Fréttablaðið - 11.04.2019, Blaðsíða 28
Aðalhönnuður hjá Alexander McQueen er Sarah Burton. Hún vill að konur láti rödd sína heyrast, þær eiga að vera sterkar og óhræddar
við hið óhefðbundna. Einnig á það að vera sjálfsagt að
sýna varnarleysi ef konan kýs það, vera ögrandi eða
hugrökk. Það er val hverrar konu hvernig klæðnaði
hún vill ganga í.
Sarah Burton hefur sannarlega sett kvenlegan
svip á hönnun sína, eiginlega má segja að fötin hafi
einhverja skírskotun til leikhússins. Skartgripirnir
eru stórir og djarfir, keðjur, stórir hringar og margir
eyrnalokkar. Sarah Burton er í miklu uppáhaldi hjá
Katrínu hertogaynju af Cambridge.
Sumum fannst sýningin svo mögnuð að þeir
töluðu um dýrgripi, að Sarah hefði leitað aftur til
Viktoríutímabilsins eftir innblæstri og náð þannig
að tengja söguna við nýjustu tísku. Einnig má segja
að fatnaðurinn og útlit fyrirsætanna hafi verið í got-
neskum stíl.
Óheflaðir skartgripir hjá McQueen
Það var eftir því tekið þegar kynnt var haust- og vetrarlína Alexander McQueen fyrir 2019-2020
að skartgripirnir leika stórt hlutverk. Þeir eru grófir og fyrirferðarmiklir og vísa til sögunnar.
Alexander McQueen
kynnti haust- og vetrar-
tískuna á tískuviku í
París nýlega. Skartgrip-
irnir voru áberandi.
Þessi dama var ekki bara með einn eyrnalokk.
Hún er með leðurband um hálsinn og um
taglið er vafið leðurband.
Talað var um að sumar fyrirsæturnar hefðu gotneskt yfirbragð. Stórt hálsmen og keðja yfir vestið.
Sarah Burton, aðalhönnuður hjá Alexander McQueen,
er hrifin af stórum skartgripum. NORDICPHOTOS/GETTY
Stórir hringar og
breið armbönd.
Magnað hvernig leðurbandið er vafið utan um taglið.
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Verslunin Belladonna
NÝKOMIN SENDING AF KVARTBUXUM
OG SÍÐBUXUM FRÁ
NETVERSLUN WWW.BELLADONNA.IS
Túnikur
Kr. 12.990.- Str. 42-56/58
Fleiri munstur
Bæjarlind 6 • S. 554 7030 Við erum á Facebook
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 1 . A P R Í L 2 0 1 9 F I M MT U DAG U R
1
1
-0
4
-2
0
1
9
0
7
:2
7
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
C
C
-0
F
6
0
2
2
C
C
-0
E
2
4
2
2
C
C
-0
C
E
8
2
2
C
C
-0
B
A
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
5
6
s
_
1
0
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K