Fréttablaðið - 11.04.2019, Blaðsíða 14
Ég tala lélega
rússnesku, fyrir-
gefið. Ég hef verið að læra
rússnesku í langan tíma.
Guðni Th. Jóhannesson,
forseti Íslands
Skúli og helstu lykil-
starfsmenn WOW air vinna
að því að endurvekja rekst-
ur flugfélagsins.
WOW air í
hópfjármögnun
Tilraun Skúla Mogensen til þess
að endurreisa flugfélagið WOW
air byggist meðal annars á því að
safna allt að 670 milljónum króna
í hópfjármögnun. Rætt er um að
lágmarksfjárhæð sem verði hægt
að leggja til verkefnisins verði um
200-250 þúsund íslenskra króna.
Skúli og helstu lykilstarfsmenn
WOW air vinna að því að endur-
vekja rekstur flugfélagsins. Þeir
leita fjármögnunar upp á 40
milljónir dala, jafnvirði um 4,8
milljarða króna, til þess að standa
straum af rekstrinum fyrstu
misserin.
Helsta fyrirstaða þess að þeim
takist ætlunarverkið að mati
heimildarmanna blaðsins er sú
að tímaramminn sé of þröngur.
Vélarnar sem Skúli hyggst taka á
leigu muni ekki standa ónotaðar
mikið lengur.
Óásættanleg framúr-
keyrsla í borginni
Innri endurskoðun Reykjavíkur-
borgar segir framúrkeyrslu kostn-
aðar við framkvæmdir við Mat-
höllina á Hlemmi óásættanlega og
gefur borginni rauða ábendingu í
skýrslu sem kynnt var fyrir borgar-
ráði. Þar segir að kostnaður vegna
eftirlits með framkvæmdum hafi í
öllum tilfellum verið vanáætlaður
og svo virðist sem gerðar áætlanir
hafi einungis verið til málamynda.
Eyþór Arnalds, oddviti Sjálf-
stæðisflokksins, segir að það sé
margt bogið við framkvæmdir á
vegum borgarinnar. Útboð skorti,
kostnaðaráætlanir séu of lágar
og að nú séu þrír eftirlitsaðilar að
skoða framkvæmdir borgarinnar.
Dagur B. Eggertsson borgar-
stjóri segir úttekt Innri endur-
skoðunar endurspegla virkt innra
eftirlit og að sérstaka athygli veki
að í aðeins einni af fjórum fram-
kvæmdum fari niðurstöður fram
yfir viðmiðunarmörk.
Ríkisstjórnin dregur
úr losun koltvísýrings
Ríkisstjórnin samþykkti lofts-
lagsstefnu Stjórnarráðsins, sem
öll ráðuneyti heyra undir. Í henni
felst að kolefnisjafna Stjórnar-
ráðið og ráðuneytin strax á þessu
ári og draga úr losun koltvísýrings
um 40 prósent fyrir árið 2030.
„Verkefnið felst í rauninni í að
fara úr orkukerfum sem nýta
jarðefnaeldsneyti yfir í endur-
nýjanlega, vistvæna orku,“ segir
Guðmundur Ingi Guðbrandsson,
umhverfis- og auðlindaráðherra.
Hann segir að markmiðið með
loftslagsstefnunni, sem er liður í
aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar
í loftslagsmálum, sé ekki aðeins
að kolefnisjafna starfsemi ráðu-
neytanna heldur að binda kolefni
umfram það sem losað er.
Flug til útlanda skýrir tvo þriðju
hluta þeirrar losunar sem verður
til við starfsemi Stjórnarráðsins og
ráðuneytanna. Lögð verður aukin
áhersla á fjarfundabúnað og færri
utanlandsferðir.
Forsetinn talaði
rússnesku
Guðni Th. Jóhannesson, forseti
Íslands, ávarpaði á rússnesku mál-
stofu í Sankti Pétursborg í Rúss-
landi með norðurslóðaleiðtogum.
„Ég tala lélega rússnesku,
fyrirgefið. Ég hef verið að læra
rússnesku í langan tíma. Og ég hef
gleymt öllu. En ég get sagt þetta
og vil segja það: Það er ekkert
meira verðmætt á þessari jörðu
en góð vinátta,“ sagði Guðni.
Forsetinn flutti ávarp og svaraði
spurningum á sameiginlegri mál-
stofu hans og Vladímírs Pútín,
forseta Rússlands, Sauli Niinistö,
forseta Finnlands, Ernu Solberg,
forsætisráðherra Noregs, og
Stefans Löfven, forsætisráðherra
Svíþjóðar.
Guðni hitti Pútín í gær ásamt
Kristjáni Þór Júlíus syni, sjávar út-
vegs- og land búnaðar ráð herra.
Einstaklega vel staðsett 295,8 fm einbýlishús á 3 hæðum, með 3 aukaíbúðum ásamt bílskúr að Lynghaga 7 í hjarta Vesturbæjarins. Möguleiki á góðum leigutekjum. Aðalíbúð er 6 her-
bergja með bílskúr. Aukaíbúðir eru tvær 2 herbergja og stúdíóíbúð. Fallegur garður með mjög góðum geymsluskúr og hellulagt bílaplan. Stutt er í skóla og aðra þjónustu í nágrenni.
Fasteign vikunnar úr Fasteignablaði Fréttablaðsins
Vikan
Skúli Mogensen
leggur á ráðin um að
endurreisa WOW air,
kostnaður við fram-
kvæmdirnar á Mat-
höllinni á Hlemmi
hafa farið upp úr öllu
valdi, umhverfis- og
auðlindarráðherra
boðar vistvæna orku
og forseti vor spreytti
sig á rússnesku er
það sem bar hæst í
vikunni.
TILVERAN
1 1 . A P R Í L 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R14 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
1
-0
4
-2
0
1
9
0
7
:2
7
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
C
C
-0
5
8
0
2
2
C
C
-0
4
4
4
2
2
C
C
-0
3
0
8
2
2
C
C
-0
1
C
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
5
6
s
_
1
0
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K