Fréttablaðið - 11.03.2019, Side 14
Fólk er kynningarblað sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu
í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu
er einnig hefðbundið ritstjórnarefni.
Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Sólveig Gísladóttir, solveig@frettabladid.is s. 550 5762 | Elín Albertsdóttir, elin@
frettabladid.is, s. 550 5761 | Brynhildur Björnsdóttir, brynhildur@frettabladid.is, s. 550 5765 | Starri Freyr
Jónsson, starri@frettabladid.is, s. 550 5763 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Kristín Þorsteinsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 550 5653,
alls konar verkefni síðastliðin 6-7
ár. Fyrst var það bara notað ef ég
var að pródúsera fyrir aðra en
Úlfur Úlfur en svo hefur ýmislegt
annað dottið inn undanfarin ár.
Ég samdi til dæmis tónlistina fyrir
sjónvarpsþáttaröðina um Stellu
Blómkvist og núna er ég semja
fyrir aðra íslenska þáttaröð sem
verður sýnd síðar á árinu.“
Ný lög bráðlega
Það er ýmis spennandi verkefni
fram undan á næstu mánuðum.
„IamHelgi gaf út nýtt lag í upp-
hafi þessa mánaðar sem heitir
Speeding. Það er annað lagið sem
ég sendi frá mér og fleiri koma út
á næstu mánuðum. Það er einnig
mjög stutt í nýtt lag frá Úlfi Úlfi
og svo er það kvikmyndatón-
listin sem mér finnst voðalega
spennandi þessa dagana. Svo taka
einhver ný verkefni við að þessum
loknum.“
Helgi er fæddur og uppalinn
Sauðkrækingur en hefur verið
búsettur í Reykjavík með smá
hléum síðan 2005. „Ég bý í Hlíð-
unum í Reykjavík og sé fram á að
vera í því fína hverfi í einhvern
tíma. Einnig rek ég lítið hljóðver
úti á Granda sem mér þykir aga-
lega vænt um og eyði miklum
tíma í. Helstu áhugamál mín utan
tónlistar eru að vera úti á landi,
elda steikur og horfa á hryllings-
myndir.“
Hvernig myndir þú lýsa fata-
stílnum þínum?
Hann er frekar einfaldur. Galla-
buxur, bolur og jakki yfir. Timber-
land skór á veturna, strigaskór á
sumrin og einhver góð derhúfa.
Ég spái ekki mikið í því hverju ég
klæðist á meðan fötin eru þægileg
og mér verður ekki of heitt eða of
kalt í þeim.
Áttu þér tískufyrirmynd?
Ég á mér enga sérstaka tísku-
Bolur merktur þýska heavy metal bandinu Running Wild var keyptur fyrir nokkrum árum. „Mér fannst þessi bolur geggjaður og tékkaði á bandinu strax þegar ég kom heim.“ MYNDIR/EYÞÓR
Brúna úlpan er frá Cintamani, hvíti
bolurinn frá Target, gallabuxurnar
úr Primark og skórnir frá Timber-
land. Á kollinum er Pittsburgh
Pirates derhúfa.
fyrirmynd. Körfuboltamaðurinn
Russell Westbrook er þó alltaf í
skemmtilegum fötum. Sá karl sem
hefur mest áhrif á fatasmekkinn
minn er líklega Arnar Freyr, bróðir
minn úr Úlfi Úlfi. Hann er mjög oft
í kúl fötum.
Hvernig hefur tískuáhuginn
þróast?
Gallabuxurnar mínar verða allt-
af aðeins þrengri eftir því sem ég
eldist og stundum fer ég í eitthvað
sem er með litum í. Annars hefur
hann ekki þróast mikið hjá mér
eftir að ég hætti að vera skoppari á
Sauðárkróki fyrir fimmtán árum.
Hvernig fylgist þú helst með
tískunni?
Ég fylgist ekki sérstaklega mikið
með tísku en hef samt mjög gaman
af því hvað ég sé mikið af alls kyns
fólki vera að hanna föt á Insta-
gram. Einn daginn mun ég þora
að kaupa eitthvað „tjúll“ af þeim
öllum.
Hvar kaupir þú helst fötin þín?
Eins og margir Íslendingar geri
ég venjulega stórkaup í útlöndum.
Unnusta mín er f lugfreyja svo
ég reyni að skreppa reglulega
með í ferðir til Bandaríkjanna og
versla þar. Ég fylgist mikið með
bandarískum íþróttum, til dæmis
NBA- og NFL-deildunum, og finnst
gaman að kaupa föt tengd liðunum
sem ég held með.
Hvaða litir eru í uppáhaldi?
Oftast geng ég í dökkum og
frekar einföldum fötum. Suma
daga er ég extra hress og þá er
gaman að vera í litríkum fatnaði.
Mér finnst jarðlitir alltaf fallegir,
til dæmis brúnn og grænn.
Áttu minningar um gömul tísku-
slys?
Ég á nokkrar hræðilegar minn-
ingar. Flestar eiga þær það sam-
eiginlegt að ég var að reyna að vera
einhver týpa sem ég var ekki. Tíska
getur verið hættuleg að því leyti að
fólki finnst það þurfa að klæðast
sérstökum fötum til að vera nett.
Það var ekki fyrr en ég var kominn
hátt í þrítugt að ég áttaði mig á því
að það er maðurinn sem skapar
fötin en ekki öfugt.
Hvaða f lík hefur þú átt lengst og
notar enn?
Ég á flíspeysu heima hjá for-
eldrum mínum á Sauðárkróki
sem ég gríp með mér þegar ég fer
í bústaðinn. Það eru ábyggilega
fimmtán ár síðan ég eignaðist
hana.
Áttu þér uppáhaldsverslanir?
Mér finnst mjög gaman að kíkja
í Spúútnik í miðbænum. Svo er
Adidas-umboðið virkilega kósí
staður. Ég á engar uppáhaldsversl-
anir erlendis en finnst gaman að
búðum sem selja notuð föt.
Áttu þér uppáhaldsf líkur?
Svarta rúllukragapeysan sem
ég fékk í afmælisgjöf er í miklu
uppáhaldi þessa dagana. Einnig á
ég eldgamlan jakka, sem ég held
mikið upp á, sem ég keypti á úti-
markaði í Póllandi fyrir örfáum
árum. Uppáhaldsflíkin mín er þó
líklega jakkinn sem ég klæddist í
Brennum allt myndbandinu. Pabbi
hans Magga Leifs leikstjóra gaf mér
hann um daginn og mér þykir aga-
lega vænt um hann.
Bestu og verstu fatakaupin?
Mér detta engin bestu fatakaup
í hug en einstaka sinnum hef ég
keypt eitthvað sem er aðeins of
þröngt og logið því að sjálfum mér
að ég grenni mig bara í þetta. Ég á
sérstaka hillu í fataskápnum með
aðeins of litlum fötum.
Hvað einkennir klæðnað ungra
karla í dag?
Þeir eru flestir bara frekar nettir
finnst mér. Ungir karlmenn eyða
töluvert meiri peningum í föt en
áður fyrr en ef þeim líður vel og eru
ekki að taka smálán fyrir þeim þá
er það bara allt gott og blessað.
Eyðir þú miklu í föt miðað við
jafnaldra þína?
Nei, ég eyði ekki miklum
peningum í föt. Mér finnst gaman
að eiga eitthvað flott til að vera í en
föt skipta mig bara ekki það miklu
máli.
Notar þú fylgihluti?
Ég er alltaf með úr á mér. Mig
langar að kaupa mér keðju um
hálsinn til að vera með þegar ég er í
rúllukragapeysu.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 1 . M A R S 2 0 1 9 M Á N U DAG U R
1
1
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:3
2
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
8
7
-F
6
4
C
2
2
8
7
-F
5
1
0
2
2
8
7
-F
3
D
4
2
2
8
7
-F
2
9
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
0
s
_
1
0
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K