Morgunblaðið - 05.12.2018, Síða 30

Morgunblaðið - 05.12.2018, Síða 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. DESEMBER 2018 HAGI ehf Stórhöfða 37 • 110 Reykjavík • S. 414-3700 • hagi@hagi.is • Hagi ehf HILTI Hágæða vinnuföt í miklu úrvali Sérmerkjum fyrir fyrirtæki Verkfæri og festingar Mikið úrval af öryggisvörum Nú fástS s vinnuföt í „Jólin okkar“ er yfirskrift jóla- tónleika Hinsegin kórsins sem haldnir verða í Gamla bíói í kvöld, miðvikudag, kl. 20. „Við ætlum að fara aðeins aðrar leiðir en við erum vön og verðum órafmögnuð í þetta skiptið. Efnis- skráin er að venju fjölbreytt og skemmtileg. Við munum meðal ann- ars frumflytja lag eftir kórstjórann okkar, syngja lag sem var sungið í konunglegu brúðkaupi, rifja upp lög sem við höfum flutt áður, syngja lög sem við höfum ekki flutt áður og krydda þetta allt með dassi af jóla- lögum,“ segir í tilkynningu. Þar kemur fram að kórinn kryddi tón- leikadagskrána með tónlist úr brúð- kaupi Megan og Harry Bretaprins og smellum frá Stevie Wonder og George Michael. „Til þess að gera tónleikana ógleymanlega fær kórinn Jóhönnu Vigdísi Arnardóttur, betur þekkta sem Hönsu, til liðs við sig. Hinsegin kórinn og Hansa verða ekki ein á sviðinu á miðvikudaginn því þar leika með kórnum Vignir Þór Stefánsson píanóleikari, Þorgrímur Jónsson kontrabassaleikari og Ólaf- ur Hólm Einarsson trommuleikari. Og svo skýtur leynigestur upp koll- inum.“ Miðar eru seldir á tix.is. Söngelsk Kórstjórinn Helga Margrét Marzellíusardóttir með kórfélögum. Hinsegin kórinn syngur í Gamla bíói Það virðist vera flókið aðfinna sig í nútímanum efmarka má þankagangSölva Daníelssonar, sem leitast við að koma skáldskap sínum á framfæri og finna tilgang með til- verunni í Sölvasögu Daníelssonar, sem er sjálfstætt framhald bókar- innar Sölvasaga unglings sem hlaut Bókmenntaverðlaun Norðurlanda- ráðs 2016 í flokki ungmenna- bókmennta. Það geta eflaust margir ungir menn fundið sig í Sölva Daníelssyni, sem á erfitt með að finna taktinn í hversdagslífinu. Hann virðist þrátt fyrir ungan aldur vera í einhvers konar tilvistarkreppu. Hann á sér draum um að verða skáld en hefur litla trú á sjálfum sér. Hann fellur ekki að norminu og virðist stundum á einhvers konar rófi. Sölvi virkar einmana og þunglyndur en sér ljósið í kveð- skap. Þroskasaga Sölva sem ungs manns hefst þeg- ar hann fer í heimavistarskóla á Akureyri. Bókin er vel skrifuð, hún er brotin upp með skáldskap Sölva og í henni er sterk samfélagsádeila. Persónusköpun í bókinni er mjög trúverðug og oft langaði gagnrýnanda að taka í hnakkadrambið á Sölva og vinum hans. Foreldrar Sölva virka frekar sjálfhverf, sem skýrir að einhverju leyti líðan hans, og skólastjórnend- urnir eru hippatýpur sem eiga ekki að koma nálægt rekstri. Lýsingar á þankangi og líðan ungs fólks í Sölvasögu eru þungar og á köflum niðurdrepandi en það koma ljósir punktar inn á milli. Bók- in vekur spurninguna um líf ungs fólks í dag, hvort það sé tilgangslítið og erfitt hjá of mörgum og ef svo er hvað sé þá til ráða, en ef til vill er Sölvasaga Daníelssonar einfaldlega eðlileg þroskasaga ungs manns. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Spurning Gagnrýnandi segir bók Arnars Más vekja spurninguna um líf ungs fólks í dag, hvort það sé tilgangslítið og erfitt hjá of mörgum. Leitin að til- gangi lífsins Skáldsaga Sölvasaga Daníelssonar bbbmn Eftir Arnar Má Arngrímsson. Sögur útgáfa, 2018. Innb., 263 bls. GUÐRÚN ERLINGSDÓTTIR BÆKUR Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra býður til athafnar á Kjarvalsstöðum í dag kl. 10.30 þar sem Kærleikskúla ársins 2018 verður afhent verðugri fyrirmynd eða fyrirmyndum en árlega er valinn sérstakur handhafi Kærleik- skúlunnar í viðurkenningarskyni fyrir vel unnin störf í þágu fatlaðs fólks í samfélaginu. Fyrstu Kærleikskúluna, fyrir árið 2003, hannaði Erró og hafa þekktir listamenn, innlendir sem erlendir, hannað hana árlega upp frá því og má af þeim nefna Yoko Ono og Ólaf Elías- son. Nú er komið að Elínu Hansdóttur og mun allur ágóði af sölu kúlunnar að vanda fara í að styrkja sumarbúðirnar í Reykjadal þar sem börn og ung- menni með fatlanir geta komið og dvalið yfir sumar eða vetur. Eliza Reid forsetafrú verður kynnir við at- höfnina í dag, bjöllukór tónstofu Val- gerðar mun flytja jólalög en forsöngur sönghópsins Lyrika hefst kl. 10.30. Segulstálskúla í kúlunni Elín segist hafa verið beðin um að hanna kúluna í byrjun sumars og hafði hún tvo eða þrjá mánuði til stefnu, fram að framleiðslu kúlunnar sem fer fram erlendis. Elín er vön að vinna innsetningar fyrir stór rými og segir þetta litla rými, Kærleikskúluna, því hafa verið töluverða áskorun og skemmtilega. „Ég tók þann pól í hæðina að vinna með eitthvað sem bendir á einhvers konar hluta af raunveruleika okkar sem er aðdráttarafl jarðar. Það er segulstálskúla inni í glerhjúpnum og járnduft sem laðast að þessu segul- stáli. Svo er hægt að hrista kúluna – varlega – og þá breytist lögunin á kúl- unni sem er inni í henni,“ segir Elín. Henni hafi þótt skemmtilegt að vinna út frá því að engar tvær kúlur væru eins og kúlan inni í kúlunni breytileg frá einu augnabliki til annars. –Og þú ert með því að vísa líka til breytinga á jörðinni og að hver maður sé einstakur, eða hvað? „Já og hvernig utanaðkomandi afl getur mótað umhverfi sitt,“ svarar Elín. Hún er spurð að því hvort hún hafi fengið margar hugmyndir til við- bótar þessari. „Ja, það var kannski ein önnur hugmynd sem var of flókin í framkvæmd af því þetta eru allt handblásnar kúlur og því hægt að setja ýmislegt inn í þær en það þarf að komast inn í gegnum mjög mjótt rör. Þannig að takmarkanirnar eru svolítið miklar,“ svarar Elín. Litla jörð Nafn kúlunnar, Terella, er latína og þýðir Litla jörð. „Það er vísun í rannsóknir eðlisfræðings, vísinda- manns sem hét William Gilbert og er sá sem uppgötvaði aðdráttarafl jarð- ar, að inni í kjarna hennar væri segul- magn. Hann notaði í rannsóknum sín- um módel sem hann kallaði Terella,“ útskýrir Elín. Gilbert hafi notað kúlu- laga segulstál í sínum rannsóknum líkt og hún geri í Kærleikskúlunni. Bestu gjafirnar –Er ekki gott að taka þátt í þessu, að fá að styrkja svona gott málefni skömmu fyrir jól? „Jú, það er engin spurning og mér finnst að jólin eigi að snúast um svona hluti. Maður sér víðsvegar spretta upp sjóði á borð við sjóð Fatímu sem safnar peningum fyrir börnin í Jemen og fleiri og fleiri óska þess að fólk gefi pening í þessa sjóði í stað þess að gefa jólagjafir. Það er mikilvægt, þetta eru bestu gjafirnar.“ Umbreyting „[K]ærleikurinn getur með krafti sínum sameinað og umbreytt því sem kemst í tæri við segulmagn hans,“ segir m.a. um Kærleikskúlu Elínar Hansdóttur á vefnum kaerleikskulan.is. Hér sést Elín með kúluna. Afl kærleikans  Terrella eftir Elínu Hansdóttur er Kærleikskúla ársins 2018  Segulstálskúla og járnduft sem breytir um lögun Ljósmynd/Lilja Birgisdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.