Fréttablaðið - 04.04.2019, Page 24

Fréttablaðið - 04.04.2019, Page 24
ÍBV - Haukar 27-27 Markahæstir: Kristján Örn Kristjánsson 7, Fannar Þór Friðgeirsson 7, Hákon Daði Styrmisson 6, Dagur Arnarson 2, Sigur- bergur Sveinsson 2 - Adam Haukur Baumruk 8, Orri Freyr Þorkelsson 6, Atli Már Báruson 4, Daníel Ingason 4, Heimir Óli Heimisson 2, Brynjólfur Snær Brynjólfsson 2. . Valur - KA 30-25 Markahæstir: Róbert Aron Hostert 9, Anton Rúnarsson 7, Stiven Tobar Valencia 3, Vignir Stefánsson 3, Orri Freyr Gíslason 2, Magnús Óli Magnússon 2, Ásgeir Snær Vignisson 2 - Tarik Kasumovic 9, Áki Egilsnes 6, Jón Heiðar Sigurðsson 2, Dagur Gautason 2, Andri Snær Stefánsson 2, Allan Norðberg 2 . Selfoss - Grótta 29-20 Markahæstir: Hergeir Grímsson 6, Haukur Þrastarson 5, Elvar Örn Jónsson 5, Nökkvi Dan Elliðason 4, Atli Ævar Ingólfsson 3 - Viktor Orri Þorsteinsson 4, Jóhann Reynir Gunnlaugsson 4, Brynjar Jökull Guðmunds- son 2, Árni Benedikt Árnason 2, Arnar Jón Agnarsson 2. FH - Akureyri 29-20 Markahæstir: Bjarni Ófeigur Valdimars- son 6, Ásbjörn Friðriksson 5, Birgir Már Birgisson 4, Ágúst Birgisson 3, Arnar Freyr Ársælsson 3, Leonharð Harðarson 3, Einar Rafn Eiðsson 2 - Hafþór Vignisson 6, Pat- rekur Stefánsson 5, Ihor Kopyshynskyi 4, Gunnar Valdimar Johnsen 3 . ÍR - Stjarnan 25-25 Markahæstir: Sturla Ásgeirsson 6, Kristján Orri Jóhannsson 6, Bergvin Þór Gíslason 4, Björgvin Þór Hólmgeirsson 4, Þrándur Gíslason Roth 3 - Birgir Steinn Jónsson 7, Aron Dagur Pálsson 5, Leó Snær Pétursson 4, Garðar Sigurjónsson 4, Andri Már Rúnars- son 3, Andri Hjartar Grétarsson 2. Afturelding - Fram 29-26 Markahæstir: Finnur Ingi Stefánsson 10, Elvar Ásgeirsson 6, Júlíus Þórir Stefánsson 3, Emils Kurzimniesk 2, Einar Ingi Hrafnsson 2, Árni Bragi Eyjólfsson 2 - Þorsteinn Gauti Hjálmarsson 9, Þorgrímur Smári Ólafsson 5, Andri Þór Helgason 5, Valdimar Sigurðsson 2, Aron Gauti Óskarsson 2. Nýjast Olísdeild karla Man. City - Cardiff City 2-0 1-0 Kevin de Bruyne (6.), 2-0 Leroy Sane (44.). Tottenham - C. Palace 2-0 1-0 Son Heung-min (55.), 2-0 Christian Eriksen (81.). Chelsea - Brighton 3-0 1-0 Olivier Giroud (38.)., 2-0 Eden Hazard (60.), 3-0 Ruben Loftus-Cheek (64.) Enska úrvalsdeildin Staðan í deildinni: Efri Haukar 34 Selfoss 32 Valur 31 FH 27 ÍBV 24 Afturelding 21 Neðri Stjarnan 18 ÍR 17 KA 15 Fram 13 Akureyri 12 Grótta 8 Valur - KR 70-61 Valur: Heather Butler 26, Helena Sverris- dóttir 17/16 fráköst, Simona Podesvova 8/17 fráköst, Guðbjörg Sverrisdóttir 6, Bergþóra Holton Tómasdóttir 6, Ásta Júlía Grímsdóttir 4, Hallveig Jónsdóttir 3.. KR: Orla O’Reilly 27/11 fráköst, Vilma Kesanen 18, Kiana Johnson 9/13 fráköst, Unnur Tara Jónsdóttir 4, Ástrós Lena Ægis- dóttir 3. Valur leiðir einvígi liðanna 1-0. Vinna þarf þrjá leiki til að komast í úrslitaeinvígið sjálft. HANDBOLTI Dregið verður í riðla fyrir undankeppni Evrópumótsins 2020 í dag í Kaupmannahöfn. Þá kemur í ljós hvaða lið verða með Íslandi í riðli þegar Ísland gerir atlögu að því að komast á Evrópu- mótið í þriðja sinn. Mótið sem fer fram í desember á næsta ári verður haldið í Noregi og Danmörku eftir að EHF samþykkti árið 2017 að nágrannaþjóðirnar héldu mótið saman. Fyrir vikið eru Danmörk, Noregur og Frakkland, ríkjandi heimsmeistarar, búin að tryggja sér þátttökurétt á mótinu og eru þrettán sæti í boði fyrir undan- keppnina sem hefst síðar á þessu ári. Íslenska kvennalandsliðið hefur tvívegis komist í lokakeppni Evr- ópumótsins en hefur ekki komist á síðustu þrjú mót. Íslenska liðið þreytti frumraun sína á stórmóti á Evrópumótinu árið 2010 sem fór einmitt fram í Danmörku og Nor- egi. Ísland lenti í fimmtánda sæti á því móti líkt og tveimur árum síðar þegar mótið fór fram í Serbíu. Það var síðasta stórmótið sem íslenska kvennalandsliðið komst á. Kvennalandsliðið er þessa dag- ana að undirbúa sig fyrir leiki gegn Spánverjum í umspili fyrir Heims- meistaramótið í handbolta sem fer fram í Japan í lok þessa árs. Ísland mætir Spáni í tveimur leikjum á heimavelli 31. maí og á Spáni viku síðar þar sem sigurvegarinn tryggir sér þátttökurétt á HM. – kpt Dregið í undankeppni EM 2020 í dag Stefna kvennalandsliðsins er að festa sig í sessi á stórmótum næstu árin. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Kvennalandsliðið komst á þrjú stórmót í röð á ár- unum 2010 til ársins 2012. KÖRFUBOLTI Eftir stutta hvíld er komið að næsta leik í úrslitakeppni Domino’s-deildar karla í kvöld þegar ríkjandi bikar- og deildar- meistarar Stjörnunnar taka á móti ÍR sem sló Njarðvík óvænt út á mánudaginn. Á morgun er svo komið að fyrsta leik KR og Þórs Þorlákshöfn þar sem Þórsarar reyna að verða fyrsta liðið í sex ár til að slá KR út í úrslitakeppninni. Eftir standa tvö sigursælustu liðin í karlaf lokki,  KR sem hefur unnið titilinn sautján sinnum og ÍR með fimmtán titla ásamt Stjörnunni og Þór Þorlákshöfn sem hafa aldrei orðið Íslandsmeistarar. „Fyrsti leikurinn er alltaf mikil skák þegar andstæðingarnir setjast við borðið og bregðast við aðgerð- um hvor annars. Þar þreifa liðin hvort á öðru fyrir einvígið sjálft og það verður gaman að sjá hvað gerist,“ segir Friðrik Ingi Rúnars- son sem Fréttablaðið ræddi við um komandi einvígi. Garðbæingar hafa unnið alla þrjá leikina gegn ÍR í vetur sannfærandi og verða að teljast líklegri aðilinn enda ríkjandi deildar- og bikar- meistarar. „Leikmannahópur Stjörnunnar er það sterkur að leikmennirnir yrðu að ég held fyrir vonbrigðum ef þeir dyttu út í undanúrslitunum,“ segir Friðrik, aðspurður hvort pressan sé á Stjörnunni. „Það væri glapræði hjá Stjörnunni að vanmeta ÍR og kæruleysi verður ekki liðið hjá þjálfarateyminu. Það væri sterkt hjá Stjörnunni að byrja af krafti og reyna að grípa ÍR-inga í bólinu. ÍR er nýkomið úr þvílíku fimm leikja einvígi og það er oft erfitt að koma úr slíkum leikjum. Stjarnan getur náð frumkvæðinu í einvíginu strax í kvöld,“ segir Frið- rik sem hefur hrifist af ÍR-ingum. „Þetta ÍR lið er skemmtilega óútreiknanlegt. Þeir eru baráttu- glaðir og mæta ef til vill trylltir til leiks strax í fyrsta leikinn. Það gæti hentað þeim að það sé stutt á milli Skyldi ekki afskrifa ÍR og Þór Úrslitakeppnin í Dom- ino’s-deild karla fer af stað á ný í kvöld þeg- ar Stjarnan og ÍR mæt- ast í Garðabænum. Í seinna einvíginu mætir Þór Þorlákshöfn fimm- földum meisturum KR. Friðrik Ingi Rúnarsson telur að það væri glap- ræði að afskrifa Þór og ÍR þó að Stjarnan og KR teljist líklegri. leikja. Þeir geta byggt á góðu hlut- unum frá leikjunum gegn Njarðvík þar sem það var gott jafnvægi í leik liðsins í vörn og sókn. Sóknarleikur- inn er fjölbreytilegur með Sigurð, Matthías og Kevin. Það verða frá- bærir einstaklingar að kljást út um allan völl.“ Aðspurður tók Friðrik undir að breiddin væri meiri hjá Stjörnunni. „Þeir eru með meiri breidd og vel samsett lið sem þekkir það að kreista út sigra. Eftir komu Brand- ons Rozzell hafa þeir ekki tapað mörgum leikjum og líta heilt yfir vel út. Þessi lið hafa oft mæst á undan- förnum árum og það hefur verið hiti í þessum leikjum. Þetta verður spennandi einvígi.“ Í seinna einvíginu mæta Þórsarar KR eftir að hafa unnið magnaðan sigur á Tindastól á mánudaginn. „Ég benti mönnum á það snemma í vetur að gleyma ekki KR. Þeir lentu í vandræðum en eru með mikla breidd. Hávaxna og spræka leikmenn í öllum stöðum, mikla reynslu og kunnáttu í bland. Það eru karakterar í þessu liði sem taka því sem hvatningu og stíga upp þegar þeir eru afskrifaðir. Að mínu mati er KR sigurstranglegra en það skyldi enginn afskrifa Þór. Baldur hefur unnið magnað afrek með þetta lið,“ sagði Friðrik um hið magnaða afrek Þórsara sem luku leiknum gegn Stólunum á 18-3 spretti sem skilaði sigrinum. „Þórsarar gefast aldrei upp og það hefur einkennt liðið síðustu ár. Þetta var líka svona þegar Baldur var leikmaður liðsins undir stjórn Benedikts og síðar Einars Árna. Emil Karel og Halldór Garðar eru gott dæmi um leikmenn sem þrífast á þessu.“ Óvíst er hver staðan er á Kinu Rochford sem var haltrandi í leikj- unum gegn Stólunum. „Ég vona, þeirra vegna, að meiðsli Kinu séu ekki alvarleg. Það er heil- mikið spunnið í hann en það mun reyna gríðarlega mikið á hann gegn KR í þessu einvígi. KR er með marga leikmenn sem geta barist við stóru leikmenn Þórs inni í teignum en það má ekki gleyma að Þór er með frábæra bakvarðasveit, Nikolas Tomsick hefur verið stórkostlegur í vetur. Þór er sýnd veiði en ekki gefin og þetta verður annað áhuga- vert einvígi, hvernig liðin mátast við hvort annað.“ Aðspurður sagði Friðrik ekki hægt að afskrifa Þór og ÍR eftir afrekið sem liðin unnu í 8-liða úrslitunum þar sem ÍR og Þór lentu 0-2 undir en unnu þrjá leiki í röð og fóru áfram. „Það er alveg líklegt að KR og Stjarnan mætist í úrslitum, ég taldi líklegt að þau myndu mætast í undan úrslitunum en það skyldi enginn afskrifa hvorki ÍR né Þór í þessum einvígjum. Það sem þessi lið gerðu í átta liða úrslitunum og það á sama degi var magnað,“ segir Frið- rik Ingi. kristinnpall@frettabladid.is Það mun mikið mæða á leikmönnum ÍR í baráttu við Hlyn Bæringsson inni í teignum. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Kinu Rochford hefur verið frábær í liði Þórs í vetur. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Fyrsti leikurinn er alltaf mikil skák þar sem andstæðingarnir setjast við borðið. Friðrik Ingi Rúnarsson Domino’s-deild kvenna Undanúrslit 4 . A P R Í L 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R24 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT 0 4 -0 4 -2 0 1 9 0 9 :3 7 F B 0 6 4 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 B E -3 7 7 C 2 2 B E -3 6 4 0 2 2 B E -3 5 0 4 2 2 B E -3 3 C 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 0 6 4 s _ 3 _ 4 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.