Fréttablaðið - 11.03.2019, Blaðsíða 6
EES og atvinnulífið
Hvernig höfum við
áhrif saman?
Miðvikudaginn 13. mars efnir
utanríkisráðuneytið til morgunfundar
ásamt Alþýðusambandi Íslands og
Samtökum atvinnulífsins.
Rætt verður hvernig atvinnulíf og launþega-
samtök geta haft áhrif á mótun löggjafar
á Evrópska efnahagssvæðinu.
Fundurinn fer fram á Grand Hótel Reykjavík
klukkan 8:30-10:00.
Skráning á:
stjornarradid.is/EESogatvinnulifid
BORGARMÁL Samgöngu- og sveitar-
stjórnarráðuneytið hefur komist
að þeirri niðurstöðu að fundar-
boð í samgöngu- og skipulagsráð
Reykjavíkurborgar í ágúst í fyrra
hafi verið gallað. Sjálfstæðismenn
gengu af fundinum og sögðu hann
ekki hafa verið boðaðan með lög-
legum fyrirvara. Þar að auki hafi
fundargögn ekki fylgt fundar-
boðinu.
Vigdís Hauksdóttir, borgarfull-
trúi Miðf lokksins, fór fram á það
í byrjun fundarins að hann yrði
af boðaður en sú tillaga var felld af
fulltrúum meirihlutans.
Fulltrúar Sjálfstæðisf lokksins
yfirgáfu fundinn. Í bókun meiri-
hlutans segir að bilun í tölvukerfi
og innsláttarvilla á netföngum
hafi orðið til þess að fundarboðið
barst ekki tímanlega, engu að síður
sé það ótvírætt álit lögfræðinga
sviðsins að ágallarnir valdi ekki
því að fundurinn teljist ólög-
mætur.
„Þetta er hugsanlega vanhugsað-
asta og vandræðalegasta upphlaup
sem ég hef orðið vitni að á mínum
átta ára ferli í pólitík,“ sagði Kristín
Soffía Jónsdóttir, borgarfulltrúi
Samfylkingarinnar, um þá ákvörð-
un Sjálfstæðismanna að yfirgefa
fundinn.
Í bréfi ráðuneytisins til borgar-
stjóra í vikunni segir að ágallarnir
séu til þess fallnir að valda óvissu
um lögmæti fundarins.
Er því beint til borgarinnar að
tryggja framvegis að uppfylla
kröfur um boðun funda og rétt
væri að lengja lágmarksfyrirvara
á fundarboðum. Hefur ráðuneytið
beðið um viðbrögð frá borginni
vegna tilmælanna. – ab
Vandræðalega
upphlaupið
var réttmætt
Forstjóri og stjórn
félagsins bera
ábyrgð á [ákvörðunum
félagsins].
Úr svarbréfi Póst- og fjarskipta-
stofnunar við erindi samgöngu- og
sveitarstjórnarráðuneytisins
Krisín Soffía
Jónsdóttir,
borgarfulltrúi
Samfylkingar.
B R E T L A N D Ut a n r ík isr áðher r a
Bretlands, Jeremy Hunt, segir að
útganga Bretlands úr Evrópusam-
bandinu gæti orðið að engu ef
þingmenn Íhaldsf lokksins, sem er
í meirihluta á breska þinginu, sam-
þykki ekki Brexit-samning Theresu
May. Í samtali við BBC segir hann
að andstæðingar Brexit hafi fengið
byr undir báða vængi að undan-
förnu.
Þing menn munu k jósa um
samninginn að nýju á þriðjudaginn
en líkt og fram hefur komið var
honum hafnað í janúar. Var það
að mestu leyti vegna áhyggja þing-
manna um hið svokallaða „back-
stop ákvæði“ í málefnum Norður-
Írlands en ákvæðið gerir ráð fyrir
að Norður-Írland haldi áfram að
vera hluti af Evrópska efnahags-
svæðinu, að minnsta kosti tíma-
bundið, til að koma í veg fyrir að
eiginleg landamæri verði sett upp
á milli Norður-Írlands og Írlands.
Í umfjöllun BBC kemur fram að
fátt bendi til þess að May hafi tekist
að semja um breytingar á ákvæð-
inu við forsvarsmenn Evrópusam-
bandsins síðan þá.
„Við eigum tækifæri á að yfirgefa
sambandið þann 29. mars næst-
komandi eða stuttu síðar. Það er
mjög mikilvægt að við nýtum tæki-
færið vegna þess að þeir sem vilja
stöðva Brexit hafa fengið byr undir
báða vængi að undanförnu,“ segir
ráðherrann meðal annars.
„Við erum í ólgusjó. Fái and-
stæðingar Brexit sínu framgengt
mun það hafa afdrifaríkar og
skaðlegar af leiðingar fyrir f lokk-
inn. Fólk mun geta sagt að þarna
sé f lokkurinn sem kjörinn var til
að leiða þetta mál til lykta en hafi
mistekist.“
Hafni þingmennirnir samningi
May á þriðjudag verður kosið um
það á miðvikudaginn hvort Bret-
land eigi að yfirgefa sambandið án
samnings. Verði því hafnað verður
kosið um að seinka útgöngu lands-
ins og þá er óljóst hvenær nákvæm-
lega Bretland mun yfirgefa sam-
bandið. – oæg
Hætta á að Brexit verði að engu
Jeremy Hunt óttast afleiðingarnar fyrir Íhaldsflokkinn. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
Það er mjög mikil-
vægt að við nýtum
tækifærið vegna þess að þeir
sem vilja stöðva Brexit hafa
fengið byr undir báða vængi.
Jeremy Hunt,
utanríkisráðherra Bretlands
SAMKEPPNI Að mati Póst- og fjar-
skiptastofnunar (PFS) virðist lausa-
fjárvandi Íslandspósts ohf. (ÍSP)
til kominn vegna fækkunar einka-
réttarbréfa annars vegar og hins
vegar mikilla fjárfestinga sem ráð-
ist var í á sama tíma og fjármögnun
þeirra var ekki tryggð. Þessi vandi
hafi ekki verið opinberaður af hálfu
ÍSP fyrr en á síðari helmingi síðasta
árs.
Þetta kemur fram í svarbréfi PFS,
sem sent var í síðasta mánuði, við
erindi samgöngu- og sveitarstjórn-
arráðuneytisins (SRN) frá því í des-
ember. Í bréfi SRN var óskað eftir
því að PFS gerði grein fyrir hvernig
eftirliti stofnunarinnar með fjár-
hagsstöðu ÍSP hefði verið háttað.
Í lögum um PFS er kveðið á um að
stofnunin hafi eftirlit með starfsemi
fjarskiptafyrirtækja og póstrek-
enda og þar er fjárhagsstaða þeirra
með talin. Í svarbréfi PFS segir aftur
á móti að það eftirlit, þegar kemur
að póstþjónustu, takmarkist við
þann hluta sem snýr að einkarétti
og alþjónustu.
„Með öðrum orðum hefur stofn-
unin ekki eftirlit með allri starfsemi
félagsins og þaðan af síður heimildir
til að grípa inn í með einhverjum
hætti þær ákvarðanir sem félag-
ið kann að hafa tekið. Forstjóri og
stjórn félagsins bera ábyrgð á þeim
ákvörðunum,“ segir í bréfinu.
Í svarinu er enn fremur rakið að
rekstrarreikningur ÍSP fyrir árið
2017 hafi ekki bent til þess að félag-
ið stefndi í alvarlegan lausafjár-
vanda árið 2018. Samkvæmt árs-
hlutareikningi í september í fyrra
var veltufé frá rekstri 12 milljónir
króna sem er um 500 milljónum
lægra en á sama tíma árið áður. PFS
telur það skýrast af lækkun á hagn-
aði einkaréttarbréfa. Ekkert hafi
legið fyrir um vandann fyrr en síðla
árs 2018. Stjórn ÍSP hefur að vísu
reglulega bókað í fundargerðum
að rekstrargrundvöllur væri ekki
lengur til staðar og komið slíkum
skilaboðum til SRN.
Í þessu samhengi er rétt að nefna
að í nóvember í fyrra hafnaði PFS
beiðni ÍSP um hækkun verðskrár
einkaréttar enda hefði af koma
einkaréttar verið góð árin tvö á
undan. Í raun svo góð að stofnunin
íhugaði að afturkalla fyrri ákvörð-
un sína um hækkun. Í síðasta mán-
uði samþykkti PFS hins vegar beiðni
um meiri hækkun en hafnað var í
nóvember. Það samþykki lá fyrir
sama dag og ÍSP skilaði nauðsyn-
legum gögnum til stofnunarinnar.
joli@frettabladid.is
Miklar fjárfestingar án þess
að fjármagn væri tryggt
Fækkun einkaréttarbréfa samtímis miklum fjárfestingum virðist hafa stuðlað að lausafjárþurrð Póstsins
að mati Póst- og fjarskiptastofnunar. Stofnunin segir eftirlit með fjárhag fyrirtækisins takmarkast við
þætti er lúta að einkarétti og alþjónustu. Vandinn hafi ekki legið fyrir fyrr en á haustmánuðum í fyrra.
Íslandspóstur réðst í framkvæmdir fyrir 1,2 milljarða á nýliðnu ári. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
1 1 . M A R S 2 0 1 9 M Á N U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
1
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:3
2
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
8
8
-0
0
2
C
2
2
8
7
-F
E
F
0
2
2
8
7
-F
D
B
4
2
2
8
7
-F
C
7
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
0
s
_
1
0
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K