Fréttablaðið - 11.04.2019, Page 44
BÍLAR
Varmadælur &
loftkæling
Verð frá aðeins
kr. 145.000 m.vsk
Midea KMB-E09
Max 3,4 kW
2,65 kW við -7° úti og
20° inni hita (COP 2,85)
f. íbúð ca 40m2.
• Kyndir húsið á veturna
og kælir á sumrin
• Fyrir norðlægar slóðir
• Fjarstýring fylgir
• Virkar niður í -30°C
Uppsetningaaðilar og umboðsmenn um allt land
Wifi búnaður
fylgir með
öllum
varmadælum
meðan birgðir
endast
Umhverfisvænn
kælimiðill
Fyrsti stóri slípirokkurinn knúinn
af einni rafhlöðu sem skilar ai
til þess að slípa, er léttari en
snúrurokkur í sinni stærð.
Sveigjanlegt rafhlöðuker
sem virkar með öllum
Milwaukee ® M18™ rafhlöðum.
Verð 136.900 kr. (með rafhlöðu)
M18 FLAG
Alvöru slípirokkur
frá Milwaukee
vfs.is
Lengsta ferð sem farin hefur verið á rafmagns-bíl hingað til var líklega farin af Hollendingnum Weibe Wakker, en lang-ferð hans tók þrjú ár þar
sem farið var um 33 lönd og spann-
aði alls 95.000 kílómetra. Wakker
lagði upp í ferðina frá Amsterdam
15. mars árið 2016 og lauk henni fyrir
skömmu. Ferðin var að mestu kostuð
með fjárframlögum í því augnamiði
að fara sem lengst á rafmagnsbíl, en
mjög margir aðilar veittu Wakker
að auki fría gistingu, máltíðir og fría
hleðslu. Rafmagnsbíllinn sem Hol-
lendingurinn ók á ferðalaginu var
ekki þekkt rafmagnsbílgerð, heldur
er hann sérsmíðaður og hefur fengið
nafnið „The Blue Bandit“. Bíllinn
gat farið um 200 kílómetra á hverri
hleðslu.
Fór þar sem bauðst húsaskjól
Valið á leiðinni sem farin var réðst
helst af því hvar Hollendingnum
bauðst að hlaða bíl sinn og hvar
honum var veitt húsaskjól. Á leið
sinni fór Wakker gegnum austur-
hluta Evrópu til Tyrklands og þaðan
til Íraks og f leiri Miðausturlanda.
Þaðan fór hann til Indlands, Mjan-
mar, Taílands, Malasíu og loks til
Ástralíu. Ef Wakker hefði farið þessa
ferð á bíl með hefðbundna brunavél
hefði hann eytt um 6.800 lítrum
eldsneytis. Á leið sinni eyddi hann
hins vegar aðeins 300 dollurum í
hleðslu bíls síns, en hafa verður í
huga að hann fékk víðast hvar að
hlaða bílinn án greiðslu. Langmestu
af þessum fáu dollurum eyddi hann
á dreif býlum stöðum í eyðimörk-
inni í Ástralíu. Wakker hélt úti síðu
á samfélagsmiðlum um ferðir sínar
og margir fylgdu honum þar meðan
á langferðinni stóð.
Ekki er að efa að þetta mikla ævin-
týri Hollendingsins hafi veitt honum
mikla ánægju en á leiðinni kynntist
hann mörgu góðu fólki, ekki síst
fólki sem bauð honum gistingu og
mat og um leið kynntist hann menn-
ingu margra þjóða og gestrisni.
Fór 95.000 kílómetra
leið á rafmagnsbíl
Lét leiðarvalið ráðast af því hvar hann fengi fría gistingu og mat
og fengi að hlaða rafmagnsbílinn ókeypis. Heimsótti 33 lönd á
leiðinni og eyddi aðeins 300 dollurum í rafmagnshleðslu bílsins.
Hollendingurinn Weibe Wakker fór á þremur árum um 33 lönd og laðgi alls 95.000 kílómetra á rafmagsnbíl sínum.
Minnstar líkur eru á því að dauðaslys verði á breskum vegum af öllum
löndum í Evrópu. Á hverja milljón
íbúa urðu 28 dauðaslys í Bretlandi
í fyrra og lækkaði dánartíðnin
í umferðinni um 1% á milli ára.
Næstöruggustu vegir í Evrópu eru
í Danmörku og á Írlandi. Hættuleg-
ustu vegirnir eru hins vegar í Rúm-
eníu, Búlgaríu og Lettlandi. Í mörg-
um löndum álfunnar varð veruleg
fækkun dauðaslysa á milli ára og
lækkaði dánartíðnin í umferðinni
um 13% í Slóveníu, 11% í Búlgaríu,
9% í Slóvakíu og 8% á Kýpur.
Þegar skoðað er árabilið 2010
til 2018 hefur fækkun dauðaslysa
orðið mest í Grikklandi, eða um
45%. Á eftir fylgir Litháen með
43% fækkun, Portúgal með 35%
og í Slóveníu hefur banaslysum
fækkað um 34%. Meðaltalið fyrir
Evrópu sýnir 21% fækkun dauða-
slysa á þessu árabili. Þrátt fyrir alla
þessa fækkun voru banaslysin um
25.000 í fyrra.
Evrópusambandið er með áætl-
anir um verulega fækkun bana-
slysa í umferðinni og margar nýjar
reglugerðir sem eiga að hjálpa til
við það eru nú að líta dagsins ljós,
meðal annars um að í öllum nýjum
bílum verði hraðatakmörkun. Eins
verða allir nýir bílar að vera með
hin ýmsu öryggiskerfi sem ekki er
skylda í nýjum bílum í dag.
Breskir vegir þeir öruggustu í Evrópu
Svo mikil var spennan fyrir nýjum Jeep Gladiator að þegar Jeep opnaði fyrir stuttu pönt-
unarbækurnar fyrir 4.190 kynn-
ingareintök af bílnum þá seldust
þau öll upp á fyrsta degi. Svo virðist
sem himinhátt 62.310 dollara verð
bílsins hafi ekki komið neitt að sök
og vafalaust hefði Jeep selt f leiri
eintök ef meiningin hefði verið að
framleiða f leiri slík. Grunnútgafa
Jeep Gladiator mun ekki kosta
nema um 35.040 dollara svo miklu
munar á grunnverðinu og því verði
sem er á þessum Gladiator Launch
Edition.
Jeep Gladiator er fyrsti pallbíll
Jeep í næstum 30 ár, en hann var
fyrst kynntur almenningi á bíla-
sýningunni í Los Angeles í fyrra.
Gladiator mun fást í fjórum gerð-
um, sá ódýrasti ber nafnið Sport,
Sport S mun kosta 38.240 dollara,
Overland 41.890 dollara og Rubicon
45.040. Þessi langdýrasta Launch
Edition verður með öllu því mögu-
lega fíneríi sem hægt er að hlaða í
Gladiator og það skýrir kannski
62.310 dollara verðið. Ástæðan
fyrir því að Jeep valdi að framleiða
4.190 eintök af kynningarútgáfu
Gladiator er sú að svæðisnúmerið í
verksmiðjunni í Toledo í Ohio, þar
sem bíllinn er smíðaður, er 419.
Jeep Gladiator er þessa dagana
að streyma til söluaðila Jeep um
öll Bandaríkin. Á þessum eina
degi sem Jeep Gladiator seldist upp
komu 261.078.900 dollarar í kass-
ann hjá fyrirtækinu bara vegna
þessarar einu bílgerðar, en það
nemur 31,3 milljarði króna.
4.190 kynningareintök
seldust á einum degi
Jeep Gladiator er fyrsti pallbíll Jeep í næstum 30 ár og var kynntur í fyrra.
M11 hraðbrautin í Bretlandi.
1 1 . A P R Í L 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R28 B Í L A R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
1
-0
4
-2
0
1
9
0
7
:2
7
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
C
C
-0
A
7
0
2
2
C
C
-0
9
3
4
2
2
C
C
-0
7
F
8
2
2
C
C
-0
6
B
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
5
6
s
_
1
0
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K