Fréttablaðið - 11.03.2019, Page 33

Fréttablaðið - 11.03.2019, Page 33
Tengsl og tengslaleysi mannsins Í Listasafninu á Akureyri stendur yfir sýning á verkum Kristínar Gunnlaugsdóttur. Sýnir stór, krefjandi og hlaðin verk sem liggja þétt saman. Sýnir meðal annars í Genf og Vínarborg seinna á árinu. Capernaum (eng sub) ....................... 17:30 Arctic (ice sub)........................................ 17:50 Transit (german & french w/ice sub) 18:00 *National Theatre Live - Breska Þjóðleikhúsið* *Julius Caesar (english-no sub) 20:00* Capernaum (eng sub) .......................19:50 Brakland (danish w/eng sub) ....... 20:00 Free Solo (english - no sub) ......... 22:00 Heavy Trip // Hevi Reissu (eng sub) 22:20 HAPPY HOUR Á BARNUM 17-19 NÁNAR Á BIOPARADIS.IS Kristín Gunnlaugs­dóttir sýnir verk sín í Listasafninu á Akur­eyri ásamt Margréti Jónsdóttur leirlista­konu, en yfirskrift sý ningarinnar er SuperBlack . Kristín sýnir þar 15 málverk. „Sýningin er framhald á sýn­ ingu okkar Margrétar í Nesstofu á Seltjarnarnesi árið 2015 en þar unnum við með svört verk sem tengdust sögu hússins sem er eitt elsta steinhús á landinu, byggt 1770. Út frá þeirri hugmynd þróað­ ist sýningin SuperBlack, þar sem við unnum báðar út frá svörtum lit og margvíslegri merkingu hans. Liturinn SuperBlack eða vanta­ black er vísindaleg uppfinning og sýnir algert tóm, augað greinir ekki litbrigði. Sýningin fór til Kaupmannahafnar og var sýnd á Norðurbryggju, þaðan til Þórs­ hafnar, Færeyjum, þar sem hún var í Norðurlandahúsinu og lýkur nú ferðalagi sínu á Listasafninu á Akureyri. Margrét fæst í leirinnsetningu sinni við samband manns og nátt­ úru og veltir fyrir sér spurningum um hvort manneskjan umgangist líffæri sín á sama hátt og náttúr­ una. Ég fjalla um samband manns­ ins við sjálfan sig og umhverfi sitt. Verkin fjalla um þessi tengsl og tengslaleysi mannsins, þrá eftir einhverju betra og hvernig sagan endurtekur sig. Þar vísa ég meðal annars til barokktímabilsins, upp­ st il l inga por t­ rettmynda þess tíma og hversu lítið það sagði um raunverulegt líf og líðan fólks. Ég not a l í k a mikið glimmer sem er skemmti­ legt efni en við­ kvæmt í mynd­ list. En fyrir mér fellur það vel að lífsháskaverkum. Í f lestum verkum mínum gegnum t íði n a he f ég eina manneskju, gjarnan konu og þá miðjusett a. Maðurinn er allt­ af að fást við ein­ semd sem virðist aukast.“ Þrátt fyrir alla tæk ni og þrát t fyrir að hann sé sítengdur, eða kannski vegna þess? „Vegna þess. Ég held að honum hætti til að loka sig af og f lótta­ leiðirnar eru orðnar f leiri og auð­ veldari.“ Og svarti f löturinn býður upp á að þú sýnir þetta í verkum þínum. „ Algjörlega. Hann getur átt við tóm og nýtt upphaf. Hann getur endurspeglað margt í sálar­ líf i fólks, allt frá hinu óttalega til skjóls. Hann er líka heillandi eins og myrkrið í móðurkviði eða næturhiminn. En það er líka rokk og ról í þessum verkum, glimmer og spenna.“ Ekkert hvítt kurteisisbil Verkin eru flest um 2x2 metrar. „Ég ákvað að koma þeim öllum inn í þetta ferkantaða rými, á tvo veggi fyrir utan eitt verk. Þau eru hvert og eitt talsvert krefjandi og hlaðin og mér fannst fara þeim vel að liggja svona þétt saman og mynda tvo massa á sitt hvorum vegg. Það var gaman að sleppa hvíta kurteisis­ bilinu milli verkanna og láta þau öll kalla í einu. Hafa nógu mikið af öllu. Persónulega finnst mér þessi uppsetning takast mjög vel. Það er best að setja saman sýningu þegar rýmið er hannað fyrir myndlist og ekkert sem truf lar. Lofthæðin er góð og reyndar eru öll rýmin hér í Listasafninu á Akureyri spenn­ andi þótt þau séu ólík. Þetta er ein­ staklega fallegt og vel búið safn og mjög gefandi að sýna og vinna hér. Eitt afar mikilvægt er að Listasafn Akureyrar og Listasafn Reykjavík­ ur eru fyrstu opinberu listasöfnin sem borga listamönnum fyrir að vera með sýningu. Það hefur verið hefð fyrir því að allir sem vinna í kringum listamanninn séu á sínum taxta en listamaðurinn sem þrátt fyrir allt allt hverfist um, á að láta „Ég held það sé alltaf af hinu góða þegar maður kemur hreint fram og segir hlutina eins heiðarlega og manni er unnt.“ FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI „Mér fannst fara þeim vel að liggja svona þétt saman,“ segir Kristín. sér nægja heiðurinn og lifa af honum. Þótt myndlist sé til sölu, hentar hún misvel í hýbýli fólks eða stofnana. Listamenn reikna ekki með því að selja.“ Sköpunarverkið er í lagi Talað berst að þróuninni í list Kristínar. Hún hefur verið þekkt fyrir gerð helgimynda og notar tækni miðalda enn, en á nýjan hátt. Hún sýnir blaðamanni verk unnið með blaðgulli, af konu sem er búin að ganga í gegnum krabbameins­ meðferð og hefur misst brjóst. „Hér er mannkynið í sársaukanum, þetta er í rauninni Kristsmynd nútímans,“ segir hún. Saumuð veggteppi og blaðgulls­ verk af kvensköpum vöktu athygli og ekki síst vegna breytinganna sem list Kristínar tók um 2008. „Einhverjir hneyksluðust en ég fékk eiginlega bara jákvæð við­ brögð. Það var eins og margir upp­ lifðu létti. Ég held það sé alltaf af hinu góða þegar maður kemur hreint fram og segir hlutina eins heiðarlega og manni er unnt. Mér var engin reiði í hug með píku­ myndunum. Sköpunarverkið er í lagi, kynhvöt er í lagi, við erum í lagi. Hvernig við svo förum með þessi mál er allt annað. En verk af sköpum geta orðið trúarleg upp­ lifun vegna þess að sköpunar­ verkið er í lagi, ekki satt? Allt er gott. Í kapellu Grafarvogskirkju er einmitt búið að hengja upp stórt skapa verk sem ég nefni „Móðirin“ og er mikilvægt innlegg í þessa umræðu. Ég er afar ánægð og sátt við framtak presta og sóknar­ nefndar þar. Í myndlist minni er þráður sem er einnig stór hluti af sjálfri mér og snýr að undirvitund, eðlishvöt eins og trú og kynhvöt, dauða og ekki síst tabúum. Í SuperBlack er umfangsefnið dauðinn og þráin. Og tabúin liggja mjög nálægt í okkar daglega líf i. Til dæmis í okkar æskudýrkandi samfélagi er eins og það sé vandræðalegt að eldast. Og er guð orðinn tabú?“ Það er nóg fram undan hjá Krist­ ínu. Í byrjun júní verður opnuð sýning í Galleríi Kaktus á Akureyri, viku síðar í Galleríi Kompu á Siglu­ firði og þann 17. júní í Menningar­ miðstöð Fljótsdalshéraðs, Egils­ stöðum. Í september er sýning í Genf og í Vínarborg í október. „Það er mikilvægt að vera á staðnum og fylgja sýningum eftir, ef það er hægt. Umræðan um verkin er mikilvæg og maður hefur gott af henni. En best er þegar verkið lifir af sem slíkt og gefur af sér í þögninni,“ segir listakonan. Í MYNDLIST MINNI ER ÞRÁÐUR SEM ER EINNIG STÓR HLUTI AF SJÁLFRI MÉR OG SNÝR AÐ UNDIRVITUND, EÐLISHVÖT EINS OG TRÚ OG KYNHVÖT, DAUÐA OG EKKI SÍST TABÚUM. Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 17M Á N U D A G U R 1 1 . M A R S 2 0 1 9 1 1 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :3 2 F B 0 4 0 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 8 7 -F B 3 C 2 2 8 7 -F A 0 0 2 2 8 7 -F 8 C 4 2 2 8 7 -F 7 8 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 0 s _ 1 0 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.