stjórn- endur hafi sett skýr markmið og óhikað hrundið þeim í framkvæmd. Saga Film starfi í geira þar sem karlar hafi verið ráðandi og því þurfi vilj- inn til breytinga að vera ein- beittur. Meðvitaðar ákvarðanir hef- ur þurft til að tefla fram kven- kyns leikstjórum og handrits- höfundum. Konur fá aukið vægi „Ákvarðanir hafa síðan áhrif á framleiðslu fyrirtæk- isins þar sem glöggt má sjá að hlutur kynjanna hefur jafnast og konur fengið aukið vægi. Sögurnar sem sagðar eru spegla þannig betur en áður raunveruleikann,“ segir dóm- nefnd um Saga Film. Ljósm/aðsent Viðurkenning Hilmar Sigurðsson, framkvæmdastjóri Saga- film, og Hrönn Þorsteinsdóttir, fjármála- og starfsmannastjóri Sagafilm veittu verðlaununum viðtök úr hendi Þórdísar Kol- brúnar Reykfjörð Gylfadóttur nýsköpunarráðherra. Vilji til breytinga  Sagafilm hlýtur Hvatningar- verðlaun jafnréttismála 2018 Út er komin bókin Saga flugvalla og flugleiðsögu á Ís- landi, það er í rafbókarformi í opnum aðgangi á vef Landsbókasafnsins og Isavia. Einnig er hún gefin út í bók- arformi. Tilefni útgáfunnar er að árið 2016 voru 70 árlið- in síðan Íslendingar fengu herflugvelli bandamanna í Reykjavík og Keflavík af- henta til eignar og hófu rekstur flugleiðsöguþjónustu á stórum hluta Norður- Atlantshafs. Í fyrra voru svo þrjátíu ár liðin frá opnun Flugstöðvar Leifs Eiríks- sonar sem olli straum- hvörfum í farþegaflugi um Keflavíkurflugvöll. „Flugsamgöngur og inn- viðir sem þeim tengjast eru undirstaða sívaxandi ferða- þjónustu sem orðin er einn mikilvægasti atvinnuvegur þjóðarinnar,“ segir í frétt frá Isavia sem gefur bókina út. Ritinu sé ætlað að fagna framangreindum áföngum þessarar sögu. Útgáfan eigi líka vel við á afmælisári 100 ára sjálfstæðis þjóðarinnar. Bókin er um 550 blaðsíður og er tileinkað öllu starfsfólki Isavia og forvera félagsins ásamt öðrum sem lagt hafa dygga hönd á plóginn við uppbyggingu og rekstur flug- þjónustu í landinu. Höfundur bókarinnar er Arnþór Gunnarsson (f. 1965) sagnfræðingur. Eftir Arnþór liggur fjöldi greina um sagn- fræðileg efni í tímaritum svo og nokkrar bækur. sbs@mbl.is Flugvallasaga í bók  70 ára á flugi  Mikilvægur atvinnuvegur og þjónusta Ljósm/aðsend Útgáfa Arnór Gunnarsson höfundur bókarinnar, Björn Óli Hauksson forstjóri Isavia, Sigurður Ingi Jóhannsson sam- gönguráðherra, og Ragnhildur Hjaltadóttir ráðuneytisstjóri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.