Fréttablaðið - 04.04.2019, Page 50

Fréttablaðið - 04.04.2019, Page 50
SANDBLÁSTURSFILMUR Sundaborg 3 104 Reykjavík 777 2700 xprent@xprent.is Ráðgjöf Tilboð Hönnun Uppsetning N Ý F O R M h ú s g a g n a v e r s l u n h ú s g a g n av e r s l u n Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is Komið og skoðið úrvalið KEBE Hvíldarstólar Tegundir: Rest og Fox Opið virka dag a 11-18 laugardaga 11-15 Við reynum alltaf að finna upp á einhverju nýju,“ segir Eyþór Ingi Jón s s on , kó r s t jó r i Hymnodiu, um verk- efnaval á tónleikum kvöldsins sem verða í Akureyrarkirkju klukkan 20. „Núna erum við að f lytja verk eftir fjögur tónskáld, fjóra Íslend- inga og einn Færeying, og það eru fimm frumflutningar á dagskránni, allt verk sem við höfum pantað. Þetta eru heimsklassaverk, ótrú- lega fjölbreytt og krefjandi. Þau reyna á aðra hluti en hafa verið hjá okkur áður. Þau reyna á úthald, það er erfitt að skipuleggja andanir, sem er gaman að glíma við, lögin flæða hægt og mjúklega – mörg þeirra.“ Eitt hinna nýju laga er við hið þekkta kvæði Davíðs Stefánssonar Til eru fræ. Eyþór Ingi segir það dramatískt og bendir á að textinn sé það líka. „Það er engin von í þessum texta, bara svartnætti og verkið er í þeim anda. Tónskáldinu, Kára Bæk, tekst afar vel að mála textann.“ Kári er færeyska tónskáldið í hópnum. Eyþór Ingi kveðst hafa rekist á hann þegar báðir voru í námi við tónlistarháskólann í Piteå í Svíþjóð og Hymnodia hafi f lutt eftir hann þrjú verk áður. Önnur verk sem frumf lutt verða eru eftir Þorvald Örn Davíðsson og Sigurð Sævarsson. Þó titlar þeirra bendi ekki til neinnar léttúðar eins og Gott er sjúkum að sofna, Stóð við krossinn og O sacrum con- vivium, vill Eyþór Ingi ekki meina að öll tónlistin sé dramtísk. „Hann Sigurður Sævarsson er afar mjúkur maður og músíkin hans afskaplega tær og hrein og alveg gullfalleg. Svo er Þorvaldur Örn svipaður karakt- er. Það er svolítið drama í sumu sem hann gerir en verkin sem við erum með núna eru ekkert mjög alvarleg. Við erum líka með Önnu Þorvalds á okkar höfundaskrá, f lytjum bara eitt verk eftir hana núna en komum suður með tón- leika 12. maí og ætlum að vera með f leiri þá.“ Hann segir kórinn syngja allt án undirleiks á tónleikunum í kvöld. Skyldi það vera regla? „Nei, nei, við höfum oft verið með tón- leika með hljómsveitum og spilum stundum sjálf, það eru hljóðfæra- leikarar í kórnum. Við höfum verið í samstarfi við Sinfóníuhljóm- sveit Íslands, Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og Skálmöld nokkrum sinnum. Tökum alveg þátt í svo- leiðis verkefnum en hitt er meira krefjandi, að hafa engan undirleik og þar af leiðandi er það skemmti- legra. Þannig er það núna.“ Eyþór Ingi er organisti í Akur- eyrarkirkju og kennir líka orgelleik, spuna og kórstjórn. Hann segir allt- af einhverjar smávægilegar breyt- ingar á Hymnodiu. „Einstaka flytur í burtu en þó er ótrúlega lítil hreyfing. Við höfum verið 16 í hópnum í nokkur ár, f lestir Akureyringar, ein kona úr Mývatnssveitinni og önnur á heima hér inni í Eyjafjarðarsveit. Hann segir Hymnodiu hafa æfingaað- stöðu í Laxdalshúsi, elsta húsi Akur- eyrar. „Þar er frábær aðstaða, þó að þetta sé ekkert tónleikahús er fínt að æfa í hljómburði sem er ekki of góður.“ Heimsklassaverk, ótrúlega fjölbreytt og krefjandi Hymnodia frumflytur fimm ný kórverk í Akureyrarkirkju í kvöld, án undirleiks, undir stjórn Eyþórs Inga Jónssonar. Titill tónleikanna er Eyjar í reginhafi því lagahöfundarnir eru allir frá Íslandi og Færeyjum. Hymnodia. Eyþór Ingi er lengst til hægri. Öll tónlistin verður flutt án undirleiks í kvöld. EYÞÓR INGI ER ORGANISTI Í AKUREYRARKIRKJU OG KENNIR LÍKA ORGELLEIK, SPUNA OG KÓRSTJÓRN. Alþjóðleg Barnakvikmynda-hátíð í Reykjavík hefst í dag, fimmtudaginn 4. apríl, í Bíó Paradís og stendur yfir til 14. apríl. Það er 1.000 króna barnaverð fyrir alla og gnægð af fríviðburðum. Nostalgía mun svífa yfir vötnum, en sýndar verða klassískar myndir á borð við Ghostbusters og The NeverEnding Story ásamt einni ást- sælustu kvikmynd úr smiðju Jims Henson, The Dark Crystal. O pnu na r my nd B a r na k v i k- myndahátíðar er Benjamín dúfa, sem hefur ekki sést í bíó í áratugi, en hefur nú verið endurbætt í fullum stafrænum mynd-/hljóðgæðum fyrir frábæra upplifun. Einnig mun kvikmyndin eftir sígildri sögu Astrid Lindgren um Ronju ræningjadóttur eiga endur- komu á Barnakvikmyndahátíð með íslensku tali, sú mynd hefur heldur ekki sést í bíó síðan á níunda ára- tugnum og birtist nú áhorfendum í glænýrri stafrænni útgáfu. Japanskar teiknimyndir eiga sinn sess á Barnakvikmyndahátíðinni, en í þetta sinn verður sýnd hin klassíska mynd leikstjórans Hayao Miyazaki, My Neighbor Totoro, ásamt hinni spánnýju Mirai sem var tilnefnd til Óskarsverðlaunanna í ár sem besta teiknimyndin. Fjölmargir fríviðburðir eru í boði á Barnakvikmyndahátíð, slímnámskeið verður á undan sýningu Ghostbusters (sun. 7/4), leiklistarnámskeið undir hand- leiðslu Ísgerðar Elfu Gunnarsdóttur (sun. 14/4), japanska sendiráðið á Íslandi stendur fyrir sýnikennslu á japanskri skrautskrift (sun. 7/4) og á Eurovision-viðburði (fös. 12/4) verður stiklað yfir brot úr öllum framlögunum árið 2019. Einnig verður frítt inn á allar bíósýningar á Litlu lirfunni ljótu og Önnu og skapsveif lunum sem sýndar verða saman, og Haga- músinni eftir Þorfinn Guðnason. Borgarleikhúsið mun kíkja í heim- sókn á lokadegi hátíðarinnar (sun. 14/4) þar sem Bergur Þór, leikstjóri söngleiksins Matthildur, mun koma ásamt tveimur ungum leikurum úr sýningunni, en þau munu segja aðeins frá eigin upplifun af því að taka þátt í atvinnuleiksýningu. Í beinu framhaldi verður hægt að sjá bíósýningu á kvikmyndinni Matilda sem byggð er á frábærri sögu rithöfundarins Roalds Dahl eins og söngleikur Borgarleikhúss- ins. Dagskráin í heild sinni er á biopara dis. is – kb Nostalgía á Barnakvikmyndahátíð Hin ástsæla kvikmynd Benjamín dúfa verður sýnd á hátíðinni. Hin bráðskemmtilega mynd um Matthildi eftir sögu Roalds Dahl er á meðal mynda á hátíðinni. BERGUR ÞÓR, LEIK- STJÓRI SÖNGLEIKSINS MATTHILDUR, MUN KOMA ÁSAMT TVEIMUR UNGUM LEIKURUM ÚR SÝNINGUNNI. Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is 4 . A P R Í L 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R34 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 4 -0 4 -2 0 1 9 0 9 :3 7 F B 0 6 4 s _ P 0 6 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 B D -F 2 5 C 2 2 B D -F 1 2 0 2 2 B D -E F E 4 2 2 B D -E E A 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 6 4 s _ 3 _ 4 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.