Fréttablaðið - 11.03.2019, Blaðsíða 10
Nýjast
Þór Þorl. - Haukar 99-76
Stigahæstir: Halldór Garðar Hermannsson
22, Nikolas Tomsick 19, Kinu Rochford 17/14
fráköst - Russell Woods 20, Hilmar Smári
Henningsson 19, Daði Lár Jónsson 12/10
fráköst, Hjálmar Stefánsson 9.
Skallagr. - Tindastóll 82-90
Stigahæstir: Matej Bouvac 23/13 fráköst,
Björgvin Hafþór Ríkharðsson 16/10 frá-
köst, Bjarni Guðmann Jónsson 15 - Brynjar
Þór Björnsson 23, Dino Butorac 16, Philip
Alawoya 15/10 fráköst.
Breiðablik - Njarðvík 70-102
Stigahæstir: Sveinbjörn Jóhannesson 17,
Arnór Hermannsson 16, Hilmar Pétursson
15 - Eric Katenda 22/10 fráköst, Elvar Már
Friðriksson 18, Mario Matasovic 16, Logi
Gunnarsson 11 .
Keflavík - Valur 101-77
Stigahæstir: Michael Craion 16, Ágúst
Orrason 16, Reggie Dupree 15, Mindaugas
Kacinas 14 - Austin Magnus Bracey 12, Aleks
Simeonov 11, Illugi Auðunsson 10, Oddur
Birnir Pétursson 8, Illugi Steingrímsson 8.
Domino’s-deild karla
Okkur leið vel inni
á vellinum og við
náðum að stýra hraða
leiksins frá fyrstu mínútu.
Ásbjörn Friðriksson, leikmaður FH
FH - Valur 27-24
FH: Ásbjörn Friðriksson 7, Arnar Freyr Ár-
sælsson 6, Ágúst Birgisson 5, Bjarni Ófeigur
Valdimarsson 4, Birgir Már Birgisson 3, Einar
Rafn Eiðsson 2.
Valur: Anton Rúnarsson 5, Vignir Stefáns-
son 5, Sveinn Aron Sveinsson 4, Ýmir Örn
Gíslason 4, Róbert Aron Hostert 3, Magnús
ÓlI Magnússon 2, Agnar Smári Jónsson 1.
Fram - Valur 21-24
Fram: Ragnheiður Júlíusdóttir 7, Þórey Rósa
Stefánsdóttir 5, Karen Knútsdóttir 4, Stein-
unn Björnsdóttir 4, Hildur Þorgeirsdóttir 1.
Valur: Lovísa Thompson 9, Díana Dögg
Magnúsdóttir 4, Morgan Marie Þorkels-
dóttir 3, Sandra Erlingsdóttir 3, Íris Ásta
Pétursdóttir 3, Alina Molkova 1, Ragnhildur
Edda Þórðardóttir 1.
Coca-cola bikarinn
Efri
Valur 36
Keflavík 36
Stjarnan 30
KR 30
Neðri
Snæfell 26
Haukar 16
Skallagr. 12
Breiðablik 6
Snæfell - Stjarnan 66-73
Stigahæstar: Kristen Denise McCarthy
34/11 fráköst, Gunnhildur Gunnarsdóttir
9, Berglind Gunnarsdóttir 8, Rebekka Rán
Karlsdóttir 5 - Daniella Victoria Rodriguez
37, Ragnheiður Benónísdóttir 11, Bríet Sif
Hinriksdóttir 10, Auður Íris Ólafsdóttir 6.
KR - Valur 67-98
Stigahæstar: Kiana Johnson 14, Vilma
Kesanen 13, Perla Jóhannsdóttir 6, Jenný
Benediktsdóttir 5, Þóra Birna Ingvarsdóttir
5 - Heather Butler 23, Helena Sverrisdóttir
16, Ásta Júlía Grímsdóttir 10, Dagbjört
Samúelsdóttir 10, Dagbjört Dögg Karls-
dóttir 10.
Skallagr. - Keflavík 70-92
Stigahæstar: Shequila Joseph 24/13
fráköst, Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 14,
Ines Kerin 14, Árnína Lena Rúnarsdóttir
13 - Brittanny Dinkins 35/14 fráköst/13
stoðsendingar, Erna Hákonardóttir 17, Anna
Ingunn Svansdóttir 15, Katla Rún Garðars-
dóttir 8.
Haukar - Breiðablik 70-86
Stigahæstar: Rósa Björk Pétursdóttir 26,
Sigrún Björg Ólafsdóttir 10, Anna Lóa
Óskarsdóttir 8, Þóra Kristín Jónsdóttir
6 - Ivory Crawford 26/12 fráköst, Sóllilja
Bjarnadóttir 19 Sanja Orazovic 18/16 frá-
köst, Þórdís Jóna Kristjánsdóttir 11.
Dominos-deild kvenna
HANDBOLTI Það var kaf laskiptur
dagur á laugardaginn hjá stuðn-
ingsmönnum Vals í handboltanum.
Eftir að hafa séð kvennaliðið yfir-
spila eitt besta lið landsins undan-
farin ár og vinna öruggan sigur á
Fram í bikarúrslitaleiknum var
karla lið félagsins allan tímann
skrefinu á eftir FH í seinni leik
dagsins þegar FH batt enda á 25
ára bið eftir bikarmeistaratitli í
karlaflokki. Þrátt fyrir vonbrigðin
undir lok dags gátu Valsmenn
fagnað fyrsta bikarmeistaratitl-
inum í kvennaf lokki í fimm ár og
þeim sjöunda í sögunni en aðeins
Stjarnan (8) og Fram (15) hafa unnið
titilinn oftar í kvennaflokki.
Virtumst hungraðri
Annan leikinn í röð var það Vals-
vörnin sem skóp sigurinn á laugar-
daginn. Eftir að hafa haldið ÍBV í
tólf mörkum í undanúrslitaleikn-
um á fimmtudaginn stefndi í að
Valur yrði fyrsta liðið til að halda
Fram í undir 20 mörkum í vetur
þegar staðan var 24-16 skömmu
fyrir leikslok en Fram tókst að klóra
í bakkann á lokamínútum og laga
stöðuna þó að úrslitin hafi löngu
verið ráðin.
Valskonur leyfðu Fram aldrei
að ná neinum takt í leiknum og
á 20 mínútna kaf la gerðu þær út
um leikinn. Fram komst yfir á 26.
mínútu í stöðunni 11-10 en á næstu
20 mínútum kom Fram boltanum
aðeins tvisvar framhjá Írisi Björk
Símonardóttur í marki Vals, þar
af einu sinni á vítalínunni. Á sama
tíma náði Valur að koma boltanum
ellefu sinnum í markið og var átta
marka munur staðreynd þegar fjór-
tán mínútur voru til leiksloka. Fram
tókst að laga stöðuna undir lokin en
náði ekki að ógna forskoti Vals.
Lovísa Thompson fór á kostum í
liði Vals í leiknum en hún var með
níu mörk í leiknum ásamt því að
vera öf lug í varnarleiknum. Þetta
var fyrsti titill hennar með Vals-
liðinu.
„Heilt yfir var þetta frábær spila-
mennska. Við mættum áræðnar
til leiks og það sást snemma í hvað
stefndi. Þó að þetta hafi verið jafnt
í smá tíma fannst manni inni á vell-
inum alltaf vera ljóst í hvað stefndi
því við virtumst hungraðri. Okkur
tókst að pirra þær í sóknarleiknum
með því að vera alltaf mættar út
þegar þær sóttu og það gerði Írisi
auðvelt fyrir í markinu,“ segir
Lovísa sem tók af skarið í sóknar-
leiknum.
„Við þurftum að taka skotin fyrir
utan í byrjun og það gekk vel, þá var
ekkert aftur snúið. Það er sagt að
þeir skori sem þori. Það er mikið til
í því,“ segir Lovísa létt.
„Þessi sigur gefur okkur sjálfs-
traust, við vorum búnar að tapa
báðum leikjunum gegn Fram til
þessa á tímabilinu en þetta sýnir
okkur að við getum unnið Fram
sem er mikilvægt upp á framhald-
ið,“ segir Lovísa, aðspurð um hvað
þessi sigur þýði fyrir framhaldið.
Náðum að stýra hraðanum
Síðar um daginn mættust FH og
Valur í úrslitaleiknum karlamegin
þar sem FH fór með öruggan 27-24
sigur af hólmi. Frá fyrstu mínútu
var FH með frumkvæðið og skref-
inu undan þó að Valsliðið hafi
aldrei verið langt undan. Til marks
um það leiddi FH frá fjórðu mínútu
þegar Ásbjörn Friðriksson skoraði
fyrsta mark leiksins til leiksloka
þegar Ásbjörn var aftur á ferðinni
og innsiglaði sigurinn endanlega
eftir að FH tókst að finna lausn við
ofarlegum varnarleik Vals þrátt
fyrir að þeir væru manni færri.
Aftur var það góður kaf li sitt
hvorum megin við hálfleikinn sem
skildi liðin að eftir að staðan var
11-11 rétt fyrir lok fyrri hálf leiks
og sex mínútum eftir að seinni hálf-
leikurinn hófst var FH komið með
fimm marka forskot en Val tókst
aldrei að jafna leikinn eftir það.
„Við náðum að byrja þetta af
krafti, fengum góð stopp í varnar-
leiknum og sóknarleikurinn gekk
vel og það setti svolítið tóninn.
Okkur leið vel inni á vellinum og
við náðum að stýra hraða leiksins
frá fyrstu mínútu,“ segir Ásbjörn
þegar Fréttablaðið ræðir við hann.
„Leikurinn var í okkar höndum
allan tímann. Við þurftum að spila
öf luga vörn, fá markvörsluna í
gang og stýra hraðanum og Birkir í
markinu tók ansi marga stóra bolta
sem skildi liðin að. Gegn jafn góðu
liði og Valur er með er ekki hægt að
loka á allt en okkur gekk vel að tak-
marka það sem þeir vilja gera. Það
er í raun ótrúlegt hvað leikplanið
gekk vel miðað við stuttan undir-
búning,“ segir Ásbjörn um leikinn
á laugardaginn.
Þetta er fyrsti bikarmeistara-
titill hans sem þýðir að hann hefur
unnið alla þá titla sem eru í boði á
Íslandi.
„Þetta var kærkomið eftir von-
brigðin í úrslitum Íslandsmótsins
síðustu ár. Það sveið að hafa tapað
tvö ár í röð en þetta gefur okkur
heilmikið fyrir lokasprettinn. Per-
sónulega er þetta líka stór áfangi, ég
hugsaði það fyrir leikinn að þetta
væri rétta augnablikið til að landa
þessum eftir alla þessa bið hjá FH
eftir bikarmeistaratitlinum.“
kristinnpall@frettabladid.is
Kaflaskiptur dagur hjá Val
Valskonur sýndu allar
sínar bestu hliðar þegar
þær urðu bikarmeist-
arar um helgina eftir
sannfærandi sigur á
Fram. Síðar um daginn
þurfti karlalið Vals að
horfa á eftir bikarmeist-
aratitlinum til FH sem
vann bikarinn í fyrsta
sinn í 25 ár.
Okkur tókst að
pirra þær í sóknar-
leiknum með því að vera
alltaf mættar út þegar þær
sóttu að markinu.
Lovísa Thompson, leikmaður Vals
1 1 . M A R S 2 0 1 9 M Á N U D A G U R10 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
Valskonur og FH-ingar lyfta bikarnum á loft í leikslok eftir verðskuldaða sigra í úrslitum bikarkeppni Coca-Cola um helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
1
1
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:3
2
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
8
7
-E
7
7
C
2
2
8
7
-E
6
4
0
2
2
8
7
-E
5
0
4
2
2
8
7
-E
3
C
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
0
s
_
1
0
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K