Morgunblaðið - 05.12.2018, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. DESEMBER 2018
Funahöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 577 6666
KIEL/ - OG FRYSTITJEKI
., '*-�-��,�rKu�,
æli- & frystibúnaður
í allar gerðir sendi- og flutningabíla
K Veður víða um heim 4.12., kl. 18.00
Reykjavík -2 skýjað
Hólar í Dýrafirði -8 léttskýjað
Akureyri -7 alskýjað
Egilsstaðir -6 snjókoma
Vatnsskarðshólar -2 skýjað
Nuuk -2 skýjað
Þórshöfn 4 léttskýjað
Ósló 1 heiðskírt
Kaupmannahöfn 5 léttskýjað
Stokkhólmur 3 rigning
Helsinki 5 skýjað
Lúxemborg 5 léttskýjað
Brussel 6 þoka
Dublin 5 skýjað
Glasgow 3 skýjað
London 6 léttskýjað
París 8 súld
Amsterdam 4 léttskýjað
Hamborg 5 skúrir
Berlín 5 heiðskírt
Vín 8 skýjað
Moskva -3 snjókoma
Algarve 18 heiðskírt
Madríd 5 þoka
Barcelona 18 heiðskírt
Mallorca 19 léttskýjað
Róm 17 léttskýjað
Aþena 11 léttskýjað
Winnipeg -8 skýjað
Montreal -5 snjóél
New York 3 heiðskírt
Chicago 0 snjókoma
5. desember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 10:57 15:41
ÍSAFJÖRÐUR 11:35 15:12
SIGLUFJÖRÐUR 11:19 14:54
DJÚPIVOGUR 10:34 15:03
VEÐUR KL. 12 Í DAG
Á fimmtudag Austan 10-18 m/s, en 18-25 við S-
ströndina. Slydda eða rigning S- og SA-lands og
snjókoma NA-til, annars úrkomulítið. Hiti 0 til 5 stig,
en vægt frost norðan heiða.
Gengur í A 8-13 m/s og 13-18 syðst á landinu síðdegis en hægari á N- og A-landi. Él SA-lands og
við S-ströndina en snjókoma á Austfjörðum síðdegis. Frost N heiða en dregur úr frosti syðra.
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
Margrét Ýrr Sigurgeirsdóttir,
hjúkrunarforstjóri hjúkrunarheimil-
isins Lundar á Hellu, segir að bolt-
inn sé nú hjá Sjúkratryggingum Ís-
lands hvort samningar um við-
eigandi mönnun náist þannig að
Tryggvi Ingólfsson, sem lamaður er
frá hálsi, geti flutt á Lund. Tryggvi
hefur beðið eftir dvalarúrræði frá
því í vor eftir að hjúkrunarheimilið
Kirkjuhvoll á Hvolsvelli, þar sem
hann var búsettur áður, treysti sér
ekki til þess að veita honum þjónustu
lengur. Tryggvi hefur ekki getað út-
skrifast af Landspítalanum eftir að-
gerð sem gerð var á honum í vor
vegna skorts á búsetuúrræði.
Langar samningaviðræður
„Samningar við velferðarráðu-
neytið hafa tekið langan tíma. Af
hálfu Lundar erum við öll af vilja
gerð til þess að taka á móti Tryggva
ef við getum tryggt nægjanlega
mönnun. Þegar samningar við ráðu-
neytið um sértækt hjúkrunarrými
náðust ekki sáum við þann eina kost í
stöðunni að láta gera úttekt á okkar
kostnað hjá KPMG á mönnunar-
þörf,“ segir Margrét, sem lagði út-
tektina fyrir ráðuneytið en það hafi
ekki liðkað fyrir samningum og
ráðuneytið ákveðið að senda Rang-
árþingi ytra erindi til þess að leita
lausna. Margrét segir að í gær hafi
hún svo fengið símtal frá Sjúkra-
tryggingum Íslands sem hún gat
ekki skilið á annan veg en Sjúkra-
tryggingar væru teknar við samn-
ingaviðræðum við Lund.
Sveitarfélagið greiði ekki
Margrét segir að Lundur sé í
Rangárþingi ytra en sveitarfélagið
eigi ekki að koma að greiðslu dag-
gjalda vegna hjúkrunarrýma á nokk-
urn hátt. Hlutverk sveitarfélagsins
sé að sinna félagsþjónustu við íbúa
svo sem akstri, liðveislu og þess
háttar.
„Við erum í biðstöðu þar til samn-
ingar takast. Þá fyrst getum við haf-
ið leit að starfsfólki sem uppfyllir
mönnun við sértækt hjúkrunar-
rými,“ segir Margrét Ýrr, sem hefur
áhyggjur af því að erfitt geti reynst
að fá fólk til vinnu í þessi störf sem
önnur á Hellu.
Boltinn er hjá
Sjúkratryggingum
Tryggvi bíður í óvissu á meðan
Morgunblaðið/Hjörtur
Samningar Sjúkratryggingar Ís-
lands eiga næsta leik í máli Tryggva.
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Launaþróun starfsmanna hjá fjármálafyrir-
tækjum hefur nokkurn veginn verið í takt við
kjarasamninga, samkvæmt
nýlegri kjarakönnun Sam-
taka starfsmanna fjármála-
fyrirtækja (SSF). Meðaltal
heildarlauna greiddra 1.
október sl. samkvæmt
könnuninni var 838 þúsund
krónur fyrir skatt. Hækk-
un heildarlauna á milli
mælinga er 21,1%. Þá voru
um 38,6% starfsmanna
mjög eða frekar ánægð
með laun sín en 29,2% mjög eða frekar
óánægð með þau.
„Það sem kemur á óvart og ekki á óvart er
bara miðað við þá þróun sem maður hefur
séð, miðað við kjarasamninga og launaþróun,
þá er þetta bara nokkurn veginn í takti sem
maður má reikna með. Þetta er bara mjög í
samræmi við þróunina þannig að það eru ekki
svakalega miklar breytingar í neinu,“ segir
Ari Skúlason, varaformaður SSF.
„Þessi heimur á íslenskum vinnumarkaði er
nokkuð stöðugur þannig séð,“ bætir Ari við.
Mjög marktæk könnun
Hann segist fyrst og fremst ánægður með
svarhlutfallið í kjarakönnuninni, en 74% fé-
lagsmanna svöruðu könnuninni, eða 2.786
manns af 3.764 manna úrtaki. „Það er næst-
um því einstakt og því er mikið að marka
þetta,“ segir Ari.
Spurður út í komandi kjarasamninga segist
Ari vera bjartsýnn en bendir á að þetta sé lít-
ill hópur starfsmanna. „Já, við erum bjartsýn.
Okkar kjarasamningar fara mjög mikið eftir
því sem aðrir gera. Við erum lítill hópur og
aldrei í forystu og aldrei leiðandi þannig að
við komum svona hægt og sígandi í kjölfarið
þegar aðrir eru búnir að klára sín mál,“ segir
Ari og bætir við að flest annað sem kom úr
könnuninni sé í samræmi við því sem félagið
reiknaði með.
Stytting vinnuvikunnar og laun
Af þeim málefnum sem starfsmenn vilja
helst að Samtökin leggi áherslu á í næstu
kjarasamningsviðræðum eru hækkun launa
og stytting vinnuvikunnar efst á baugi. 41,9%
segja að mesta áherslu eigi að leggja á stytt-
ingu vinnuvikunnar og 39,1% á hækkun
launa.
Þróun í takt við kjarasamninga
Meðaltal heildarlauna hjá starfsmönnum fjármálafyrirtækja er 838 þúsund kr. 74% þátttökuhlut-
fall í kjarakönnun Bjartsýn á komandi kjarasamninga Áhersla lögð á að stytta vinnuvikuna
Morgunblaðið/Golli
Bankar Starfsmenn fjármálafyrirtækjanna
vilja hærri laun og styttri vinnuviku.
Ari Skúlason
Hafnartorg. Þessar byggingar
mynda nær samfelldan vegg vestan
við götuna. Hann sagði að til væru
aðferðir til að reikna út vindmögn-
unina út frá aðstæðunum.
„Lækjargatan er orðin dæmi-
gerð fyrir svona vindgöng, sér-
staklega nú með þessum nýju
byggingum. Þarna erum við að
breyta veðurlaginu en það gildir
bara í norðanátt og væntanlega líka
í sunnanátt, sem er fátíðari og við
finnum því minna fyrir henni. Við
sjáum svona áhrif mjög vel á sumr-
in í Pósthússtrætinu þegar hafgol-
an finnur sér farveg eftir því og
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Napur norðanstrengurinn sem blés
á háa og lága framan við Stjórnar-
ráðshúsið á aldarafmæli fullveldis-
ins á laugardag
var líklega
magnaður upp af
mannavöldum,
að mati Einars
Sveinbjörns-
sonar veður-
fræðings.
„Þegar
norðanátt er
kemur kaldur
gjóstur af hafi
yfir miðborgina
og vestur á Seltjarnarnes. Við töl-
um gjarnan um Hvalfjarðar-
streng,“ sagði Einar. „Það er vel
þekkt að þegar reistar eru bygg-
ingar sem eru ákveðið háar miðað
við breidd aðliggjandi götu magn-
ast upp vindur sem blæs samsíða
byggingunum. Lækjargata hefur
verið þekkt fyrir að þar hefur nætt
um vegfarendur, ekki síst í hafgolu
á sumrin, og Lækjartorg er ekki
beinlínis skjólsælt.“
Einar sagði að meðan Seðla-
bankahúsið hefði staðið eitt hárra
húsa að austan við Kalkofnsveg
hefði þetta ekki verið vandamál.
Svo reis Harpa, hótelbyggingin
sunnan við hana og húsin við
magnast upp í þröngri götunni. Á
sama tíma er skjól á Austurvelli,“
sagði Einar.
Hann sagði að farið væri að huga
að áhrifum bygginga á veður við
hönnun nýrra hverfa. Þannig var
hann kallaður til ráðgjafar við
hönnun nýs hverfis í Smáranum í
Kópavogi. Þá var skoðað hvar gæti
myndast skjól og hvar vindur gæti
magnast og reynt að hafa það til
hliðsjónar við hönnun hverfisins.
Einar sagði að Danir hefðu lært
fyrir löngu að byggja þvert á
ríkjandi suðvestan vindáttir og
mynda skjól.
Vindstrengur í miðborginni
magnaður af mannavöldum
Nýbyggingar í miðborg Reykjavíkur magna upp norðan-
strenginn sem leggur af hafi, að mati veðurfræðings
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Lækjargatan Húsin við götuna mynda vindgöng fyrir norðanáttina.
Einar
Sveinbjörnsson