Morgunblaðið - 23.11.2018, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 23.11.2018, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2018 Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9-12.30. Zumba 60+ kl. 10.30. BINGÓ kl. 13.30, spjaldið kostar 250 kr. Kaffi kl. 14.30-15.20. Árskógar Smíðar, útskurður, pappamódel með leiðbeinanda kl. 9-16. Botsía með Guðmundi kl. 10. Opið hús kl. 13-16. Bókabíllinn kemur við Árskóga 6-8 kl. 16.15-17. Opið fyrir innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni. S. 535-2700. Áskirkja Jólahlaðborð Áskirkju verður fimmtudaginn 29. nóvember kl. 19. Húsið opnað kl. 18.30. Verð 6000 kr. Miðinn er happadrætti. Hlaðborð frá Laugaási. Söngur og notaleg samverustund. Allir vel- komnir. Skrá sig hjá kirkjuverði fyrir mánudaginn 26. nóvember í síma 581-4035/588-8870. Safnaðar-félag kirkjunnar. Boðinn Vöflukaffi kl. 14.30. Línudans kl. 15.30. Bólstaðarhlíð 43 Notendaspjall kl. 9.30-10. Heimsókn frá leikskól- anum Stakkaborg kl. 10.30. Opin handverksstofa kl. 9-16. Morgunkaffi kl. 10-10.30. Leikfimi kl. 12.50-13.30. Opið kaffihús kl. 14.30-15. Dalbraut 18-20 Stólaleikfimi með Rósu kl. 10.15. Félagsmiðstöðin Lönguhlíð 3 Leikfimi kl. 13.45. Kaffiveitingar kl. 14.30. Allir velkomnir! Félagsmiðstöðin Vitatorgi Morgunkaffi kl. 9-10, Heilsuefling kl. 10- 11, Föstudagshópurinn kl. 10-11:30, Handaband, skapandi vinnustofa, öllum opin, bingó kl. 13.30-14.30, öllum opið og aðeins 250 krónur spjaldið. Vöfflukaffi kl. 14.30-15.30. Gerðuberg Opin handavinnustofa kl. 8.30-16. Glervinnustofa með leiðbeinanda kl. 9-12. Prjónakaffi kl. 10-12. Leikfimi gönguhóps kl. 10- 10.20. Gönguhópur um hverfið kl. 10.30. Qigong kl. 11.30. Bókband með leiðbeinanda kl. 13-16. Kóræfing kl. 13-15. Allir velkomnir. Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9 botsía, kl. 9.30 postulínsmálun, kl. 12.45 tréskurður, kl. 20 félagsvist. - FEBK. Gullsmári Handavinna kl. 9. Leikfimi kl. 10. Ljósmyndaklúbbur kl. 13. Bingó kl. 13.30. Hraunbæ 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9. Opin handavinna kl. 9-12. Útskurður kl. 9, verkfæri á staðnum og nýliðar velkomnir. Botsía kl. 10-11. Hádegismatur kl. 11.30. Bingó kl. 13.15. Kaffi kl. 14.30. Svavar Knútur og Aðalsteinn Ásberg mæta um kl. 14.45, lesa upp úr bókum, segja sögur og syngja. pp gj g g y gj Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, blöðin og púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45 hádegismatur kl. 11.30, brids í handavinnustofu kl. 13, bingó kl. 13.15 og eftirmiðdagskaffi kl. 14.30. Hæðargarður Við byrjum daginn við Hringborðið, heitt á könnunni. Mikil stemning verður í félagsmiðstöðinni, því undirbúningur vetrar- hátíðar er í gangi. Listasmiðjan er opin öllum. Thai chi með Guðnýju kl. 9. Botsía kl. 10.15. Myndlist hjá Margréti frá kl. 12.30. Zumba dans- leikfimi kl. 13. Vetrarhátíðin hefst kl. 18 með fordrykk, húsið opnað kl. 17.30. Uppselt. Korpúlfar Hugleiðsla og létt jóga kl. 9 í Borgum, sundleikfimi kl. 9 í Grafarvogssundlaug, brids kl. 12.30 í Borgum og hannyrðahópur Korpúlfa kl. 12.30 í Borgum. Hið rómaða vöfflukaffi kl. 14.30 til 15.30 í dag í Borgum. Tréútskurður kl. 13 á Korpúlfsstöðum í dag. Minnum á sölu og handverkssýningu Korpúlfa í Borgum á morgun laugardaginn 24. nóvember, margt fallegt og pönnukökukaffisala frá kl. 14 til 15.30. Allir vekomnir. Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum kl. 10.30 Leikfimi með Evu á Skólabraut kl. 11. Spilað í króknum á Skólabraut kl. 13.30 og brids í Eiðismýri 30, kl. 13.30. Ath. söngstundin fellur niður í dag. Skráning- arblöð liggja frammi vegna skráningarinnar á jólahlaðborðið á Hótel Örk sem verður fimmtudaginn 6. desember. Önnur bæjarfélög sem verða þar þetta sama kvöld eru Hafnarfjörður, Garðabær, Álftanes, Siglufjörður og Reykjavík. Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10-14. Heitt á könnunni frá kl. 10-11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá kl. 11.30-12.15, panta þarf matinn daginn áður. Framhaldssaga eða bíó kl. 13. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568-2586. Stangarhylur 4 Íslendingasögu-námskeið kl. 13, Hávarðarsaga Ísfirðings, kennari Baldur Hafstað. Dansað sunnudagskvöld kl. 20-23. Hljómsveit hússins leikur fyrir dansi. Bókmenntir fimmtudaginn 29. nóvember kl. 14-15.30, Bjarni Harðarson mun halda fyrirlestur um bók sína „Í skugga Drottins” um efni og baksvið sögunnar, umsjón Jónína Guðmundsdóttir. 569 1100 www.mbl.is/smaauglRaðauglýsingar Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á skrif- stofu sýslumanns, Hafnarstræti 1, Ísafirði, sem hér segir: ALMA KATRÍN, ÍS, Ísafjarðarsýslur og Ísafjörður, (FISKISKIP), fnr. 6889, þingl. eig. Vaggarahóll ehf., gerðarbeiðandi Landsbankinn hf., fimmtudaginn 29. nóvember nk. kl. 10:00. Sýslumaðurinn á Vestfjörðum 22. nóvember 2018 Nauðungarsala Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Seljalandsvegur 68, Ísafjarðarbær, fnr. 212-0213, þingl. eig. Stein- grímur Jón Steingrímsson, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Tryggingamiðstöðin hf., fimmtudaginn 29. nóvember nk. kl. 10:30. Lækur lóð, Ísafjarðarbær, fnr. 212-5888, þingl. eig. Sigmundur Þórir Jónsson, gerðarbeiðandi Sýslumaðurinn á Norðurlandi ves, fimmtu- daginn 29. nóvember nk. kl. 14:15. Túngata 4, Ísafjarðarbær, fnr. 212-6843, þingl. eig. Oddur Alexander Hannesson, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, fimmtudaginn 29. nóv- ember nk. kl. 13:30. Aðalgata 2A, Súðavíkurhreppur, fnr. 212-7028, þingl. eig. Aðalgata 2A ehf., gerðarbeiðendur Sjóvá-Almennar tryggingar hf. og Tollstjóri, fimmtudaginn 29. nóvember nk. kl. 15:30. Sýslumaðurinn á Vestfjörðum 22. nóvember 2018 Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Efstaleiti 12, Reykjavík, fnr. 203-2769, þingl. eig. Pétur Gunnlaugs- son, gerðarbeiðendur Efstaleiti 10,12,14,húsfélag og Lífeyrissjóður verslunarmanna og Íbúðalánasjóður, þriðjudaginn 27. nóvember nk. kl. 10:30. Hagamelur 25, Reykjavík, fnr. 202-7583, þingl. eig. Kári Þór Arn- þórsson, gerðarbeiðendur Reykjavíkurborg og Hagamelur 25, húsfélag, þriðjudaginn 27. nóvember nk. kl. 11:30. Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu 22. nóvember 2018 Tilkynningar Seyðisfjarðarkaupstaður Deiliskipulag við Hlíðarveg - skipulags- lýsing - kynning Umhverfisnefnd auglýsir hér með opið hús þar sem íbúar geta kynnt sér skipulagslýsinguna skv. ákv. gr. 5.2 í skipulagsreglugerð. Deiliskipulag við Híðarveg. Lýsing skipu- lagsáforma um deiliskipulag við Hlíðarveg. Skipulagssvæðið er um 3,5 ha að stærð og er staðsett sunnan Dagmálalækjar, vestan við Múlaveg og austan við Garðarsveg. Auk þess eru lóðir við Múlaveg utan Dagmálalækjar innan svæðisins. Með deili- skipulaginu er verið að skapa svæði til frekari uppbyggingar íbúða á Seyðisfirði og auka framboð á lóðum fyrir íbúðarhús. Opið hús verður í fundarsal Hafnargötu 28, Seyðisfirði, fimmtudaginn 29. nóvember nk. kl. 16:00 - 18:00. Almenningi verður gefinn kostur á að koma með ábendingar á kynningunni og/eða senda inn ábendingar til skipulags- og byggingarfulltrúa, Hafnargötu 44, 710 Seyðisfirði eða á netfangið sigurdur@sfk.is til og með 14. desember 2018. Hægt er að nálgast skipulagslýsinguna á heimasíðu Seyðisfjarðarkaupstaðar og á bæjarskrifstofunni að Hafnargötu 44. Byggingarfulltrúinn á Seyðisfirði DEILISKIPULAG MIÐHLUTA HAFNARSVÆÐIS Á VOPNAFIRÐI, drög að nýju deiliskipulagi fyrir svæðið – kynning tillögu á vinnslustigi. Hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps auglýsir hér með opið hús þar sem íbúar geta kynnt sér drög að að nýju deiliskipulagi fyrir miðhluta hafnar- svæðis á Vopnafirði ásamt umhverfisskýrslu, skv. ákv. gr. 4.6.1 í skipulagsreglugerð. Skipulagstillagan er kynnt á vinnslustigi í sam- ræmi við 4.mgr. 40 gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagssvæðið er um 8.5 ha. að stærð og skiptist annars vegar í um 5.8 ha. hafnar- og iðnaðarsvæði og hins vegar í um 2.7 ha. miðsvæði og er landið í eigu Vopnafjarðarhrepps. Í gildi er deiliskipulag fyrir umrætt svæði og verður hluti þess sem er innan sama svæðis fellt úr gildi við gildistöku nýs skipulags. Gildandi deiliskipulag hafnar- og miðsvæðis á Vopnafirði er dagsett 6. nóvember 2008. Opið hús verður í Miklagarði á Vopnafirði, þriðjudaginn 27. nóvember n.k. kl. 15:00 - 18:00. Almenningi verður gefinn kostur á að koma með ábendingar á kynningunni og/eða senda inn ábendingar til skipulags- og byggingarfulltrúa Vopnafjarðarhrepps Hafnargötu 28, 710 Seyðisfirði eða á netfangið sigurdur.jonsson@efla.is til og með 10. desember 2018. Hægt er að nálgast drög að nýju deiliskipulagi ásamt umhverfisskýrslu á heimasíðu Vopnafjarðar- hrepps og á skrifstofu hreppsins að Hamrahlíð 15 Vopnafirði. Byggingarfulltrúinn í Vopnafjarðarhreppi Vopnafjarðarhreppur Seyðisfjarðarkaupstaður Aðalskipulag Seyðisfjarðarkaupstaðar 2010 -2030. Aðalskipulagsbreyting – tillaga á vinnslustigi og breyting á deiliskipulagi í Lönguhlíð - tillaga á vinnslustigi – kynning Umhverfisnefnd Seyðisfjarðar- kaupstaðar auglýsir hér með opið hús þar sem íbúar geta kynnt sér sér drög að breytingu á aðalskipulagi ásamt drögum að breytingu á deiliskipulagi í Lönguhlíð á Seyðisfirði skv. ákv. gr. 4.6.1 í skipulagsreglugerð. Aðalskipulag Seyðisfjarðarkaupstaðar 2010 - 2030. Breyting á skilmálum fyrir íbúðasvæði og atvinnu- og iðnaðarsvæði. Breytt land- notkun í Lönguhlíð. Samkvæmt tillögunni verður skilmálum landnotkunar á atvinnu- og iðnaðarsvæðum og íbúðasvæðum breytt. Einnig verður gerð breyting á landnotkun í Lönguhlíð þar sem landnotkun samkvæmt breytingunni verður viðskipta- og þjónustu- lóðir í stað frístundalóða. Opið hús verður í fundarsal Hafnargötu 28, Seyðisfirði, fimmtudaginn 29. nóvember nk. kl. 16:00 - 18:00. Almenningi verður gefinn kostur á að koma með ábendingar á kynningunni og/eða senda inn ábendingar til skipulags- og byggingarfulltrúa, Hafnargötu 44, 710 Seyðisfirði eða á netfangið sigurdur@sfk.is til og með 10. desember 2018. Hægt er að nálgast tillögurnar á heimasíðu Seyðisfjarðarkaupstaðar og á bæjarskrif- stofunni að Hafnargötu 44. Byggingarfulltrúinn á Seyðisfirði Félagsstarf eldri borgara         !  "#$ !%&

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.