Fréttablaðið - 11.03.2019, Side 36
Herranótt, leikfélag Menntaskólans í Reykjavík, frum-sýnir söngleikinn Rent eftir Jonathan Larson í Gamla bíói
þann 15. mars. Síðustu vikur hafa
farið fram strangar æfingar þar sem
ungmennin hafa lagt nótt við dag í
að setja upp sem metnaðarfyllsta
uppfærslu verksins sem er lauslega
byggt á óperunni La Bohéme eftir
Puccini.
„Ég hef nú alltaf dýrkað þennan
söngleik og hann hefur alltaf verið
í miklu uppáhaldi hjá mér,“ segir
Guðmundur Felixson sem nú
stjórnar sinni fjórðu menntaskóla-
uppfærslu en hann útskrifaðist sem
sviðslistahöfundur árið 2015. „Ég sá
söngleikinn í Loftkastalanum árið
1999, þá aðeins níu ára gamall, og
hef haldið upp á hann síðan. Ég held
að stjórn Herranætur hafi eitthvað
haft veður af þessum áhuga mínum
þegar þau fóru þess á leit við mig að
taka að mér leikstjórnina.“
Sögusvið verksins er tíundi ára-
tugurinn í New York og umfjöllun-
arefnið fátækir listamenn, frjálsar
ástir, samkynhneigð, transfólk og
HIV sem þá var á hápunkti umræð-
unnar. Því hefur kannski ekki legið
beinast við að níu ára drengur
tengdi svo sterkt við sýninguna,
eða hreinlega sæi hana yfir höfuð
en ástæða þess að Guðmundur
fékk að sjá uppfærsluna var sú að
faðir hans Felix Bergsson var einn
aðalleikaranna. „Pabbi var að leika
í sýningunni, við bjuggum rétt hjá
Loftkastalanum og við einfaldlega
röltum yfir á sýningar,“ útskýrir
Guðmundur.
„Verkið fjallar sannarlega um
gríðarlega stór og f lókin málefni;
eyðnismitaða eiturlyfjaháða lista-
menn í New York og þó ég hafi
ekki greint þennan alvarlega tón
þá kveikti tónlistin í mér. Ég átti
geisladiskinn og hlustaði mikið á
hann í gegnum unglingsárin. Svo
þegar kvikmynd eftir söngleiknum
kom út árið 2005 tvíef ldist áhugi
minn á verkinu. Þó maður hafi ekki
skilið söguna á sínum tíma þá er
leikhús, ef vel gert, þannig að maður
nær helstu tilfinningum.“
Guðmundur segir Rent stærstu
sýningu sem hann hafi tekið að sér.
„Það er sungið nánast alla sýning-
una svo þátttakendur þurfa að vera
brjálæðislega miklir söngvarar. Það
er mikill áhugi á Herranótt í MR
eins og iðulega svo við völdum fólk
í sýninguna í gegnum spunanám-
skeið sem ég setti upp. Svo voru
ítarlegar söngprufur, enda skiptir
söngurinn mestu í þessu verkefni.
Danshöfundurinn var svo með
dansprufur og við tókum inn sér-
stakan danshóp.“
Guðmundur segir 25 manns fara
með hlutverk í sýningunni og að
annar eins fjöldi komi að henni á
bak við tjöldin. „Það er frábært að
vinna með þessum krökkum sem
gera þetta af áhuganum einum
saman og leggja mikið á sig til að
útkoman sé sem best.“
Umræðan á enn erindi í dag
En hvaða erindi á verk um HIV-
smitaða listamenn í New York við
íslenska menntskælinga árið 2019?
„Ég hef spurt mig að þessu lengi og
ég var að vissu leyti smeykur við
að setja verkið upp. Það er vissu-
lega barn síns tíma, tíma þegar
alnæmisfaraldurinn stendur sem
hæst en f lest þeirra sem nú koma
að sýningunni voru ekki einu sinni
fædd þá. En í fyrsta lagi er þetta ást-
arsaga og í öðru lagi er umfjöllunar-
efnið valið um að fylgja hugsjónum
þínum eða taka þátt í lífsgæðakapp-
hlaupinu,“ útskýrir Guðmundur en
hvort tveggja er auðvitað tímalaust
efni. „Umræðan um HIV og alnæmi
á svo enn erindi í dag en tugir nýrra
smita koma upp hér á landi ár hvert.
Svo er mikilvægt að gera ekki lítið
úr sögunni og því sem meðlimir í
LBGTQ-samfélaginu þurftu að þola
á þessum tíma. Sú upprifjun á fullt
erindi við menntaskólanemendur
dagsins í dag.“
Rent verður frumsýnt 15. mars í
Gamla bíói og hefst miðasala í dag
á midi.is en fyrirætlaðar eru átta
sýningar alls. bjork@frettabladid.is
Ást á tímum alnæmis
Leikfélag Menntaskólans í Reykjavík ræðst ekki á garðinn þar sem
hann er lægstur með uppfærslu ársins, Rent, en það er Guðmund-
ur Felixson sem leikstýrir þessu stærsta verkefni sínu hingað til.
Svo er mikilvægt að
gera ekki lítið úr
sögunni og því sem með-
limir í LBGTQ-samfélaginu
þurftu að þola á þessum
tíma. Sú upprifjun á fullt
erindi við menntaskólanem-
endur dagsins í dag.
Guðmundur Felixson sá Rent fyrst níu ára gamall og heillaðist. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
25 nemendur koma fram í sýningunni og annar eins fjöldi starfar bak við tjöldin.
1 1 . M A R S 2 0 1 9 M Á N U D A G U R20 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
LÍFIÐ
Meðlimir Herra-
nætur hafa lagt
nótt við dag til
að sýningin verði
sem glæsilegust.
1
1
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:3
2
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
8
7
-F
B
3
C
2
2
8
7
-F
A
0
0
2
2
8
7
-F
8
C
4
2
2
8
7
-F
7
8
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
0
s
_
1
0
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K