Fréttablaðið - 04.04.2019, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 04.04.2019, Blaðsíða 8
B R E TL A N D Þing menn Íha ld s- f lokksins breska lýstu margir yfir óánægju með það í gær að Theresa May, forsætisráðherra og leiðtogi f lokksins, ætti nú í viðræðum við Jeremy Corbyn, leiðtoga Verka- mannaf lokksins, til þess að leita að sameiginlegri lausn á þeirri pattstöðu sem komin er upp á þingi vegna Brexit-málsins. Breska þingið hefur í þrígang hafnað útgöngusamningnum sem May gerði við ESB og hefur þing- mönnum aukinheldur mistekist að ná saman um aðra nálgun í málinu. Leiðin áfram er því afar óskýr og ekki nema átta dagar í dag þar til aukafrestur Breta til þess að setja fram áætlun rennur út. Takist það ekki fyrir 12. apríl, eða ef ESB fellst ekki á nýja beiðni May um frekari frest, munu Bretar þurfa að ganga út úr sambandinu án samnings. Lítill vilji er fyrir slíku á þinginu. Að því er kom fram hjá BBC eru harðir Brexit-sinnar innan Íhalds- f lokksins allt annað en sáttir við viðræður leiðtoganna tveggja. Boris Johnson, sem sagði af sér sem utan- ríkisráðherra vegna óánægju með stefnu May á síðasta ári, sakaði May til að mynda um að afhenda Verka- mannaflokknum stjórntaumana í Brexit-málinu. Þá sagði Iain Duncan Smith, fyrrverandi leiðtogi f lokksins, að viðræðurnar væru afleit hugmynd. Kallaði Corbyn í þokkabót „marx- ista sem hefur það eitt að markmiði að valda ríkinu tjóni“. Chris Heaton-Harris, ráðherra útgöngumála, sagði af sér í gær, meðal annars vegna viðræðna May og Corbyns. Í yfirlýsingu sinni sagði hann að sem ráðherra væri hann ábyrgur fyrir undirbúningi fyrir samningslausa útgöngu ef af henni verður. Hins vegar hafi May verið staðráðin í því að komast hjá samningslausri útgöngu og því væri starf Heaton-Harris, að hans sögn, tilgangslaust. Nigel Adams sagði svo af sér sem ráðherra velskra málefna vegna viðræðnanna. Sagði að May væri með þeim að auka hættuna á því að stjórnvöldum mistakist að verða við kröfunni sem Bretar settu fram í þjóðaratkvæðagreiðslunni um útgönguna árið 2016. Forsætisráðherrann mætti á þingið í gær og svaraði spurningum, líkt og ráðherra gerir alla jafna á miðvikudögum. Þar sagðist hún staðráðin í því að verða við Brexit- kröfunni en minnti á að þingmenn hefðu hafnað hverri einustu tillögu sem lögð hefur verið fyrir þá hingað til. May mun einnig hitta Nicola Sturgeon, fyrsta ráðherra skosku heimastjórnarinnar, sem hefur krafist langrar frestunar og þjóðar- atkvæðagreiðslu um samning. Óvíst er hvort viðræður May og Corbyns beri árangur enda hefur Corbyn ítrekað sett fram kröfur sem May vill ekki verða við. Til að mynda um nýjar þingkosningar eða þjóðaratkvæðagreiðslu um útgöngusamninginn. May sagði í ávarpi á þriðjudag að hún myndi ekki leggja samning sinn til hliðar. Hún væri hins vegar tilbúin til þess að gera breytingar á hinni pólitísku yfirlýsingu sem fylgja þarf samn- ingnum. Pierre Moscovici, efnahagsmála- stjóri ESB, sagði í gær að sambandið myndi tafarlaust innleiða tollvörslu og tolla gagnvart Bretum ef af samn- ingslausri útgöngu verður. Um það væru öll aðildarríkin sammála. thorgnyr@frettabladid.is Sjá rautt vegna samstarfs við Corbyn Harðir Brexit-sinnar innan breska Íhaldsflokksins eru foxillir vegna viðræðna leiðtogans við leiðtoga Verkamannaflokksins. Þau reyna nú að leysa úr pattstöðunni sem myndast hefur á þingi í Brexit-málinu. Tveir ráðherrar sögðu af sér vegna viðræðnanna. May ræddi við Corbyn í gær um Brexit-málið en viðræðurnar eru Brexit-sinnum ekki að skapi. NORDICPHOTOS/AFP 2 ráðherrar sögðu af sér í gær vegna viðræðna May og Corbyns. 4 . A P R Í L 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 4 -0 4 -2 0 1 9 0 9 :3 7 F B 0 6 4 s _ P 0 5 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 B E -2 D 9 C 2 2 B E -2 C 6 0 2 2 B E -2 B 2 4 2 2 B E -2 9 E 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 0 6 4 s _ 3 _ 4 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.