Fréttablaðið - 04.04.2019, Side 21
Þorvaldur
Gylfason
Í DAG
Stanley, Falklandseyjum – Suður-Ameríku hefur að mörgu leyti vegnað mun síður en Norður-
Ameríku í tímans rás. Margir áttu
von á því um 1930 að Argentína sem
var þá eitt ríkasta land heims yrði að
stórveldi. Svo fór þó ekki nema í fót-
bolta og tangó. Hvers vegna?
Einræði og verðbólga
haldast í hendur
Ein áleitin skýring er að Suður-
Ameríka byggðist aðallega frá
Suður-Evrópu og Norður-Ameríka
frá Norður-Evrópu. Þar eð Norður-
Evrópu hefur á heildina litið vegnað
betur en Suður-Evrópu var þess að
vænta að svipuð þróun ætti sér stað
í Ameríku sem og varð. Munurinn
er m.a. sá að í Suður-Evrópu voru
einræðisstjórnir sums staðar við
völd fram til 1974-1976 (Grikkland,
Portúgal, Spánn) og agaleysi ein-
kenndi efnahagsmál. Vandræði ESB
síðustu ár hafa því einkum stafað
af Suður-Evrópulöndum. Þau voru
tekin inn í ESB sumpart til að jafna
þennan mun og treysta lýðræðið.
Það tókst að hluta.
Mikil verðbólga hefur fylgt Suður-
Ameríkulöndum eins og skuggi en
ekki Norður-Ameríku. Löndin sex í
sunnanverðri Suður-Ameríku (Arg-
entína, Brasilía, Paragvæ, Perú, Síle,
Úrúgvæ) hafa öll verið óskoruð lýð-
ræðisríki frá aldamótunum 2000,
en 40 árin þar á undan, 1960-2000,
bjuggu þau öll við einræði annað
veifið, yfirleitt herræði, stundum
langtímum saman. Herinn var
ónýtur hagstjórnandi. Verðbólgan
1961-2017 var að meðaltali 12% á
ári í Paragvæ, 40% í Úrúgvæ, 48% í
Síle, 171% í Argentínu, 195% í Perú
og 220% í Brasilíu. Hún mælist nú
alls staðar í lágum einsstafstölum
nema í Argentínu þar sem hún er nú
um 25%. Lýðræði og lítil verðbólga
haldast í hendur.
Viðskipti efla frið
Upphaflegt höfuðmarkmið ESB var
að nota frjáls viðskipti til að treysta
friðinn milli Frakklands og Þýzka-
lands eftir heimsstyrjöldina síðari.
Það hefur tekizt vel. Suður-Ameríka
hefur ekki fylgt þessu fordæmi. Þar
geisaði Kyrrahafsstríðið sem svo er
nefnt 1879-1884 og færði Síle stór
landsvæði sem áður tilheyrðu Perú
og Bólivíu og sviptu Bólivíu aðgangi
að sjó. Enn hefur ekki gróið um heilt
milli landanna þar eð þeim hefur
láðst að fara að dæmi ESB-land-
anna. Argentína, Brasilía, Paragvæ
og Úrúgvæ stofnuðu með sér tolla-
bandalag (Mercosur) 1991 til að örva
viðskipti landanna en Bólivía, Perú
og Síle gerðust aðeins aukaaðilar að
bandalaginu. Síle gerði fríverzlunar-
samning við Bandaríkin 2003.
Þegar öllu er á botninn hvolft eru
viðskipti meðal Suður-Ameríku-
landa innbyrðis og út á við miklu
minni en þau gætu verið og velferð
almennings er rýrari eftir því. Sama
á við um Afríku, en þar eru þó uppi
áætlanir um að Afríkusambandið
tryggi smám saman fríverzlun innan
álfunnar og sameinist um eina mynt
sem á að heita afró eins og klipp-
ingin. Lítil viðskipti auka hættuna á
ófriði. Litlu munaði fyrir nokkrum
árum að Argentína og Síle gripu til
vopna í landamæradeilu í Patagóníu
syðst í álfunni.
Falklandseyjastríðið
Herforingjastjórnin í Argentínu
1976-1983 er sígilt dæmi um freist-
ingu einræðisstjórna til að grípa
til vopna. Herforingjarnir höfðu
Misþroski
mulið undir landeigendur og keyrt
efnahagslífið í kaf, þeir kunnu ekki
annað. Til að dreifa athyglinni frá
óstjórninni og örva þjóðernissinna
réðust þeir með hervaldi á Falk-
landseyjar úti fyrir ströndum Arg-
entínu. Þetta var 1982. Á eyjunum
bjuggu þá 1.800 manns og 400.000
rollur. Eyjarnar höfðu tilheyrt Bret-
landi frá 1833 en Argentína hafði gert
tilkall til þeirra og gerir enn. Brezka
stjórnin brást við innrásinni með
því að senda herskip á vettvang og
sigraði her Argentínu með miklu
mannfalli (um 900 manns). Herfor-
ingjarnir hrökkluðust frá völdum
og fóru sumir í fangelsi. Síðan hefur
íbúum eyjanna fjölgað verulega og
eru þeir nú 3.200. Landið býr við
heimastjórn en Englandsdrottning
skipar landsstjórann. Landið býr við
eigin stjórnarskrá frá 2009 þar sem
ákvæði Alþjóðasamnings um borg-
araleg og stjórnmálaleg réttindi eru
tekin upp orðrétt m.a. til að tryggja
yfirráð íbúanna yfir auðlindum
sínum. Bretar sjá um landvarnir.
Falklandseyjum vegnar vel. Kaup-
máttur tekna á mann er talinn vera
um fimm sinnum meiri en í Argent-
ínu. Fiskveiðar eru hryggjarstykkið
í efnahagslífi eyjanna og nema
röskum helmingi landsframleiðsl-
unnar. Stjórnvöld selja erlendum
og innlendum útgerðum veiðirétt
við eyjarnar og afla þannig fjár til
að halda úti góðri almannaþjónustu
með lítilli skattheimtu. Slíkri skipan
hafa veiðigjaldsmenn á Íslandi mælt
með í bráðum 50 ár. Ferðaútvegur
er næststærsta atvinnugreinin. Um
60.000 ferðamenn heimsækja eyj-
arnar sjóleiðis á hverju ári auk þeirra
1.600 sem koma fljúgandi. Landbún-
aður skiptir íbúana einnig máli með
allar þessar rollur en þeim finnst fjöl-
breytnin ekki nóg. Þeir eru að leita
að olíu.
VIÐ BREYTUM
VIÐ FLYTJUM
*Afsláttur gildir ekki af öðrum tilboðsvörum.
20% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM VÖRUM
Laugavegi 178
Allar nánari upplýsingar í síma 568 9955
VIÐ BREYTUM, VIÐ FLYTJUM
VIÐ LOKUM VERSLUNINNI
Á LAUGAVEGI 178, 17. APRÍL KL.18:00.
MATAR- OG KAFFISTELL, GLÖS, IITTALA,
RÚMFÖT, SPEGLAR OG FLEIRA.
20% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM VÖRUM
SEND
UM
ÚT Á
LAND
*
*
OPNUNARTÍMI
MÁN – FÖS KL.11:00 – 18:00
LAUGARDAGA KL.11:00 – 16:00
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 21F I M M T U D A G U R 4 . A P R Í L 2 0 1 9
0
4
-0
4
-2
0
1
9
0
9
:3
7
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
B
E
-1
E
C
C
2
2
B
E
-1
D
9
0
2
2
B
E
-1
C
5
4
2
2
B
E
-1
B
1
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
6
4
s
_
3
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K